Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Árni Sæberg skrifar 9. október 2026 08:46 Friðarsúlan var vígð árið 2007. Vísir/Vilhelm Friðarsúlan, listaverk Yoko Ono í Viðey, verður tendruð í tuttugasta sinn klukkan 20 í kvöld. Frá því að fyrst var kveikt á verkinu árið 2007 hefur það kostað Listasafn Reykjavíkur rúmlega 96 milljónir króna. Þar er tekið tillit til fjórtán milljóna króna styrks sem listamaðurinn sjálfur, Reykjavíkurborg og Orkuveitan veittu vegna endurnýjunar búnaðar. Kostnaður hleypur því á um 110 milljónum króna.
Í tilefni af tendrun súlunnar býður Reykjavíkurborg upp á fjölbreytta og hátíðlega dagskrá með leiðsögnum, listasmiðju, tónlistarflutningi og ávarpi borgarstjóra. Farið er yfir dagskrána í frétt hér að neðan: Í tilefni af yfirvofandi tendrun Friðarsúlunnar ákvað blaðamaður að ýta á eftir fyrirspurn sem fyrrverandi samstarfsmaður hans sendi Reykjavíkurborg í október í fyrra og varðaði rekstrarkostnað listaverksins. Svar við þeirri fyrirspurn barst ekki, þrátt fyrir ítrekun í nóvember í fyrra, fyrr en ýtt var á eftir henni í september síðastliðnum. Þá barst svar samdægurs. Í svarinu segir að á tímabilinu 2007 til 2025 hafi 54,8 milljónum króna verið varið í perur, varahluti og annan efniskostnað. Aðkeypt vinna, svo sem rafvirkja, tæknimanna og verkfræðinga, hafi kostað 43,9 milljónir króna og rafmagn 11,7 milljónir króna. Samtals gerir það kostnað upp á 96,4 milljónir króna á þeim 19 árum sem kveikt hefur verið á súlunni í nokkra mánuði, frá fæðingardegi Johns Lennon þann 9. október til dánardags hans þann 8. desember. Í þeirri upphæð hefur styrkur upp á 14 milljónir króna verið dreginn frá en samkvæmt svarinu veittu Yoko Ono, Orkuveitan og Reykjavíkurborg styrkinn vegna endurnýjunar á búnaði árið 2024. Ekki er tiltekið hvernig styrkurinn skiptist milli veitendanna þriggja. Heildarkostnaður við rekstur súlunnar nemur því um 110 milljónum króna á nítján árum, eða 5,8 milljónum króna á ári.
Friðarsúlan í Viðey Reykjavík Borgarstjórn Myndlist Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira