Vaktin: Innsetningardagur Bidens Joe Biden sór embættiseið og tók við völdum sem 46. forseti Bandaríkjanna í dag. Það gerir hann í skugga gífurlegrar öryggisgæslu vegna árásarinnar á þinghúsið í byrjun mánaðarins og faraldurs nýju kórónuveirunnar. 20.1.2021 11:01
Nei, Boris blundar ekki Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands blundar ekki á vinnutíma. Þetta sagði fjölmiðlafulltrúi Johnson á daglegum blaðamannafundi í dag. 19.1.2021 15:48
Átján af 27 íbúum hjúkrunarheimilis létust af völdum Covid-19 Átján af 27 íbúum hjúkrunarheimilis í Lincoln-skíri á Bretlandseyjum létust af völdum Covid-19 í aðdraganda jóla. Flestir voru á tíræðisaldri en sá yngsti var 79 ára og sá elsti 99 ára. 19.1.2021 14:23
63 prósent treysta Bjarna illa fyrir einkavæðingu Íslandsbanka Tæp 63 prósent þjóðarinnar treysta Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, mjög illa eða frekar illa til að leiða einkavæðingu Íslandsbanka. 23,5 prósent segjast treysta honum mjög eða frekar vel. 19.1.2021 10:56
Að minnsta kosti 70 börn frá Marshall-eyjum seld bandarískum pörum Að minnsta kosti 70 börn frá Marshall-eyjum voru seld bandarískum pörum eftir að þungaðar mæður þeirra höfðu verið lokkaðar til að yfirgefa heimili sín og fjölskyldur fyrir 1,3 milljónir króna og loforð um betra líf í Bandaríkjunum. 16.1.2021 20:01
Biden verður @POTUS 20. janúar en verður að safna fylgjendum upp á nýtt Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur fengið úthlutað nýjum Twitter-aðgang. Hann mun hins vegar þurfa að byrja upp á nýtt að safna fylgjendum, ólíkt því sem gerðist þegar Obama lét af embætti og Donald Trump tók við. 15.1.2021 15:26
„Snjórinn er fallegur. Að renna sér á fjöldagröfum er ekki fallegt“ Forsvarsmenn Buchenwald-safnsins í Þýskalandi hafa varað heimamenn við því að þeir sem verða uppvísir að því að stunda vetraríþróttir nálægt helgum reitum innan svæðisins verða tilkynntir til lögreglu. 15.1.2021 13:08
Hæstiréttur skikkar konur til að mæta á staðinn til að sækja þungunarrofslyf Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað í gær að skikka konur aftur til að mæta sjálfar á heilbrigðisstofnun eða í lyfjaverslun til að fá afhent lyf sem notað er til að framkvæma þungunarrof. Alríkisdómari hafði fellt regluna úr gildi vegna Covid-19 faraldursins og taldi yfirvöldum ekki stætt á því að krefjast þess að konur hættu heilsu sinni til að eiga kost á þungunarrofi. 13.1.2021 23:03
Greta Thunberg heiðruð á sænsku frímerki Teikning af aðgerðasinnanum Gretu Thunberg prýðir nú sænskt frímerki. Um er að ræða viðurkenningu til handa Thunberg, fyrir viðleitni hennar til að „varðveita einstaka náttúru Svíþjóðar fyrir komandi kynslóðir.“ 13.1.2021 21:36
Níu þúsund börn létust á írskum heimilum fyrir ógiftar mæður Á 19. og 20. öld létust 9.000 börn á átján stofnunum á Írlandi fyrir konur og stúlkur sem urðu þungaðar utan hjónabands. Þetta kemur fram í skýrslu sem kynnt var í dag en forsætisráðherra landsins segir um að ræða myrkan, erfiðan og skammarlegan kafla í sögu þjóðarinnar. 12.1.2021 23:04