Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á kröfu lögreglu um vikulangt gæsluvarðhald yfir rúmlega tvítugum starfsmanni á leikskóla. Hann er grunaður um kynferðisbrot gegn barni. Rannsókn málsins er sögð á frumstigi. 15.8.2025 11:31
Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Augu umheimsins beinast nú að borginni Anchorage í Alaska þar sem fundur Trump og Pútín fer fram á morgun í Elmendorf-Richardson-herstöðinni . Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu og íbúa stolta af þeirri athygli sem borgin nýtur nú í heimspressunni. 14.8.2025 12:15
Eldislaxar í Haukadalsá, Gnoðarvogur og samgöngur á Vesturlandi Neyðarástand ríkir í Haukadalsá í Dalabyggð að sögn fiskifræðings. Þrír eldislaxar voru veiddir þar í nótt. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. 14.8.2025 11:48
Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Niðurgreiðsla á sálfræðiþjónustu verður tryggð á kjörtímabilinu að sögn fjármálaráðherra. Verð fyrir sálfræðiþjónustu fer hækkandi og áætlað er að kostnaður ríkissins geti numið um þremur milljörðum á ári. 13.8.2025 11:28
Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB Hliði verður komið upp við Reynisfjöru sem verður lokað þegar öldugangurinn er sem mestur. Fólk mun þurfa að opna hliðið til að fara niður í fjöruna og verður því meðvitaðara um að verið sé að fara inn á lokað svæði. 12.8.2025 11:31
Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni „Akkúrat núna er ég að gera mjög táknrænan fiðrildatrukk þar sem fiðrildin eru að koma út úr púpunni eitt af öðru. Það verða 26 mennsk fiðrildi uppi á þessum trukk. Þetta þarf alltaf að vera pínu táknrænt í bland við það að vera gaman,“ segir Páll Óskar. Gleðigangan fer fram á morgun kl. 14 þar sem lagt verður af stað frá Hallgrímskirkju. 8.8.2025 13:14
Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Búið er að hanna nýja Ölfusárbrú að mestu leiti sem er áætlað að verði tekin í notkun haustið 2028. Staðarstjóri framkvæmda segir framkvæmdir við mislæg gatnamót að hefjast sem tengir nýjan veg frá brúnni við Hringveg eitt. 7.8.2025 13:31
Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Karol Nawrocki, íhaldssamur sagnfræðingur og frambjóðandi þjóðernissinnaða stjórnarandstöðuflokksins Lög og réttlæti sór í morgun embættiseið sem nýkjörinn forseti Póllands. Sem slíkur hefur hann vald til að hafa áhrif á utanríkisstefnu og beita neitunarvaldi gegn lögum. 6.8.2025 13:18
Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Ísland virðist vera að klemmast á milli í tollastríðinu sem geysar á alþjóðamörkuðum að sögn framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Hann segir of algengt að íslensk stjórnvöld hafi ekki rétt gögn í höndunum í samningaviðræðum við önnur ríki. Þau þurfi að hafa tölurnar á hreinu í viðræðum um lækkun tolla. 6.8.2025 11:36
„Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga „Hátíðin var sett í hádeginu í sameiningu með Reykjavíkurborg þar sem regnbogafáni var dreginn að húni ásamt því að transfáninn var krítaður á stéttina fyrir framan Iðnó,“ segir Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga.Upplýsingamiðstöð Hinsegin daga verður staðsett í Iðnó í vikunni en Reykjavíkurborg er helsti stuðningsaðili daganna. 5.8.2025 13:20