Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Vilja færa fjögur þing­sæti í Suðvesturkjördæmi

Suðvesturkjördæmi fengi fjóra þingmenn til viðbótar, Norðausturkjördæmi missti þrjá og Norðvesturkjördæmi einn samkvæmt tillögum starfshóps dómsmálaráðherra. Hópurinn vill líka fjölga jöfnunarsætum úr níu í 27. Þingmenn yrðu áfram 63.

Danir lærðu sína lexíu en Ís­lendingar rífist enn

Stærsta launahækkunin skilar ekki endilega bestu kjarabótunum. Danski hagfræðingurinn Lars Christensen vill að Íslendingar læri af Dönum og taki sameiginlega ábyrgð á því að launahækkanir endi ekki að stórum hluta í verðbólgu og hærri vöxtum.

Fangar þurfi að fylgja sam­þykktri dag­skrá í dagsleyfum

Fangar þurfa að skila ítarlegri dagskrá áður en þeir fá dagsleyfi og fallast á þau skilyrði sem leyfinu fylgja. Að sögn Fangelsismálastofnunar liggur áhættumat fyrir þegar um alvarleg brot er að ræða og hægt er að takmarka ferðir fanga og samskipti þeirra við aðra.

Stjórnar­ráðið beini auglýsingafé frá samfélagsmiðlum

Stjórnarráðið segist hafa ákveðið að beina auglýsingakaupum sínum til íslenskra fjölmiðla í stað erlendra samfélagsmiðla og leitarvéla. Markmiðið sé að styrkja rekstur íslenskra fjölmiðla og draga úr því að auglýsingafé renni úr landi.

Telur yfir milljarð á dag í húfi

Tekjutap ferðaþjónustunnar gæti numið rúmum milljarði króna á dag vegna verkfalls flugvirkja Icelandair, ef farþegar sem ættu að koma þann dag skila sér ekki til landsins. Þetta er mat Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.

Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri

Tillögur Sjálfstæðisflokksins um að taka Rúv af auglýsingamarkaði og takmarka starfsemina við rekstur Rásar 1 og menningarlegt hlutverk byggjast á borgaralegum hægrisjónarmiðum, segir Jens Garðar Helgason, varaformaður flokksins. Flokkurinn vilji afnema útvarpsgjaldið og veita Rúv einn milljarð króna á ári af fjárlögum.

Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár

Deildarstjóri samgangna hjá Reykjavíkurborg segir ekki hagkvæmt að gera gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar fullmislæg nú. Vegagerðin telur ljósastýrðu lausnina geta annað umferð vel í tuttugu ár eftir opnun, þótt bílferðum á höfuðborgarsvæðinu sé spáð að fjölga verulega.

Tölurnar að baki vörn stjórnar­for­manns Rúv

Auglýsingatekjur íslenskra fjölmiðla hafa dregist saman á sama tíma og sífellt stærri hluti auglýsingafjár fer til erlendra fyrirtækja. Um leið er deilt um sérstöðu Rúv, sem fær milljarða úr ríkissjóði til að sinna almannaþjónustu en selur jafnframt auglýsingar í samkeppni við einkarekna miðla. Nú stígur stjórnarformaður Rúv fram og segir umræðuna um ríkismiðilinn skyggja á stærri vanda.

„Við erum að gera stóra hluti í sam­göngum“

Hærri fjárhæðir eru ætlaðar til vegakerfisins og vetrarþjónustu í samgönguáætlun núverandi ríkisstjórnar en í tillögu fyrri ríkisstjórnar. Núverandi ríkisstjórn stefnir jafnframt að því að hefja framkvæmdir við Fljótagöng árið 2027 og undirbúa fleiri jarðgöng.

Sjá meira