Smit í HM-búbblunni hjá Dönum Kórónuveirusmit hefur nú greinst í „búbblunni“ á HM í handbolta, í röðum heimsmeistara Danmerkur sem spila sinn fyrsta leik á mótinu í dag. 15.1.2021 10:46
Kanónur komnar og farnar og fjörið hefst á risaleik Eyjakonur eru eina taplausa liðið í Olís-deildinni í handbolta og virðast einungis hafa eflst í hléinu langa sem lýkur á morgun þegar fjórða umferð deildarinnar verður leikin. Breytingar hafa orðið á flestum liðum og sannkallaðar kanónur ýmist snúið aftur eða helst úr lestinni frá því í haust. 15.1.2021 10:30
Rashford segir Mourinho hafa kennt sér að fá víti Umræða um vítaspyrnur er óhjákvæmileg í aðdraganda stórleiks Liverpool og Manchester United á sunnudaginn – liðanna sem nú eru efst í ensku úrvalsdeildinni. Marcus Rashford segir Jose Mourinho hafa hjálpað sér að fá oftar víti. 15.1.2021 09:31
Leikmenn þriggja liða og portúgalskur blaðamaður með smit við komuna á HM Tvö lið urðu að hætta við HM í handbolta vegna kórónuveirusmita, eitt ákvað að senda varalið vegna smithættu, og í gærkvöld var greint frá því að þrjú lið hefðu ferðast til Egyptalands með smitaða leikmenn. 15.1.2021 08:00
Unnu sigur í fyrsta leiknum án Hardens James Harden lék ekki með Houston Rockets í nótt vegna yfirvofandi vistaskipta hans til Brooklyn Nets en án hans vann Houston sinn fjórða leik á tímabilinu. 15.1.2021 07:31
Umfjöllun: Portúgal - Ísland 25-23 | Enn tapar Ísland fyrsta leik á HM Ísland varð að sætta sig við tap gegn Portúgal, 25-23, í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi, í þriðja leik liðanna á níu dögum. 14.1.2021 22:12
„Þarf að skoða vídjó og hugsa minn gang“ „Við reynum að hætta að hugsa um þennan leik og einbeitum okkur að Alsír,“ sagði Elvar Örn Jónsson eftir tapið gegn Portúgal í fyrsta leik á HM í handbolta í kvöld. 14.1.2021 21:52
Of dýrt að gera svo mörg mistök í svona stórleik „Við gerðum fimmtán tæknifeila og þetta er bara tveggja marka tap. Þetta er nú ekki meira en það,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson sem komst einna best frá sínu í sóknarleik Íslands í kvöld, í 25-23 tapinu gegn Portúgal á HM í handbolta. 14.1.2021 21:34
NBA dagsins: Durant þögull um Harden eftir fámennan sigurleik Löngum og tíðindamiklum degi hjá öllum sem að Brooklyn Nets koma lauk með 116-109 sigri á New York Knicks í Madison Square Garden í nótt. Tilþrif úr leiknum og fleiri leikjum má sjá í NBA dagsins hér á Vísi. 14.1.2021 14:30
Fá góðan liðsstyrk fyrir slaginn við Ísland í kvöld og horfa til verðlaunasætis Portúgalar hafa styrkst fyrir átökin við Íslendinga í kvöld á HM í Egyptalandi því þeir munu geta teflt fram hinum reynslumikla Gilberto Duarte, fyrrverandi leikmanni Barcelona. 14.1.2021 13:11