„Þetta covid drasl verður tæklað eins og hver annar leikur!“ Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska landsliðsins í handbolta, stefnir á að tækla Covid-19 eins og hvern annan leik. Hann greindist með veiruna í dag ásamt tveimur öðrum leikmönnum liðsins. 19.1.2022 21:30
Egyptaland og Nígería áfram Egyptaland og Nígería eru komin upp úr riðlakeppni Afríkukeppninnar í knattspyrnu eftir sigra í kvöld. 19.1.2022 21:15
Fram fór illa með botnliðið Fram og Afturelding mættust í eina leik kvöldsins í Olís-deild kvenna í handbolta. Heimakonur unnu sannkallaðan stórsigur en leiknum lauk með sextán marka sigri Fram, lokatölur 38-22. 19.1.2022 21:00
Sú besta tryggði Barcelona í úrslit Ofurbikarsins Barcelona vann Real Madríd 1-0 í fyrri undanúrslitaleik spænska Ofurbikarsins í knattspyrnu í kvöld. Það var við hæfi að besta knattspyrnukona heims, Alexia Putellas, hafi skorað sigurmarkið en það lét svo sannarlega á sér standa. 19.1.2022 20:46
Valencia kom til baka og landaði sigri í Grikklandi Martin Hermannsson og félagar í Valencia komu til baka gegn Promitheas í Evrópubikarnum í körfubolta í kvöld. Valencia var fimm stigum undir fyrir síðasta fjórðung en sneri taflinu sér í hag og vann leikinn með þriggja stiga mun, 71-68. 19.1.2022 19:35
Ögmundur spilaði er Olympiakos tapaði | Markalaust hjá Sverri Inga Tveir Íslendingar voru í eldlínunni í 8-liða úrslitum grísku bikarkeppninni í knattspyrnu í dag. Ögmundur Kristinsson var í marki Olympiacos er liðið tapaði gegn Panetolikos og Sverrir Ingi Ingason lék með PAOK í markalausu jafntefli gegn AEK Aþenu. 19.1.2022 19:01
Fyrst kvenna til að dæma í Afríkukeppninni Salima Mukansanga braut blað í knattspyrnusögunni í gær er hún varð fyrst kvenna til að dæma leik í Afríkukeppni karla í knattspyrnu. 19.1.2022 18:01
Blásið til sóknar á Hlíðarenda Þó enn sé töluvert í að knattspyrnusumarið hér á landi fari af stað þá er aldrei of snemmt að spá í spilin. Eftir skelfingartímabil á síðasta ári hafa Valsmenn blásið í herlúðra og virðist sem markmiðið sé einfaldlega að skora meira en hinir. 18.1.2022 07:01
Dagskráin í dag: Ljósleiðaradeildin á fleygiferð Það er rólegur þriðjudagur á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. 18.1.2022 06:00
Topplið Austurdeildarinnar án lykilmanna og töpuðu bæði Alls fóru sex leikir NBA-deildarinnar fram á skikkanlegum tíma fyrir okkur Íslendinga nú í kvöld. Topplið Austurdeildarinnar – Brooklyn Nets og Chicago Bulls – töpuðu bæði. 17.1.2022 23:30