Katrín afhenti Bjarna lyklana að forsætisráðuneytinu Bjarni Benediktsson hefur nú tekið við lyklum að forsætisráðuneytinu. Katrín Jakobsdóttir afhendi honum lyklana í morgun. Katrín segist spennt fyrir nýjum verkefnum og Bjarni líka. 10.4.2024 08:59
Vaktin: Bjarni tekur við lyklunum úr hendi Katrínar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun taka við lyklunum að forsætisráðuneytinu úr hendi Katrínar Jakobsdóttur í Stjórnarráðshúsinu klukkan 8:30 í dag. Hægt er að fylgjast með í spilaranum að neðan og á Stöð 2 Vísi. 10.4.2024 08:03
Óánægja með tilraunaverkefni í frístund: „Okkar hópur logar bara, á okkar leikskóla“ Foreldrar barna sem eiga að fara beint í frístund eftir leikskólaútskrift í vor eru einhverjir ósáttir við stuttan fyrirvara á tilraunaverkefninu. Þá finnst þeim kostnaður of mikill, óheppilegt að frí sé ekki á sama tíma og í leikskóla og of lítið samráð við bæði foreldra og fagaðila. 10.4.2024 06:45
Hraunbreiðan orðin rúmir sex ferkílómetrar Þrátt fyrir að dregið hafi úr krafti eldgossins eru ekki merki um að heildar kvikuflæði frá dýpi sé að minnka. Það er samanlagt magn sem safnast saman undir Svartsengi auk þeirra kviku sem flæðir upp á yfirborð í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni. 9.4.2024 15:46
Ólöf og Omry selja Kryddhúsið John Lindsay hf. hefur keypt Kryddhúsið af hjónunum Ólöfu Einarsdóttur og Omry Avraham. Þau stofnuðu fyrirtækið árið 2015 og framleiða í dag yfir 90 tegundir af kryddum og kryddblöndum. Með kaupunum verður framleiðsla og vörulager flutt í Klettagarða 23 úr Flatahrauni í Hafnarfirði. 9.4.2024 10:49
Sérbýli að verða lúxusvara á fasteignamarkaði Páll Pálsson segir enn að gæta svokallaðra Grindavíkuráhrifa á fasteignamarkaði. Fasteignasalar upplifa meiri læti núna en í fyrra. Sérbýli séu að vera lúxusvara. Aðeins voru byggð 34 sérbýli í fyrra á höfuðborgarsvæðinu. 9.4.2024 10:22
Nokkrar klukkustundir í tilkynningu Líklegt er að ný ríkisstjórn verði kynnt eftir nokkrar klukkustundir, um hádegisbil. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður þingflokks, vildi ekki staðfesta það sem kemur fram í Morgunblaðinu um ráðherraskipti í Bítinu en sagði styttast í tilkynningu frá formönnum. 9.4.2024 08:38
Plötusnúðurinn Friction á leið til Íslands Tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Ed Keeley sem er betur þekktur sem Friction kemur fram á Radar föstudaginn 10. maí. Hann þeytir skífum á vegum plötusnúðahópsins Hausa. 9.4.2024 08:00
„Það er svo margt sem breyttist í lífi Grindvíkingsins“ Félagsráðgjafi í Grindavík segir áríðandi að tekið sé vel utan um Grindvíkinga. Það sé ekki nóg að byggja varnargarða um bæinn, heldur þurfi að verja fólkið líka. Hún segir marga í slæmri stöðu og að húsnæðisöryggi sé grunnurinn að því að tryggja fólki stöðugleika svo unnt sé að vinna betur að öðrum þáttum. Tryggja þurfi öllum nauðsynlegan stuðning. 9.4.2024 06:47
Hefðu lent í vandræðum án frestunar Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata sagði það í raun eðlilegt að Birgir Ármannsson, forseti þingsins, hefði tekið öll mál af dagskrá og slitið fundi. Ríkisstjórnin sé ekki starfhæf og ekki við hæfi að ræða mál á þingi sem ekki sé hægt að leysa. 8.4.2024 15:26
Fullkomnunarárátta: Óánægð með okkur eða aðra, klárum ekki, sköpum togstreitu og fleira Áskorun