Skoða hertar aðgerðir og boða frekari skimun vegna fjölgunar smita Til umræðu er nú að herða sóttvarnaaðgerðir innanlands og hugsanlega á landamærunum vegna nýrra kórónuveirusmita frá mismunandi uppsprettum undanfarna daga, að sögn staðgengils sóttvarnalæknis. Frekari skimun fyrir veirunni hefst á næstu dögum. 28.7.2020 14:18
Áströlsku gróðureldarnir taldir hafa skaðað þrjá milljarða dýra Tæplega þrír milljarðar dýra drápust eða þurftu að yfirgefa búsvæði sín vegna gróðureldanna miklu sem geisuðu í Ástralíu síðasta sumar. Alþjóðanáttúrusjóðurinn (WWF) segja eldana verstu hamfarir fyrir dýralíf á síðari tímum. 28.7.2020 12:54
Allir þeir smituðu á Akranesi búa saman Sjö einstaklingar sem hafa greinst smitaðir af kórónuveiru á Akranesi undanfarna daga eru erlendir verkamenn sem búa saman. Sóttvarnalæknir Vesturlands segir engan þeirra alvarlega veikan og engin frekari smit hafi greinst í tengslum við hópsýkinguna. 28.7.2020 11:53
WHO um faraldurinn: Ein stór bylgja, engar árstíðarsveiflur Nýtt afbrigði kórónuveiru hagar sér ekki eins og inflúensa sem tekur árstíðarsveiflur, að sögn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Fólk ætti að búa sig undir að faraldurinn verði aðeins ein stór bylgja. 28.7.2020 11:20
Þriðju stærstu borg Víetnam lokað vegna nýrra smita Yfirvöld í Víetnam hafa komið á tveggja vikna útgöngubanni í Da Nang, þriðju stærstu borg landsins, eftir að fyrstu nýju kórónuveirusmitin í meira en þrjá mánuði greindust á sjúkrahúsi þar. 28.7.2020 10:23
Nýju innanlandssmitin á Akranesi Smitrakning er nú sögð standa yfir vegna hópsmits Covid-19 á Akranesi. Staðarmiðillinn Skessuhorn hefur þetta eftir aðstoðaryfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á Vesturlandi. 27.7.2020 16:49
Sóttu fótbrotna konu í Reykjadal Björgunarsveitarfólk frá Hveragerði sótti göngukonu sem fótbrotnaði í Reykjadal í hádeginu. Sexhjól voru notuð til þess að komast að konunni og flytja hana í sjúkrabíl á bílastæði fyrir neðan dalinn. 27.7.2020 16:29
Johnson hvetur Breta til að megra sig Bretar ættu að „grenna sig aðeins“ að mati Boris Johnson, forsætisráðherra en ríkisstjórn hans ætlar að grípa til aðgerða gegn því sem þau telja offitufaraldur í landinu. Vísar Johnson til eigin reynslu af glímu við aukakílóin og Covid-19-veikindi til þess að styðja átakið. 27.7.2020 15:58
Segjast opna „Ísflix“ í lok ágúst Aðstandendur Ísflix, sem er sögð vera ný íslensk efnisveita, segja að hún verði opnuð í lok ágúst. Öllum stjórnmálaflokkum sem eiga sæti á Alþingi hafi verið boðið að hafa vikulega þætti þar. Upphaflega stóð til að hleypa þjónustunni af stokkunum í fyrra. 27.7.2020 13:33
Þjóðaröryggisráðgjafi Trump smitaður af Covid-19 Robert O‘Brien, þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, greindist smitaður af Covid-19, sjúkdómnum sem nýtt afbrigði kórónuveiru veldur. Hann er nánasti ráðgjafi Trump sem hefur smitast af veirunni til þessa. 27.7.2020 13:19