Íslensk stjórnvöld hafa boðið Grænlendingum aðstoð Ekki liggur fyrir hvort að grænlensk stjórnvöld ætli að þekkjast boð íslenskra stjórnvalda um aðstoð eftir flóðbylgjuna sem gekk yfir þorp í fjörðum á Vestur-Grænlandi í dag. 18.6.2017 15:17
Lögmaður Trump segir forsetann ekki til rannsóknar Þrátt fyrir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi sjálfur tíst um að hann væri til rannsóknar fullyrði einn lögmanna hans nú að hann sé það ekki. 18.6.2017 14:31
Hefja „lokasókn“ gegn Ríki íslams í Mósúl Stjórnarher Íraks hóf "lokasókn“ gegn Ríki íslams í gömlu borginni í Mósúl í dag. Hundrað þúsund íbúar eru innilokaðir vegna átakanna að sögn Sameinuðu þjóðanna. 18.6.2017 13:40
Björgunarsveitarmenn sækja örmagna göngumann á Hornströndum Björgunarskipið Gunnar Friðriksson á Ísafirði ásamt félögum Björgunarfélags Ísafjarðar voru kölluð út til að sækja örmagna göngumann á Hornstrandir í kringum hádegi í dag. 18.6.2017 13:29
Klæðningin á Grenfell-turninum var bönnuð á Bretlandi Fjármálaráðherra Bretlands segir að klæðningin sem var utan á Grenfell-turninum sem brann á miðvikudag sé ólögleg í Bretlandi, Evrópu og Bandaríkjunum. Að minnsta kosti 58 eru látnir eftir eldsvoðann. 18.6.2017 13:15
Fjögurra saknað eftir flóðbylgjuna á Grænlandi Lögreglan á Grænlandi segir að fjögurra sé saknað eftir flóðbylgjuna sem gekk á land í þorpum á Vestur-Grænlandi eftir jarðskjálfta sem reið yfir í gærkvöldi. 18.6.2017 12:08
Farþegar Vueling frá Barcelona skildir eftir í óvissu í Edinborg Hópur íslenskra farþega spænska flugfélagsins Vueling var skilinn eftir í reiðileysi á flugvellinum í Edinborg eftir að hætt var við lendingu í Keflavík í gærkvöldi. Hluti fólksins hefur keypt sér miða með öðru félagi heim og hefur engar upplýsingar fengið frá spænska félaginu. 18.6.2017 10:51
Jarðskjálfti og flóðbylgja á Vestur-Grænlandi Íbúum í þorpum á Vestur-Grænlandi var skipað að yfirgefa þau vegna flóðbylgna eftir jarðskjálfta af stærðinni fjórir í gær. Slíkir skjálftar eru ekki algengir á Grænlandi. 18.6.2017 09:21
Bandarísku sjóliðarnir fundust látnir Lík sjóliðanna sjö sem var saknað eftir árekstur bandarísks herskips og flutningaskips á föstudag eru komin í leitirnar. Japanskir fjölmiðlar segja að vatn hafi flætt inn í káetur þeirra á meðan þeir sváfu. 18.6.2017 08:53
Tvíburar Beyoncé og Jay-Z komnir í heiminn Kyn og fæðingardagur tvíbura stjörnuparsins Beyoncé og Jay-Z hefur ekki enn verið staðfest en bandarískir fjölmiðlar fullyrða að börnin séu komin í heiminn. 18.6.2017 08:38