Formaður KKÍ vonsvikinn og reiður með tíðindi dagsins Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, var ekkert sérstaklega ánægður með tíðindin sem bárust um hádegið, að gildandi samkomutakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins verði áfram við lýði til 9. desember. Það þýðir að íslenskt íþróttafólk, fullorðnir og ungmenni, mega ekki æfa eða keppa eins og undanfarna tvo mánuði. 1.12.2020 14:01
Jón Þór veðjar á sama byrjunarlið annan leikinn í röð Jón Þór Hauksson hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Ungverjalandi í undankeppni EM 2021. 1.12.2020 13:12
Æfinga- og keppnisbann enn við lýði Gildandi sóttvarnareglur hafa verið framlengdar til 9. desember. Það þýðir m.a. áframhaldandi bann við æfingum og keppni hjá íslensku íþróttafólki. 1.12.2020 12:05
Gerir Ajax usla í fyrstu heimsókn sinni á Anfield í 54 ár? Liverpool tekur á móti Ajax í D-riðli Meistaradeildar Evrópu klukkan 20:00 í kvöld. Með sigri tryggja Englandsmeistararnir sér sæti í sextán-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en hollenskur sigur sprengir riðilinn í loft upp. 1.12.2020 10:30
Elvar Már leikmaður mánaðarins í Litáen Elvar Már Friðriksson, leikstjórnandi BC Siauliai, hefur verið valinn besti leikmaður nóvember-mánaðar í litáísku úrvalsdeildinni í körfubolta. 30.11.2020 16:30
Tyson reykti gras fyrir bardagann um helgina Mike Tyson segir að hann hafi reykt gras fyrir bardagann gegn Roy Jones yngri um helgina. 30.11.2020 16:01
Rifjuðu upp blómaskeið körfuboltans í Blómabænum Strákarnir í Domino's Körfuboltakvöldi rifjuðu upp þegar Hamar átti lið í efstu deild og sýndu frá frægum leik liðsins gegn Haukum fyrir nítján árum. 30.11.2020 15:00
Napoli lék í sérstakri Maradona-treyju og heiðraði hann með stórsigri Napoli lék í sérstakri treyju til heiðurs Diego Maradona í leiknum gegn Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Og leikmenn Napoli heiðruðu argentínska goðið með öruggum 4-0 sigri. 30.11.2020 13:31
Skýtur á United: „Fögnuðu eins og þeir hefðu orðið meistarar“ Ralph Hasenhüttl, knattspyrnustjóri Southampton, skaut á Manchester United eftir leik liðanna í gær og sagði að Rauðu djöflarnir hefðu fagnað sigrinum eins og þeir hefðu orðið Englandsmeistarar. 30.11.2020 13:01
Jiménez höfuðkúpubrotnaði Raúl Jiménez, framherji Wolves, höfuðkúpubrotnaði í sigrinum á Arsenal, 1-2, í ensku úrvalsdeildinni í gær. Hann gekkst undir aðgerð sem heppnaðist vel. 30.11.2020 10:00