Meirihluti frambjóðenda repúblikana afneitar kosningaúrslitunum Tæplega þrjú hundruð frambjóðendur Repúblikanaflokksins til kosninga til Bandaríkjaþings og ríkisembætta, meirihluti frambjóðenda flokksins, viðurkenna ekki úrslit forsetakosninganna árið 2020 eða efast um þau. Afar líklegt er að minnsta kosti rúmur helmingur þeirra nái kjöri. 6.10.2022 22:05
Náðar þá sem hafa hlotið dóma fyrir neysluskammta af maríjúana Joe Biden Bandaríkjaforseti ætlar að náða þúsundir Bandaríkjamanna sem hafa hlotið dóma fyrir alríkisdómstólum fyrir vörslu á neysluskömmtum á maríjúana. Hann hvetur ríkisstjóra einstakra ríkja til að fara að fordæmi hans varðandi dóma fyrir ríkisdómstólum. 6.10.2022 19:36
Sigldu frá Síberíu til Alaska til að flýja herkvaðninguna Tveir rússneskir karlmenn óskuðu eftir hæli í Bandaríkjununum eftir að þeir sigldu yfir Beringshaf og tóku land á afskektri eyju undan ströndum Alaska. Þeir segjast hafa flúið herkvaðningu rússneskra stjórnvalda vegna innrásinnar í Úkraínu. 6.10.2022 18:50
Tafir á Miklubraut vegna blikkandi umferðarljósa Ólag á umferðarljósum á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar hefur valdið töfum á umferð þar nú síðdegis. Gul ljós blikkuðu og engri annarri umferðarstýringu til að dreifa. 6.10.2022 17:49
Hlýnun gerði þurrka í sumar tuttugufalt líklegri en ella Þurrkar í þremur heimsálfum í sumar voru tuttugufalt líklegri til að eiga sér stað en ella vegna hnattrænnar hlýnunar. Stórfljót þornuðu upp, uppskerubrestur varð og skógareldar kviknuðu í þurrkunum í Evrópu, Kína og Bandaríkjunum. 5.10.2022 23:41
Ársbann fyrir eldri kylfinga sem gáfu frat og löngutöng í dómara Þrír kylfingar sem var vísað frá Íslandsmóti eldri kylfinga á Akureyri í sumar hafa verið úrskurðaðir í árslangt keppnisbann fyrir alvarleg agabrot. Þeir tóku meðal annars höndum saman um að hunsa vítahögg sem dómari hafði dæmt á tvo þeirra. 5.10.2022 22:46
Ákærður vegna skotárásarinnar við Miðvang Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps vegna skotárásar við Miðvang í Hafnarfirði í lok júní. Tveir brotaþolar í málinu krefjast átta milljóna króna í miskabætur. 5.10.2022 21:25
Hlutverk verkalýðshreyfingarinnar að tryggja mannsæmandi kjör Hagfræðingur BSRB segir það hlutverk Seðlabankans og ríkisstjórnar að bera ábyrgð á efnahagsstjórn landsins en verkalýðshreyfingarinnar að tryggja mannsæmandi kjör fyrir launafólk. Seðlabankastjóri skoraði á aðila vinnumarkaðarins að taka þátt í að halda verðbólgu í skefjum í dag. 5.10.2022 20:07
Telja Úkraínumenn hafa myrt dóttur ráðgjafa Pútíns Bandaríska leyniþjónustan telur að útsendarar úkraínskra stjórnvalda hafi staðið að bílsprengjuárás í Rússlandi sem varð dóttur ráðgjafa Vladímírs Pútín forseta að bana í sumar. Úkraínumenn eru sagðir hafa fengið skömm í hattinn frá bandamönnum sínum vegna tilræðisins. 5.10.2022 18:55
Tæplega áratugsgömul sýkna í Exeter-máli endurreist með frávísun Hæstaréttar Hluta svonefnds Exeter-máls sem endurupptökudómur úrskurðaði að skyldi tekið upp aftur var vísað frá Hæstarétti í dag. Niðurstaðan þýðir að sýknudómur í héraði yfir fyrrverandi forstjóra MP bank stendur óhaggaður. 5.10.2022 18:25