Breivik sækist eftir reynslulausn Norskur dómstóll þarf að taka fyrir ósk hryðjuverkamannsins Anders Behring Breivik um reynslulausn eftir að ríkissaksóknari hafnaði beiðninni. Breivik hefur nú afplánað tíu ár af 21 árs fangelsisdómi sem hann hlaut. 27.8.2021 11:55
Apple slakar á klónni gagnvart minni hugbúnaðarfyrirtækjum Samkomulag sem tæknirisinn Apple hefur gert við hóp hugbúnaðarfyrirtækja gerir þeim síðarnefndu kleift að rukka viðskiptavini snjallforrita þeirra beint í stað þess að nota greiðslukerfi Apple. Málaferli standa nú yfir þar sem Apple er sakað um samkeppnisbrot vegna viðskiptahátta forritaverslunar fyrirtækisins. 27.8.2021 10:45
Berlusconi aftur lagður inn á sjúkrahús Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, var lagður inn á sjúkrahús í Mílanó í gærkvöldi. Hann hefur ítrekað lent inni á sjúkrahúsi frá því að hann smitaðist af kórónuveirunni í september. 27.8.2021 10:04
Óttast frekari árásir ISIS í Afganistan Viðbúnaður er hjá bandarísku herliði sem aðstoðar við brottflutning afganskra flóttamanna frá Kabúl vegna möguleikans á fleiri hryðjuverkaárásum. Fleiri en hundrað manns, afganskir borgarar og bandarískir hermenn, féllu í sjálfsmorðssprengjuárás í gær. 27.8.2021 09:02
Grænt ljós á mosku við Suðurlandsbraut Borgaryfirvöld hafa veitt Félagi múslima á Íslandi leyfi til að reisa mosku við Suðurlandsbraut 76. Bænahúsið verður á tveimur hæðum og rúmir 677 fermetrar að stærð. 27.8.2021 08:32
Mannskæð sprengjuárás í mannþröng við flugvöllinn í Kabúl Að minnsta kosti þrettán manns eru látnir eða særðir eftir mannskæða sprengju- og skotárás í mannþröng við flugvöllinn í Kabúl í dag. Talsmaður talibana fullyrðir að konur og börn séu á meðal þeirra látnu. 26.8.2021 13:54
Danir mynda bandalag til að stöðva olíu- og gasvinnslu Stjórnvöld í Danmörku og Kosta Ríka vinna nú saman að því að mynda bandalag þjóða sem eru viljug til að hætta olíu- og gasvinnslu og hætta að gefa út ný leyfi til leitar. Ekki er hægt að ráðast í ný verkefni í jarðefnaeldsneyti ef markmið Parísarsamkomulagsins eiga að nást. 26.8.2021 12:50
Fundu lík þúsunda fórnarlamba Stalíns í Úkraínu Líkamsleifar allt frá fimm til átta þúsund manns fundust í 29 fjölgagröfum á framkvæmdasvæði í borginni Odessu í sunnanverðri Úkraínu. Talið er að fólkið hafi verið fórnarlömb sovésku leynilögreglunnar í tíð alræðisherrans Jósefs Stalín. 26.8.2021 12:05
Lögmönnum sem reyndu að snúa við kosningaúrslitunum refsað Alríkisdómari í Michigan í Bandaríkjunum fyrirskipaði að hópi lögmanna sem höfðuðu mál til að reyna að snúa við úrslitum forsetakosninganna í nóvember til stuðnings Donalds Trump verði refsað. Taldi hann lögmennina hafa misnotað réttarkerfið. 26.8.2021 11:20
Fangelsisdómur yfir einum þeirra sem ætlaði að ræna ríkisstjóra Dómstóll í Michigan dæmdi karlmann á þrítugsaldri í rúmlega sex ára fangelsi fyrir aðild sína að ráðabruggi um að ræna Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan, í fyrra. Samsærismennirnir voru ósáttir við takmarkanir sem Whitmer setti á vegna kórónuveirufaraldursins. 26.8.2021 09:08