Eldgosin verða kröftugri og hraun mun fara til byggða Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir að búast megi við sífellt kröftugri eldgosum í þeirri hrinu Reykjaneselda sem nú sé hafin. Eldgos verði nær þéttbýli og með hraunrennsli til byggða. 20.7.2023 21:17
Lítið vantar upp á að hraun nái yfir vatnaskil til Faxaflóa Lítið virðist vanta upp á að hraun frá gosstöðvunum við Litla-Hrút geti farið að renna yfir vatnaskil til norðurs í átt að Faxaflóa og Reykjanesbraut, miðað við myndir sem teknar voru í gær af eldgígnum og hrauntjörninni norðan hans. 20.7.2023 10:40
„Ef gosið stendur nógu lengi þá mun Suðurstrandarvegurinn gefa sig“ Lífsháski skapaðist á gosstöðvunum við Litla-Hrút í nótt þegar gígbarmurinn hrundi skyndilega og glóandi hraunið flæddi niður á miklum hraða. Nokkru áður höfðu ferðamenn, sem stóðu við gíginn, verið reknir burt frá staðnum. Kristján Már Unnarsson var á vettvangi í dag. 19.7.2023 21:42
Vonbrigði á Vestfjörðum og áfall í Árneshreppi vegna niðurskurðar Niðurskurður samgönguáætlunar seinkar uppbyggingu Vestfjarðahringsins um þrjú ár sem veldur Fjórðungssambandi Vestfirðinga miklum vonbrigðum. Í Árneshreppi eru íbúar í áfalli vegna áforma um að slá af marglofaðar vegarbætur, sem áttu að hefjast á næsta ári. 18.7.2023 23:33
Myndband sýnir enn töluverða virkni: Gossvæðið fylltist strax og það var opnað Lögregla segir að vel hafi gengið eftir að gosstöðvar voru opnaðar á ný á Reykjanesi í dag þegar fjögurra daga banni við ferðum fólks var aflétt eftir hádegi. Ferðamenn voru agndofa þegar fréttastofa ræddi við þá um gosið. Ótrúlegt drónamyndband frá Birni Steinbekk sýnir að enn er töluverður kraftur í gosinu. 17.7.2023 21:24
Ný Þjórsárbrú við Árnes sett í salt eins og Hvammsvirkjun Ný brú yfir Þjórsá á móts við Árnes, sem til stóð að bjóða út í haust, frestast um óákveðinn tíma eftir að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Oddvitar sveitarfélaganna beggja vegna Þjórsár vonast til að brúarsmíðin tefjist ekki of mikið og segja brúna hafa mikla þýðingu fyrir uppsveitir Suðurlands. 16.7.2023 22:20
Grjót og mosi þyrlast upp þegar kvikan brýst í gegn Drónamyndband sem sænsk íslenski ljósmyndarinn Jakob Vegerfors tók sýnir hvernig sprungugos hefst og kvikugangur brýst upp til yfirborðs jarðar. Ný gossprunga sést opnast við rætur Litla-Hrúts um 5-8 mínútum eftir að fyrst varð vart við eldgosið milli Fagradalsfjalls og Keilis mánudaginn 10. júlí. 14.7.2023 09:52
Hálft Reykjanesið geti farið undir eld Slökkviliðsbíla má nú sjá við gosstöðvarnar þar sem reynt er að halda aftur af útbreiðslu gróðurelda sem loga vegna glóandi hrauns. Slökkviliðsstjóri segir að ef ekkert verði að gert sé hætta á því að þeir nái gríðarlegri dreifingu á svæðinu. Lokað var fyrir aðgengi almennings að gosstöðvunum í dag. 13.7.2023 20:42
Fólk að stelast að gosinu í glórulausum aðstæðum Hjálmar Hallgrímsson, vettvangsstjóri lögreglunnar, segir margvíslegar ástæður fyrir því að gosstöðvunum hafi verið lokað í morgun. Sumir reyni að stelast til að komast að þeim, fram hjá lögreglunni. 13.7.2023 16:51
„Auðveldasta leiðin og eina leiðin er til suðurs“ Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir virkni eldgossins við Litla-Hrút vera svipaða í dag eins og í gær. Hann segir það afar ólíklegt að kvikugangurinn lengist eða að sprungur opnist á nýjum stöðum, til að mynda norðar við Keili. Hraunið muni renna áfram til suðurs. 13.7.2023 15:14