Setja takmarkanir á kínversk leikjafyrirtæki Yfirvöld í Kína tilkynntu í dag nýjar reglur sem eiga að draga úr eyðslu bæði tíma og peninga í tölvuleiki. Kína er stærsti leikjamarkaður heims og virði leikjafyrirtækja þar hríðféll eftir yfirlýsinguna. 22.12.2023 16:53
Skutu niður þrjár rússneskar sprengjuvélar Yfirvöld í Úkraínu segja þrjár rússneskar sprengjuvélar af gerðinni Su-34 hafa verið skotnar niður yfir yfir suðurhluta Úkraínu í dag. Rússneskir herbloggarar segja Patriot-loftvarnarkerfi hafa verið notað til að skjóta herþoturnar niður. 22.12.2023 15:25
Hlupu þungvopnaðir um í leit að árásarmanninum Lögreglan í Prag hefur birt myndband sem sýnir lögregluþjóna og sérsveitarmenn leita að árásarmanninum í einni verstu fjöldaskotárás Evrópu, sem framin var í gær. Ungur byssumaður gekk berserksgang í háskóla í borginni þar sem hann skaut minnst fjórtán til bana og særði 25. 22.12.2023 14:05
Margar hættur fyrir dýrin um jólin Jólahátíðin og áramótin geta reynst ferfætlingum og öðrum gæludýrum erfitt. Hefðbundin rútína hverfur um tíma, mikið er um heimsóknir og mataræði breytist mjög. Matvælastofnun segir mikilvægt að tryggja gæludýrum áfram hefðbundna hreyfingu og nauðsynlega hvíld til að tryggja að þeim líði vel. 22.12.2023 13:32
Hægri hönd Pútíns skipulagði dauða Prígósjíns Níkólaí Patrúsjev, hægri hönd Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, er sagður hafa komið að skipulagningu og að endingu samþykkt banatilræði gegn auðjöfrinum Jevgení Prígósjín. Sá dó þegar flugvél hans féll til jarðar skammt frá Moskvu í ágúst. 22.12.2023 12:03
Giuliani sækir um gjaldþrotaskipti Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York og fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trump, hefur farið fram á gjaldþrotaskipti. Það gerði hann í New York í vikunni og tíundaði hann skuldir eins og mikinn lögfræðikostnað, ógreidda skatta og 148 milljónir dala, sem hann var nýlega dæmdur til að greiða mæðgum í skaðabætur. 22.12.2023 10:14
Klúðruðu fjölda tækifæra til að stöðva raðmorðingja DeAngelo Martin var fyrir ári síðan fangelsaður fyrir að myrða fjórar konur og nauðga tveimur í Detroit í Bandaríkjunum. Nú lítur út fyrir að lögreglan í borginni hafi lagt litla áherslu á að handsama hann. Vísbendingar eru sagðar hafa verið hunsaðar og nauðsynleg skref við rannsókn morða voru ekki tekin yfir fimmtán ára tímabil. 22.12.2023 08:01
Sýndi í „slow-mo“ hvernig Nintendo-byssan virkar Gavinn Free, frá YouTube-rásinni Slow Mo Guys, tók sig til á dögunum og varpaði loks ljósi á það hvernig Nintendo Zapper, rauða byssan sem margir ættu að kannast við úr æsku, og Duck Hunt leikurinn virkar. 21.12.2023 13:07
Ræddu samruna Warner og Paramount David Zaslav og Bob Bakish, æðstu yfirmenn Warner Bros. Discovery og Paramount funduðu í þessari viku um mögulegan samruna fyrirtækjanna tveggja. Forsvarsmenn Paramount vilja selja og forsvarsmenn Warner Bros leita að nýjum samruna. 21.12.2023 12:03
„Feiti Leonard“ sendur til Bandaríkjanna Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa sleppt Alex Saab, fjármálamanni Nicolas Maduro, forseta Venesúela, úr fangelsi. Í skiptum var maður sem gengur undir nafninu „Feiti Leonard“ sendur til Bandaríkjanna en er verktaki sem sakfelldur var í fyrra vegna aðildar hans að einhverju stærsta mútuhneyksli sjóhers Bandaríkjanna. 21.12.2023 10:40