Sólfirrð náð í kvöld Jörðin náði fjærsta punkti frá sólinni í kvöld. Sumar og vor eru aðeins lengri en haust og vetur á norðurhveli vegna þess að jörðin ferðast hægar um sólina þegar hún er sem fjærst henni. 3.7.2017 22:30
Steig á bensíngjöfina í stað bremsunnar Allir þeir sem slösuðust þegar leigubíl var ekið inn í hóp fólks við flugvöll í Boston eru leigubílsstjórar. Atvikið er rannsakað sem slys en ökumaður leigubílsins segist hafa stigið á bensíngjöfina þegar hann ætlaði að bremsa. 3.7.2017 20:59
Rúmlega þriðjungur styður ríkisstjórnina Lítil hreyfing er á fylgi stjórnmálaflokkanna samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Vinstri græn hafa tapað þremur prósentustigum og aðeins rúmur þriðjungur styður ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. 3.7.2017 19:56
Trump og páfinn heita foreldrum barns sem á að leyfa að deyja stuðningi Foreldrar tíu mánaða gamals langveiks drengs sem læknar ætla að taka úr öndunarvél hafa fengið stuðning frá Páfagarði og Hvíta húsinu. 3.7.2017 19:27
Leigubíl ekið inn í hóp fólks í Boston Tíu gangandi vegfarendur eru sagðir slasaðir eftir að leigubíl var ekið inn í hóp þeirra nærri Logan-alþjóðaflugvellinum í Boston síðdegis. 3.7.2017 18:43
Ódýrari útgáfa af Teslu væntanleg á föstudag Fyrstu eintökin af Model 3-rafbílnum frá Teslu koma úr verksmiðjunni á föstudag og í hendur eigenda sinna fyrir mánaðamót, að sögn Elons Musk, forstjóra rafbílaframleiðandans. 3.7.2017 17:59
Bandarískir bankastjórar fá þrefalt meira borgað en aðrir Laun æðstu manna bandarískra banka eru óbreytt frá því fyrir efnahagshrunið 2008. Þeir eru með rúmlega þrefalt hærri laun en starfsbræður þeirra í öðrum löndum samkvæmt úttekt ráðgjafarfyrirtækisins Bernstein. 3.7.2017 17:30
Lögreglusveitir Duterte nota sjúkrahús til að fela morðin Reuters-fréttastofan fullyrðir að lögreglumenn á Filippseyjum hafi flutt grunaða glæpamenn sem þeir hafa skotið til bana á sjúkrahús til að eyða sönnunargögnum og fela aftökurnar. Þúsundir manna hafa verið myrtir í stríði Duterte forseta gegn fíkniefnum. 29.6.2017 16:26
Segja aðeins þrjú ár til stefnu að stöðva hættulegar loftslagsbreytingar Kolefniskvótinn sem menn þurfa að halda sig innan til að forðast verstu afleiðingar loftslagsbreytinga gæti svo gott sem klárast á næstu þremur árum. Sérfræðingar vara við að lönd heims þurfi að byrja að minnka losunina strax. 29.6.2017 16:00
Trump hæðist að sjónvarpskonu og segir hana hafa verið blæðandi eftir andlitslyftingu Bandaríkjaforseti ræðst af ofsa á sjónvarpskonu á Twitter og segir hana með lága greindarvísitölu og klikkaða. Þá fullyrðir hann að hún hafi verið blæðandi eftir andlitslyftingu um áramótin. 29.6.2017 15:03