Stærsti hluthafinn studdi Gildi og lagðist gegn kaupréttarkerfi Heima Þótt stjórn Heima hafi gert verulegar breytingar á upphaflegum tillögum sínum að kaupréttaáætlun til handa lykilstjórnendum eftir að hafa mætt andstöðu frá Gildi þá lagðist stærsti hluthafi fasteignafélagsins, Brú lífeyrissjóður, gegn innleiðingu á slíkum kaupréttum en laut í lægra haldi fyrir meirihluta hluthafa. Lífeyrissjóðurinn fylkti sér jafnframt að baki Gildi í andstöðu við tillögu stjórnar Haga að kaupréttarkerfi sem var samþykkt með nokkuð naumum meirihluta á hluthafafundi í liðinni viku. 4.9.2024 15:51
Afkoman hjá Akta við núllið eftir sveiflukennt ár á mörkuðum Sjóðastýringarfélagið Akta var rekið rétt fyrir ofan núllið á fyrri árshelmingi en þóknanatekjurnar jukust samt nokkuð á tímabili sem einkenndist af miklum sveiflum á eignamörkuðum innanlands. Einn af helstu flaggskipssjóðum Akta, sem hefur veðjað stórt á Alvotech, sá eignir sínar halda áfram að skreppa saman samtímis útflæði – þó minna en áður – og verulega neikvæðri ávöxtun. 1.9.2024 12:28
Gagnrýnir umbun stjórnenda ef ávöxtun „nær að skríða“ yfir áhættulausa vexti Stærsti hluthafi Haga var gagnrýninn á „umfang og útfærslu“ nýs kaupréttarkerfis smásölurisans og beindi þeirri spurningu til stjórnar félagsins á nýafstöðnum hluthafafundi af hverju hún teldi rétt að umbuna lykilstjórnendum með kaupréttum ef þeir næðu að skila ávöxtun sem væri vel undir ávöxtunarkröfu ríkisbréfa. Tillaga stjórnar Haga, sem er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða, að kaupréttarkerfi var samþykkt með nokkuð naumum meirihluta. 31.8.2024 15:42
Högnuðust um nærri tuttugu milljarða eftir söluna á Kerecis Fjárfestingafélag Andra Sveinssonar og Birgis Más Ragnarssonar, sem var stærsti einstaki hluthafinn í Kerecis, hagnaðist um meira en nítján milljarða við risasölu á íslenska líftæknifyrirtækinu á liðnu ári, en frekari viðbótargreiðslur gætu átt eftir að skila sér. Áformað er að greiða út stærstan hluta söluhagnaðarins í arð til hluthafa. 29.8.2024 11:32
Hagnaður Stefnis minnkar um nærri fjórðung en eignir í stýringu tóku stökk Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir, dótturfélag Arion banka, sá hagnað sinn dragast nokkuð saman á fyrri árshelmingi samtímis tekjutapi við áframhaldandi krefjandi aðstæður á innlendum mörkuðum. Virkar eignir í stýringu Stefnis jukust hins vegar á sama tíma verulega, einkum eftir að félagið kláraði fjármögnun á tugmilljarða framtakssjóð vegna kaupanna á leigufélaginu Heimstaden. 28.8.2024 17:29
„Kaldar kveðjur“ að hið opinbera viðhaldi spennu á vinnumarkaði Það eru kaldar kveðjur til fyrirtækja og landsmanna ef hið opinbera ætlar ekki að leggja sitt lóð á vogarskálarnar, að sögn framkvæmdastjóra SA, en hún segir að gögn sýni það „svart á hvítu“ að sá atvinnugeiri standi undir vexti í fjölgun starfa og viðhaldi því spennu á vinnumarkaði. Fjármála- og efnahagsráðuneytið segir það hins vegar ekki rétt og bendir á að ef litið er til þróunar nýrra starfa eftir rekstrarformum þá hafi þeim fjölgað í takt við almennan vinnumarkað hjá ríki og sveitarfélögum. 28.8.2024 07:29
Sparkar út frumlyfinu og mælir með hliðstæðu Alvotech við Humira Einn af stóru innkaupaaðilunum á bandarískum lyfjamarkaði hefur ákveðið að fjarlægja framleiðenda frumlyfsins Humira, eitt mesta selda lyf þar í landi um árabil, af endurgreiðslulistum sínum og þess í stað mæla með þremur líftæknilyfjahliðstæðum, meðal annars frá Alvotech. Hlutdeild AbbVie á Humira-markaðnum hefur farið minnkandi eftir að annar innkauparisi tók sömu ákvörðun í upphafi ársins. 27.8.2024 19:43
Tvö af hverjum þremur nýjum störfum síðasta árið orðið til í opinbera geiranum Frá miðju síðasta ári hafa um tvö af hverjum þremur nýjum störfum sem bættust við íslenskan vinnumarkað orðið til hjá opinbera geiranum á meðan vísbendingar eru um að það dragi á sama tíma talsvert úr fjölgun starfa í einkageiranum. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir að stjórnvöld hljóti að leita allra leiða til að draga úr spennu á vinnumarkaði, sem hefur átt sinn þátt í að viðhalda þrálátri verðbólgu, með því að horfa þar til eigin umsvifa. 27.8.2024 06:31
Festa kaup á tuttugu prósenta hlut í norska líftæknifyrirtækinu Regenics Sérhæfður fjárfestingarsjóðir í haftengdri starfsemi og Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, ásamt hópi fleiri innlendra fjárfesta, hefur klárað samning við Regenics AS um að leggja norska líftæknifyrirtækinu til nýtt hlutafé og eignast um leið tuttugu prósenta hlut í félaginu. Fjárfestingin í fyrirtækinu, sem vinnur að þróun á sárameðhöndlunarvörum úr laxahrognum, gæti numið yfir 50 milljónum norskra króna. 22.8.2024 12:08
Áhyggjuefni ef „við sitjum föst eftir“ meðan stóru seðlabankarnir lækka vexti Haldist verðbólga þrálát á sama tíma og vaxtalækkunarferli helstu seðlabanka heimsins er að byrja, einkum í Bandaríkjunum, er það „áhyggjuefni“ ef Ísland mun þá sitja eftir sem gæti ýtt undir frekari hækkun á raungenginu og dregið úr samkeppnishæfni, að sögn seðlabankastjóra. Hann viðurkennir að viðvarandi háar langtímaverðbólguvæntingar séu til marks um vantrú á öllu kerfinu – peningastefnunni, ríkisfjármálunum og aðilum vinnumarkaðarins – að það muni takast að ná niður verðbólgunni, en það sé samt engin afsökun fyrir Seðlabankann að hafa ekki náð þar meiri árangri. 22.8.2024 08:18