Innlent

Bíla­stæði eða bekkir og blóma­pottar?

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Guðný María Jóhannsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs og Brynhildur Bolladóttir formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl.
Guðný María Jóhannsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs og Brynhildur Bolladóttir formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl. Vísir/Sigurjón

Meirihlutinn í borgarstjórn hefur tilkynnt að fimmtán bílastæði í miðborg Reykjavíkur hafi verið eða verði tekin aftur í notkuná næstu dögum. Ýmist fá bekkir, blómapottar eða aðrir hlutir því að fjúka úr stæðunum. 

Guðný María Jóhannsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur og Brynhildur Bolladóttir formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl hittu fréttamann og tökumann Sýnar á Skólavörðustíg og ræddu málið.

Horfa má á viðtalið í heild sinni hér fyrir neðan. 

Klippa: Tekist á um endurheimtu bílastæðin í miðborginni

Samkvæmt yfirliti yfir stæðin sem hafa verið tekin aftur í notkun eða verða opnuð á allra næstu dögum eru þau á þessum stöðum:

  • Tvö fyrir framan Kalda á Klapparstíg.
  • Eitt fyrir framan Bad Mickey á Pósthússtræti.
  • Tvö fyrir framan Café Babalú á Skólavörðustíg.
  • Tvö fyrir framan Bingó á Skólavörðustíg.
  • Fjögur fyrir framan Messann á Lækjargötu.
  • Eitt við Ráðhúsið á Tjarnargötu.
  • Eitt við Eimskipafélagshúsið í Hafnarstræti.
  • Eitt við Gamla bíó í Ingólfsstræti.
  • Eitt á Bergstaðastræti fyrir ofan Kaffibarinn.

Útiveitingasvæði við Kalda, Café Babalú, Bingó og Messann verða fjarlægð. Í yfirlitinu kemur fram að svæðin við þrjá fyrstnefndu staðina séu þar yfir sumarið.


Tengdar fréttir

Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt

Fimmtán bílastæði í miðborg Reykjavíkur eru aftur komin í notkun eða verða opnuð á næstu dögum. Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs fagnar breytingunni en fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins gagnrýna að útiborð og hjólabogar séu fjarlægð til að rýma fyrir bílum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×