Þurfa að æfa í kaldri áhaldageymslu Frjálsíþróttafólk þarf að æfa í kaldri áhaldageymslu á meðan rafíþróttamótið í Laugardalshöll fer fram. Formaður Frjálsíþróttasambands Íslands segir að stöðugt sé þrengt að iðkendum, sem meðal annars hafi skilað hátt í þrjátíu prósenta brottfalli úr íþróttinni. 7.10.2021 21:31
Lokun spilakassa muni ekki leiða til skólagjalda Lokun spilakassa myndi ekki hafa áhrif á skólagjöld, að sögn rektors Háskóla Íslands. Formaður Happdrættis Háskóla Íslands hefur hins vegar lýst því yfir að lokun spilakassa myndi leiða af sér umfangsmiklar hækkanir á skólagjöldum. 7.10.2021 19:20
Miklu meira talað um faraldurinn hér en í Danmörku Lítið fer fyrir umræðu um kórónuveiruna í Danmörku eftir að samkomutakmörkunum hefur verið aflétt þar í landi, að sögn Íslendings í Kaupmannahöfn, sem segir fólki létt. Gera má ráð fyrir að íslensk stjórnvöld muni horfa líta til Norðurlandanna þegar ákvarðanir um næstu skref í sóttvarnaaðgerðir hér á landi verða teknar. 6.10.2021 20:00
„Held það geri sér enginn grein fyrir því hversu mikill hávaðinn er“ Íbúar í Kollafirði segja það sæta furðu hve hart borgaryfirvöld gangi fram við að halda starfsemi skotsvæðisins í Álfsnesi gangandi. Hljóðmengunin þar sé grafalvarleg og engum bjóðandi. Íbúar ætla að koma saman vegna málsins í dag. 6.10.2021 19:31
Barnið alvarlega slasað en ekki í lífshættu Barnið sem ekið var á í suðurbæ Hafnarfjarðar í gær er mikið slasað en ekki talið vera í lífshættu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 6.10.2021 12:00
Reikna með töluverðum áhrifum á ferðaþjónustuna Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, fagnar því að Ísland sé ekki lengur á rauðum lista Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna og reiknar með því að breytingarnar muni hafa töluverð áhrif í för með sér. Um sé að ræða stærsta og einn mikilvægasta hóp ferðamanna hér á landi. 6.10.2021 12:00
Íbúar Voga kynni sér rýmingaráætlanir: Hátt í tvö þúsund skjálftar hafa mælst við Keili Ekkert lát er á skjálftahrinunni við Keili en þar hafa mælst hátt í tvö þúsund jarðskjálftar. Bæjarstjóri Voga segir mikilvægt að fólk kynni sér rýmingaráætlanir, jafnvel þó það sé alls óvíst hvort grípa þurfi til rýmingar. 1.10.2021 22:36
Aron Einar settur út í kuldann áður en kæra lá fyrir Ákvörðun um að Aron Einar Gunnarsson yrði ekki í landsliðshóp Íslands fyrir komandi leiki í undankeppni HM 22 var tekin áður en kæra á hendur honum lá fyrir. Þetta staðfestir Ómar Smárason, samskiptastjóri KSÍ, í samtali við fréttastofu. Hann segir sambandið fyrst hafa heyrt af kærunni í fjölmiðlum í gær. 1.10.2021 19:04
Tveir knattspyrnumenn sakaðir um kynferðisbrot Tveir knattspyrnumenn sæta lögreglurannsókn vegna kæru konu sem sakar þá um að hafa brotið gegn henni í Kaupmannahöfn árið 2010. Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði er annar þeirra en hann fór í gær sjálfur fram á að gefa skýrslu hjá lögreglu. 1.10.2021 12:08
Býr til sviðasultu með chili og blóðmör með súkkulaði Sumarliði Ásgeirsson, matreiðslumeistari og bóndi í Stykkishólmi fer nokkuð óhefðbundnar leiðir í matargerð en hann setur chili og hvítlauk út í sviðasultu, súkkulaði í blóðmör og rósmarín í lifrarpylsu svo dæmi séu tekin. Hann nýtir frítíma sinn í að ferðast um heiminn og hefur meðal annars farið til Indlands og Kína – oft í þeim eina tilgangi að komast yfir framandi krydd. 24.9.2021 20:00