Smitin tengjast skólunum og meðalaldur smitaðra er 17 ára Sex manns greindust með kórónuveiruna hér á landi síðastliðinn sólarhring og aðeins einn var utan sóttkvíar. Meðalaldur smitaðra er 17 ára. 1.4.2021 11:58
Tvö til þrjú hundruð manns mættir klukkan sjö í morgun Áætlað er að tvö til þrjú hundruð manns hafi verið mættir á gossvæðið klukkan sjö í morgun. Reglubundnar rútuferðir frá Grindavík upp að stikuðu gönguleiðinni að gosinu í Geldingadölum hófust í morgun. 1.4.2021 10:24
Tveir bólusettir greinst með breska afbrigðið á Íslandi Tvö tilvik hafa komið upp þar sem bólusettir einstaklingar hafa greinst með breska afbrigði kórónuveirunnar á Íslandi. 31.3.2021 19:32
Ætlar í mál við Seltjarnarnesbæ og hugsanlega einstaka starfsmenn Seltjarnarnesbær hefur hafnað bótaskyldu í máli Margrétar Lillýar Einarsdóttur, stúlku sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi. Margrét Lillý ætlar að höfða bótamál gegn bænum og hugsanlega einstaka starfsmönnum sem komu að máli hennar. 31.3.2021 12:09
Ekki þægilegt fyrir starfsfólkið að heyra að smit væri komið upp Leikskólastjórar harma að takmarkanir hafi ekki verið settar á starfsemi leikskóla. Leikskólastjóri vill sjá lágmarksstarfsemi á leikskólum fyrir vel skilgreinda forgangshópa. 25.3.2021 19:01
Á annan tug með réttarstöðu sakbornings í umfangsmiklu fíkniefna- og fjársvikamáli Vel á annan tug manna eru með réttarstöðu sakbornings og tveir eru í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefna- og fjársvikamáls sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar. Húsleit hefur verið gerð á öðrum tug staða, bæði á heimilum og í fyrirtækjum vegna málsins. 25.3.2021 17:54
Fjölmargir foreldrar halda börnum sínum heima og hljóðið þungt í leikskólakennurum Hljóðið er þungt í leikskólakennurum að sögn formanns félags leikskólakennara. Hann segir stjórnvöld taka óþarfa áhættu með því að halda leikskólum opnum fram að páskafríi. Formaður skóla- og frístundasviðs segir að fámennt verði á leikskólum í dag og á morgun. Fjölmargir foreldrar hafi ákveðið að halda börnum sínum heima. 25.3.2021 11:34
Stafrænt kynferðisofbeldi nú refsivert: Fjögur prósent landsmanna fórnarlömb slíks ofbeldis Fjögur prósent landsmanna verða fyrir kynferðislegri myndbirtingu eða hótun um slíkt, samkvæmt nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra. Aðeins fleiri karlar en konur verða fyrir slíkum brotum. Frumvarp sem tekur á stafrænu kynferðisofbeldi var samþykkt samhljóða á Alþingi í dag. Dómsmálaráðherra vonar að löggjöfin verði til þess að eyða því viðhorfi að slíkt sé í lagi. 17.2.2021 20:07
Í gæsluvarðhaldi til 19. febrúar vegna manndráps við Rauðagerði Karlmaður á fertugsaldri var í kvöld úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 19. febrúar á grundvelli rannsóknarhagsmuna, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í þágu rannsóknar hennar á manndrápi við Rauðagerði í Reykjavík um miðnætti í gærkvöldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 14.2.2021 23:40
Rúmlega helmingur býr enn við ofbeldisaðstæður Rúmlega helmingur þeirra sem varð fyrir heimilisofbeldi í fyrra býr enn við aðstæðurnar og er hlutfallið talsvert hærra miðað við fyrri ár, samkvæmt nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra. Skýrsluhöfundur telur að aukið atvinnuleysi og óvissa í samfélaginu hafi áhrif á stöðuna. 14.2.2021 17:00