Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Endurtekinn málflutningur í meiðyrðamáli Margrétar Friðriksdóttur fór fram í morgun. Ákæruvaldið krefst þess að hún verði dæmd í þrjátíu daga fangelsi. Í lok þinghaldsins beindi Margrét orðum sínum að Barböru Björnsdóttur héraðsdómara og ítrekaði skoðun sína á henni, áður en hún flutti Passíusálm. 29.5.2026 11:23
Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi þar sem spurt verður hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. 28.5.2026 17:36
Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Nýr meirihluti hefur verið myndaður í Hveragerði þar sem D-listinn og S-listinn hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili. Ingimar Guðmundsson, oddviti og bæjarstjóraefni D-listans, verður næsti bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Þá mun Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans, verða formaður bæjarráðs og María Rún Þorsteinsdóttir, 2. sæti D-listans, verða forseti bæjarstjórnar. 28.5.2026 15:48
Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Þingmenn takast á um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið á aukaþingfundi í dag. Fylgjast má með fundinum í beinni á Vísi. 28.5.2026 13:30
Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Lykilstjórnendur Air Atlanta, undir forystu forstjórans Baldvins M. Hermannssonar, hafa keypt meirihluta félagsins. Jafnframt hefur bandaríska félagið Atlas Air Worldwide bæst í eigendahópinn. Eftir viðskiptin eiga lykilstjórnendurnir 51 prósenta hlut en Atlas 49 prósenta. 28.5.2026 12:08
Fljúga til Færeyja árið um kring Icelandair hefur ákveðið að framlengja flug til Færeyja og verða eyjarnar nú heilsársáfangastaður í leiðakerfi félagsins. 28.5.2026 10:46
Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Utanríkisráðuneytið ákvað í vikunni að flytja einn starfsmann sendiskrifstofu Íslands í Freetown í Síerra Leóne heim vegna öryggissjónarmiða. 28.5.2026 10:29
Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verðbólga mælist 5,1 prósent í maí, miðað við 5,2 prósent í apríl. Lækkun virðisaukaskatts hafði 0,32 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs, til lækkunar. 28.5.2026 09:01
„Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, telur nýjan borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ekki vera í samræmi við úrslit nýafstaðinna kosninga. Það séu í raun svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki alvarlega íhugað samstarf með Miðflokki. 27.5.2026 12:03
Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir verður nýr borgarstjóri Reykjavíkurborgar. Einar Þorsteinsson verður formaður borgarráðs og Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar en þau munu skiptast á hlutverkum þann 1. júní 2027. 27.5.2026 11:30