Hneyksli vegna ríkisleyndarmála skekur sænsku ríkisstjórnina Ráðherrar í sænsku ríkisstjórninni eru sagðir valtir í sessi vegna klúðurs þegar rekstur tölvukerfis samgöngustofnunarinnar var boðinn út. Viðkvæmar persónugreinanlegar upplýsingar voru aðgengilegar starfsmönnum fyrirtækisins sem fékk samninginn þó að þeir hefðu ekki öryggisheimild til þess. 24.7.2017 14:53
Kushner sver af sér samráð við Rússa Tengdasonur Donalds Trump segist ekki hafa haft neitt samráð við rússneska embættismenn í aðdraganda forsetakosninganna í fyrra og segist ekki kunnugt um að neinn annar sem starfaði við framboðið hafi gert það. Hann ber vitni um tilraunir Rússa til að hafa áhrif á kosningarnar fyrir luktum dyrum þingnefnda í dag og á morgun. 24.7.2017 13:02
Árásarmaður gengur laus í svissneskum bæ Fimm eru særðir, þar af tvær alvarlega, eftir að óþekktur maður er sagður hafa gengið berserksgang með keðjusög í svissneska bænum Schaffhausen, nærri landamærunum að Þýskalandi. Lögreglan leitar að árásarmanninum. 24.7.2017 11:06
Rannsaka dauða ungs blökkumanns skömmu eftir handtöku Lögreglan í London segir að ungur maður sem lést eftir að hann var handtekinn um helgina hafi stungið aðskotahlut upp í sig og veikst í kjölfarið. Baráttufólk gegn kynþáttahatri hefur lýst áhyggjum og reiði vegna dauða mannsins. 24.7.2017 10:48
Forseti Póllands ætlar að stöðva umdeild lög með neitunarvaldi Fjöldamótmæli hafa verið haldin í Póllandi gegn umdeildum lögum sem gera ríkisstjórn landsins kleift að skipta út hæstaréttardómurum. Forseti Póllands tilkynnti í dag að hann hygðist beita neitunarvaldi sínu. 24.7.2017 09:41
Tengdasonur Trump kemur fyrir þingnefnd Búist er við að spurningar um samskipti við rússneska embætismenn og athafnamenn verði efst á baugi þegar Jared Kushner, tengdasonur og helsti ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, kemur fyrir þingnefnd í dag. Yfirheyrslurnar fara fram fyrir lokuðum dyrum og verður framburður Kushner ekki eiðsvarinn. 24.7.2017 08:42
AGS spáir minni hagvexti á Bretlandi og í Bandaríkjunum Minni umsvif á fyrsta ársfjórðungi eru ástæða þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur lækkað hagvaxtarspá sína fyrir Bretland og Bandaríkin á þessu ári. 24.7.2017 08:15
Íslenskur tölvunarfræðingur vinnur einstakar myndir af Júpíter Nýjar myndir frá bandaríska geimfarinu Juno af reikistjörnunni Júpíter hafa afhjúpað áður óséð landslag í lofthjúpi gasrisans. Það er ekki síst fólki eins og Birni Jónssyni tölvunarfræðingi að þakka. Björn tilheyrir samfélagi áhugamanna um allan heim sem nýta frítíma sinn til að vinna myndir frá geimförum. 20.7.2017 09:00
Stuðningsmenn Trump líklegri til að kjósa en andstæðingar hans Demókratar gætu unnið sigur í þingkosningum í Bandaríkjunum á næsta ári en þurfa að yfirstíga áhugaleysi eigin stuðningsmanna áður. Ný skoðanakönnun sýnir að harðir stuðningsmenn Donalds Trump séu líklegri til að kjósa en andstæðingar hans. 19.7.2017 15:54
Þingmaður spurði NASA út í siðmenningu á Mars fyrir þúsundum ára Aðstæður á Mars voru líklega mun skaplegri fyrir milljörðum ára og telja vísindamenn mögulegt að frumstætt líf gæti hafa kviknað þá. Bandarískur þingmaður vildi hins vegar vita hvort siðmenning geimvera hafi verið á rauðu reikistjörnunni fyrir þúsundum ára þegar fulltrúar NASA komu fyrir þingnefnd. 19.7.2017 14:49