Samfélagið á Flateyri slegið Rannsókn lögreglu á tildrögum banaslyssins í Skötufirði gengur vel en er ekki lokið samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum. Bænastund verður haldin í Flateyrarkirkju í kvöld. Sóknarpresturinn segir slysið hafa mikil áhrif á samfélagið. 20.1.2021 14:01
Ætlar að kyssa kallinn sinn strax eftir bólusetningu Til stendur að hefja bólusetningu 70 ára og eldri sem búa heima hjá sér í næstu viku. Sóttvarnalæknir og landlæknir sendu heilbrigðisstarfsfólki ráðleggingar í gær um hvernig bólusetja eigi eldri og hrumari einstaklinga við Covid-19. Þar kemur fram að vega og meta þurfi hvert tilvik fyrir sig. 20.1.2021 07:01
Ísland hefur skuldbundið sig til að kaupa ekki bóluefni utan samnings Evrópusambandsins Sóttvarnalæknir segir að búið verði að bólusetja um 30 þúsund manns gegn kórónuveirunni í lok mars. Hann segir að Ísland hafi skuldbundið sig til að kaupa bóluefni samkvæmt samningum Evrópusambandsins. Því sé ekki hægt að kaupa bóluefni framhjá þeim samningum. 18.1.2021 20:22
„Smitskömm er óþörf og getur jafnvel valdið skaða“ Það tekur smitrakningateymi lengri tíma nú en í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins að ná utan um smit og smitkeðjur en áður. Aðstoðaryfirlögregluþjónn veltir fyrir sér hvort smitskömm sé meiri nú en þá. 18.1.2021 19:00
Kafarar sendir að flakinu í fyrramálið til að koma í veg fyrir olíuleka Viðbragðsaðilar vakta nú fóðurpramma Laxa fiskeldisstöðvar sem sökk í Reyðarfirði í nótt með tíu þúsund lítra af díeselolíu. Kafarar verða sendir að flakinu til að reyna að loka fyrir olíuleka í fyrramálið. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir þetta mikið tjón og í framhaldinu verði farið yfir alla verkferla. 10.1.2021 19:00
Reynt að koma í veg fyrir að tíu þúsund lítrar af díselolíu leki í sjóinn Mikið tjón varð hjá fiskeldisstöðinni Löxum þegar fóðurprammi sem sér um fóðrun 16 fiskeldiskvía sökk í nótt í aftakaveðri. Í prammanum eru tíu þúsund lítrar af díselolíu. Framkvæmdastjóri Laxa segir að viðbragðsteymi sé á svæðinu með búnað ef olían fer að leka frá prammanum. 10.1.2021 13:30
Gætu þurft að opna fleiri farsóttarhús vegna mikillar fjölgunar Mikil fjölgun hefur verið í farsóttarhúsinu við Rauðarárstíg síðustu daga. Forstöðumaður segir ekki ólíklegt að það þurfi að opna fleiri slík hús ef fram heldur sem horfir. Ríflega þúsund manns hafa þurft að dvelja í sóttvarnahúsum frá því kórónuveirufaraldurinn hófst. 9.1.2021 22:49
Önnur lönd tilkynna um andlát aldraðra eftir bólusetningar Fimmta andlátið sem tengist mögulega bólusetningu við Covid-19 var tilkynnt til Lyfjastofnunar í gær. Þetta er sjötta alvarlega tilkynningin sem stofnunin fær vegna bólusetningarinnar. Forstjóri stofnunarinnar segir að sambærilegar tilkynningar hafi komið upp í nágrannalöndum okkar. 9.1.2021 18:32
Var ekki í síbrotagæslu þrátt fyrir langan sakaferil og mörg nýleg brot Verjandi manns sem var dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi í héraðsdómi Reykjavíkur í gær segir að skjólstæðingur sinn hafi tekið ákvörðun um næstu skref en vilji ekki gefa upp hver hún sé á þessari stundu. Þá hefur ekki komið fram hvort ríkissaksóknari hyggst áfrýja málinu til Landsréttar eður ei. 9.1.2021 14:00
Maðurinn var stórhættulegur og kerfið brást Kona sem varð fyrir stórhættulegri hnífstunguárás að tilefnislausu á heimili sínu síðasta sumar af hálfu síbrotamanns telur kerfið hafa brugðist. Maðurinn hafi fengið að ganga laus þrátt fyrir að hafa stuttu áður framið alvarlega líkamsárás, frelsissviptingu og fjölda annarra brota. Hann var dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir brotin í Héraðsdómi í dag. 8.1.2021 19:01