Kona sem bauð sig fram til forseta segir falsaðar nektarmyndir hafa verið notaðar gegn sér Yfirkjörstjórn Rúanda ógilti forsetaframboð Diane Rwigara fyrir meint svindl en áður höfðu andstæðingar hennar birt nektarmyndir af henni á netinu. Hún segir að myndirnar hafi verið falsaðar og þeim ætlað að þagga niður í sér. 4.8.2017 12:40
Peningaslóð Trump og Rússa sögð liggja til Íslands Fullyrt var á MSNBC í gær að hagnaður af hótelverkefni Donalds Trump í SoHo-hverfinu í New York hefði horfið inn í íslenskan banka sem hafi verið undir hæl rússnesks auðjöfurs. 4.8.2017 11:54
Umhverfisáhrif einnota kaffihylkja eins og Bónus selur gagnrýnd Einnota kaffihylki eins og þau sem Bónus hefur nú tekið til sölu hafa meðal annars verið bönnuð í þýsku borginni Hamborg. Notuð hylkin enda að miklu leyti í uppfyllingum þar sem þau taka aldir að brotna niður. 4.8.2017 11:30
New Yorker birtir upptöku af fúkyrðaflaumi Scaramucci Samskiptastjóri Hvíta hússins var látinn taka poka sinn eftir að hann jós úr reiðiskálum sínum með fúkyrðum við blaðamann New Yorker í síðustu viku. Tímaritið hefur birt upptöku af hluta samtals þeirra. 4.8.2017 10:01
Reyna að koma í veg fyrir að Trump reki sérstakan rannsakanda Þingmenn úr báðum flokkum í öldungadeild Bandaríkjaþings hafa lagt fram frumvörp sem myndu setja Donald Trump forseta stólinn fyrir dyrnar hyggist hann reyna að láta reka sérstakan rannsakanda dómsmálaráðuneytisins á meintu samráði framboðs hans við Rússa. 4.8.2017 07:31
Fangelsisdómur fyrir að hvetja kærastann til sjálfsvígs Tvítug kona í Bandaríkjunum var dæmd í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hafa hvatt þáverandi kærasta sinn til að svipta sig lífi fyrir þremur árum. 3.8.2017 23:44
Eldur logar í Kyndlinum Slökkviliðsmenn í Dúbaí glíma nú við eldsvoða í skýjakljúfinum Kyndlinum. Búið er að rýma háhýsið. 3.8.2017 23:17
Kuldakast ekki yfirvofandi á Íslandi Ekkert bendir til þess að kuldaskeið sé yfirvofandi við Ísland þrátt fyrir að merki séu um að bráðnun íss á norðurskautinu valdi kuldapolli í hafinu fyrir utan landið. 3.8.2017 22:56
Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í Njarðvík Engan sakaði í eld sem braust út í fjölbýlishúsi í Reykjanesbæ í kvöld. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá rafmangsinnstungu. 3.8.2017 22:12
Sérstakur rannsakandi velur kviðdómendur Stefnur hafa verið gefnar út og kviðdómur skipaður til að meta gildi sönnunargagna um fund Donalds Trump yngri með rússneskum lögmanni. Aukinn þungi virðist hafa færst í rannsókn á tengslum forsetaframboðs Trump við Rússa og er hún nú sögð beinast að hugsanlegum fjármálaglæpum meðal annars. 3.8.2017 21:50