Stöðugt gos og engir skjálftar Enn gýs á þremur stöðum í eldgosinu við Sundhnúksgíga og hefur virknin verið stöðug í nótt. Mest er hún sögð við miðbik gossprungunnar og hafa engir jarðskjálftar mælst í nótt. 23.11.2024 07:16
Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Njósnaherferð og tölvuárásir yfirvalda í Kína er versta árás á samskiptakerfi Bandaríkjanna í sögu ríkisins, samkvæmt bandarískum öldungadeildarþingmanni. Hann segir kínverska hakkara hafa komist inn í tölvukerfi á annan tug fjarskiptafyrirtækja í Bandaríkjunum. 22.11.2024 16:32
Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Lögreglan á Manchestersvæðinu svokallaða í Englandi hefur beðið móður barns sem fannst látið í almenningsgarði í Salford á miðvikudaginn um að stíga fram. Kona sem var á göngu með hund sinn fann lík barnsins, sem hafði verið vafið inn í einhverskonar dúk. 22.11.2024 15:07
Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Maður sem grunaður er um umfangsmikil rán og þjófnað á höfuðborgarsvæðinu var í gær úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Er það eftir að nokkur hundruð kíló af kjötvörum, fatnaði, raftækjum og öðru fannst á heimili hans. 22.11.2024 13:47
Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Rússar hafa sent loftvarnarkerfi og flugskeyti til Norður-Kóreu og er það í skiptum fyrir hermenn sem sendir hafa verið til Rússlands. Þá hafa Norðurkóreumenn einnig fengið tækni varðandi gervihnetti frá Rússum, samkvæmt þjóðaröryggisráðherra Suður-Kóreu. 22.11.2024 13:31
Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Ráðamenn í Ísrael hafa brugðist reiðir við ákvörðun dómara Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) að gefa út handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísrael. Báðir eru sakaðir um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu á Gasa, þar sem Ísraelar hafa verið að gera mannskæðar árásir í rúmt ár. 22.11.2024 10:50
Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Tæplega 58 prósent svarenda í þjóðarpúlsi Gallup segjast styðja verkfallsaðgerðir Kennarasambands Íslands en tæpur þriðjungur styður þær ekki. Yngra fólk er líklegra til þess að styðja aðgerðirnar en eldra. 22.11.2024 09:45
Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Yfirvöld í Úkraínu segja Rússa hafa tekið að minnsta kosti tíu úkraínska stríðsfanga af lífi í Kúrsk-héraði á dögunum. Aftakan var fönguð á myndband með dróna en slíkum myndböndum af aftökum og myndböndum sem rússneskir hermenn hafa sjálfir tekið, hefur farið verulega fjölgandi á undanförnum vikum. 21.11.2024 16:51
Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, ætlar að breyta reglum þingsins svo transkonur megi ekki nota kvennaklósett og skiptiklefa í þinghúsinu. Er það skömmu áður en fyrsta trans þingkonan tekur embætti. 21.11.2024 15:54
Vilja þvinga Google til að selja Chrome Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur farið fram á að Google verði gert að selja reksturinn varðandi Chrome vafrann. Fyrr á þessu ári komst dómari að þeirri niðurstöðu að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi brotið margvísleg samkeppnislög og misnotað markaðsráðandi stöðu þess. 21.11.2024 14:37