Sautján eru í farsóttarhúsi: „Aðsóknin er aðeins að glæðast með kvöldinu“ Sautján ferðamenn eru í einangrun í farsóttarhúsinu á Rauðarárárstíg en tveir hafa bæst í hópinn í dag. 12.7.2021 20:20
Vara við taugasjúkdómi sem aukaverkun af bóluefni Janssen Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur ákveðið að bæta taugasjúkdóminum Guillain-Barré á lista yfir mögulegar aukaverkanir af notkun bóluefnis Janssen. Eftirlitið segir þó að líkur á að fá sjúkdóminn séu mjög litlar. 12.7.2021 18:52
Lögreglan mátti ekki vísa georgískum tannlækni úr landi Kærunefnd útlendingamála hefur fellt ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um að vísa georgískum ferðamanni úr landi úr gildi. 12.7.2021 18:14
Biden hótar Pútín aðgerðum vegna rússneskra hakkara Hvíta húsið tilkynnti í dag að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefði varað kollega sinn Vladimír Pútín við því að Bandaríkin myndu „verja þegna sína“ gegn rússneskum tölvuárásum. 9.7.2021 23:47
Minnst 52 látin eftir eldsvoða í Bangladess Eldur kviknaði í matvælaverksmiðju í Bangladess í gær. Talið er að hluti fórnarlambanna hafi verið læstur inni í verksmiðjunni. 9.7.2021 23:04
Vegurinn um Vatnsskarð opinn á ný Búið er að opna veginn um Vatnsskarð að fullu eftir að honum var lokað vegna slyss fyrr í kvöld þegar bifreið stóð alelda á veginum. 9.7.2021 21:49
Solaris kvarta til Umboðsmanns vegna Útlendingastofnunar og lögreglu Stjórn Solaris - hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi hefur sent tilkynningu til nefndar um eftirlit með lögreglu um „ámælisverða starfshætti lögreglu, starfsaðferð og framkomu í starfi“ vegna aðgerðar á vegum Útlendingastofnunar og lögregluyfirvalda í húsakynnum stofnunarinnar í Hafnarfirði þriðjudaginn 6. júlí. 9.7.2021 21:31
Alelda bifreið í Vatnsskarði Eldur logaði í bíl í Vatnsskarði á áttunda tímanum í kvöld. Þetta má sjá í myndbandi sem fulltrúi fréttastofu náði á svæðinu. 9.7.2021 20:11
Manni bjargað úr sjálfheldu við Hengifoss Björgunarsveitarfólk frá Egilsstöðum hefur bjargað manninum sem var í sjálfheldu við Hengifoss. 9.7.2021 18:38
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður áfram fjallað um mál læknis á Handlæknastöðinni sem var sviptur réttindum sínum eftir að hafa gert fjölda ónauðsynlegra aðgerða á ennisholum og nefi sjúklinga sinna. Stjórnarformaður Handlæknastöðvarinnar segir starfsfólk í áfalli og biðst afsökunar. 9.7.2021 18:20