Fréttamaður

Oddur Ævar Gunnarsson

Oddur Ævar er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Barn stakk sig á sprautunál á skóla­lóðinni

Barn í Laugarnesskóla stakk sig á sprautunál sem það fann á skólalóð skólans í gær. Skólameistari biðlar til foreldra um að ræða við börn sín vegna málsins en brugðist var við málinu í samræmi við öryggisferla skólans.

„Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“

Forstjóri Hölds Bílaleigu Akureyrar segir nær enga erlenda ferðamenn vilja leiga sér rafbíl og segist ekki skilja hvaðan umhverfisráðherra fái þær tölur sem hann nefnir um fjárstuðning til bílaleiga í nafni loftlagsmála. Hann segist sakna samráðs við bílaleigur, það strandi ekki á þeim að bregðast við en reksturinn þurfi að standa undir sér.

Kristján hótar lög­sókn verði bann að lögum

Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals hf segist ætla í hart fari svo að hvalveiðir verði bannaðar. Hann segist ekki halda að íslensk stjórnvöld muni þora að framfylgja banninu, skattgreiðendur muni borga brúsann fyrir málaferlin.

Svona var ræða Trumps: Spurning um „ger­eyðingu“ og nýtt nafn á gervi­greind

Donald Trump Bandaríkjaforseti fór um víðan völl eins og hans er von og vísa í árlegri ræðu hans frammi fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Hann segist standa frammi fyrir mikilli ákvörðun hvað varðar Íran, að gera samning við þarlend stjórnvöld eða eyða íslamska lýðveldinu. Þá gekk sendinefnd Kúbu út úr salnum og forsetinn sagði Bandaríkjamenn bera höfuð og herðar yfir Kína þegar kemur að gervigreind, sem hann nefndi nýju nafni.

Snið­ganga Hvíta húsið

Bandarísku fréttastöðvarnar Fox News, ABC, CBS og NBC hafa samþykkt að hætta að flytja fréttir af Hvíta húsi Donalds Trump Bandaríkjaforseta í mótmælaskyni við ákvörðun Hvíta hússins um að meina fréttafólki CNN, Politico og MS Now inngöngu í Hvíta húsið og á viðburði á vegum þess.

Bíla­stæði við Stúdenta­garða verða einkastæði

Þann 1. október verður tekin upp gjaldskylda á bílastæðum við Stúdentagarða vð Háskóla Íslands og mega einungis þeir sem eru með íbúakort leggja í stæðunum. Framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta segir íbúa á görðunum hafa verið orðna langþreytta á að geta ekki nálgast stæði við eigin heimili, mikil ásókn hafi verið í stæðin undanfarin ár. Íbúi lýsir yfir miklum áhyggjum vegna málsins.

Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“

Talsmaður Fagfélaganna segir að farið verði fram á verulegar launahækkanir félagsmanna í kjaraviðræðum sem framundan eru í vetur, félagsmenn séu í bullandi launarýrnun samkvæmt könnun. Plan A sé þó að Samtök atvinnulífsins komi með útspil svo ekki þurfi að fara í hart og hið opinbera hækki ekki gjöld og álögur.

Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verk­falls

Flugvirkjar fullyrða að forsvarsmenn flugfélagsins Icelandair hafi hafnað tillögu flugvirkja um að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Félag flugvirkja segir að tilgangurinn með tillögunni hafi verið að gefa aðilum tíma til að vinna áfram með innanhústillögu ríkissáttasemjara.

Macklemore svarað

Bandaríski viðskiptajöfurinn Robert Kraft segir að hann og tónlistarmaðurinn Ed Sheeran muni jafna framlag rapparans Macklemore til mannúðarmála á Gasa í Palestínu og meira til, bæta fjórum milljónum Bandaríkjadollara ofan á milljón rapparans. Rapparinn hafði skorað á auðjöfurinn að gera þetta eftir að Macklemore var sparkað sem upphitunaratriði fyrir Sheeran.

Staðgöngumóðir var það

Bandaríska stórstjarnan Lady Gaga og eiginmaður hennar frumkvöðullinn Michael Polansky eignuðust barn með aðstoð staðgöngumóður. Frá þessu keppast bandarískir slúðurmiðlar nú við að greina frá en fyrst var greint frá barneign þeirra í síðustu viku.

Sjá meira