Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hefur lagt sjálfan sig að veði í komandi alþingiskosningum með því að taka annað sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi. Þar með baráttusætið því flokkurinn hefur ekki mælst með mann inni úr kjördæminu í nýjustu könnunum. 19.10.2024 08:02
Sigurður Ingi mætir í Samtalið á ólgutímum Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra mætir í Samtalið með Heimi Má í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14:00. Seinna í dag liggur leið hans á Bessastaði til að taka einnig við innviðaráðuneytinu í minnihluta starfsstjórn. 17.10.2024 12:24
Starfsstjórn með minnihluta á Alþingi tekur við síðdegis Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sem mynduð var í apríl verður formlega leyst frá völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag, tveimur dögum eftir að forseti Íslands samþykkti lausn hans og annarra ráðherra þeirrar ríkisstjórnar úr embætti og skipaði alla ráðherrana í starfsstjórn. Ný minnihluta-starfsstjórn tekur við völdum á Bessastöðum síðdegis. 17.10.2024 12:13
Minnihlutastjórn tekur væntanlega við völdum á morgun Allt útlit er fyrir að tveggja flokka minnihluta starfsstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks taki við völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum á morgun. Þar með lýkur stjórnartíð ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar sem skipuð var í apríl, og eftir atvikum tveggja daga stjórn starfsstjórnar undir hans forsæti. 16.10.2024 21:11
Bjarni leggur mesta áherslu á afgreiðslu fjárlagafrumvarps Forsætisráðherra til bráðabirgða í nýrri starfsstjórn leggur áherslu á að fátt annað en fjárlagafrumvarpið verði afgreitt frá Alþingi fyrir kosningar. Ný ríkisstjórn geti síðan ákveðið að gera breytingar á því. 15.10.2024 19:21
„Hefur engan tilgang“ að setja nýtt fólk í starfsstjórn Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hyggst sitja áfram í starfsstjórn Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra fram að kosningum. Eðlilegast sé að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur skipti með sér verkum ráðherra Vinstri grænna. 15.10.2024 17:42
Forseti Alþingis telur eðlilegt að Bjarni leiði starfsstjórn Forseti Alþingis telur eðlilegt að Bjarna Benediktssyni verði falið að leiða starfsstjórn eftir að hann biðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt á Bessastöðum síðar í dag. Óvissa ríki eðlilega um þingstörf þessa dagana en ekkert verði að þingfundi sem var á dagskrá Alþingis í dag. 15.10.2024 11:50
„Við erum í ákveðnu óvissutímabili“ Það ríkir óvissuástand um framhald þingstarfa í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi í íslenskum stjórnmálum. Þetta sagði Birgir Ármannsson forseti Alþingis að loknum fundi sínum með Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í morgun. Það muni ráðast síðar í dag hvernig þingstörfum verður háttað í vikunni. Þess má vænta að forsætisráðherra muni síðar í dag biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. 15.10.2024 10:17
Birgir mættur á fund forseta Íslands Birgir Ármannsson forseti Alþingis gekk á fund Höllu Tómasdóttur forseta Íslands nú klukkan níu í morgun til að ræða við hana stöðu mála. Í framhaldinu má búast við að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra gangi á fund forseta Íslands og biðjist lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. 15.10.2024 09:04
Ekki einhugur meðal formanna flokkanna um framhaldið Ekki er einhugur um það meðal leiðtoga á Alþingi hvort forseti Íslands eigi að verða við ósk forsætisráðherra um þingrof, eða hvort honum beri að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Forsetinn ræddi við leiðtoga allra flokkanna í dag. Formaður Vinstri grænna lýsti því yfir snemma í kvöld að hún gæti vel séð fyrir sér minnihlutastjórn hennar flokks með Sigurð Inga Jóhannsson formann Framsóknarflokksins í embætti forsætisráðherra fram að kosningum. 14.10.2024 20:13