Fréttir
140 141 142 143 144 145 146 147 148 … 334 ›
Færeyingar efstir og neðstir í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa hækkaði almennt við lokun Kauphallarinnar í dag. Þetta er í takti við þróun á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum en fjárfestar þykja stíga varlega til jarðar áður en greint verður frá því hvort breytingar verði gerðar á stýrivaxtastigi í Bandaríkjunum um fimmleytið. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði langmest, eða um rúm fjögur prósent. Gengi landa Færeyinganna í Föroya banka lækkaði á móti mest, eða um 3,23 prósent. Viðskipti innlent 18.9.2007 15:44
Hlutabréfavísitölur lækka víða í Evrópu Gengi hlutabréfa hefur lækkað nokkuð í Kauphöllinni í dag líkt og á hlutabréfamörkuðum í Evrópu. Gengi bréfa í Exista hefur lækkað mest, eða um 3,84 prósent. Á eftir fylgir gengi bréfa í Kaupþingi, Straumi og Bakkavör, sem öll hafa lækkað um rúm tvö prósent. Ekkert félag hefur hækkað í dag. Viðskipti innlent 17.9.2007 10:51
Candover dregur tilboð í Stork til baka Breska fjárfestingafélagið Candover hefur dregið yfirtökutilboð sitt í hollensku iðnsamsteypuna Stork NV til baka þar sem tilskilinn fjöldi hluthafa var ekki samþykkur því. LME, eignarhaldsfélag í eigu Eyris Invest, Landsbankans og Marel, sem er stærsti hluthafi Stork, hefur átt í viðræðum við forsvarsmenn Candover vegna tilboðsins og verður þeim haldið áfram. Viðskipti innlent 17.9.2007 09:53
Lögmaður Færeyja fékk ekki þjóðhöfðingjaorðu Allir þjóðhöfðingjar Norðurlandanna hafa fengið fimmta og æðsta stig hinnar íslensku fálkaorðu - stórkross með keðju. Lögmaður Færeyja er ekki í þeim hópi. Innlent 16.9.2007 18:02
Skora á ríki að ráða kennara og lækna í þróunarlöndunum Bresku hjálparsamtökin Oxfam skoruðu fyrir helgi á ríki heims að ráða sex milljón kennara og lækna í þróunarlöndum og tryggja þannig öllum jarðarbúum menntun og heilbrigðisþjónustu. Erlent 16.9.2007 18:15
Olía en ekki almannahagur Hagur Íraka var aldrei aðal ástæðan fyrir innrásinni í Írak 2003 heldur olía. Þetta segir Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna. Afgerandi yfirlýsing frá annars orðvörum manni segir íslenskur stjórnmálafræðingur. Erlent 16.9.2007 18:10
Hópur fjárfesta styrkir skóla fyrir fatlaða Fjársterk kona leiðir hóp einstaklinga sem hyggst styrkja byggingu á nýjum skóla fyrir fatlaða í Mjóddinni. Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla verður því lokað innan fárra ára þegar nýi skólinn verður tekinn í notkun. Innlent 16.9.2007 18:14
Fólk fær að kaupa í Símanum fyrir áramót Engin áform eru uppi hjá Símanum um að fá undanþágu til að fresta því að selja almenningi þrjátíu prósenta hlut í félaginu. Fyrirtækið verður skráð í Kauphöllinni fyrir áramót. Innlent 16.9.2007 18:08
Jafnlaunavottun úr sögunni? Ákvörðun verður tekin í kvöld um það hvort ráðherraskipuð nefnd sem ætlað var að undirbúa jafnlaunavottun fyrirtækja, heldur áfram störfum. Fyrrverandi félagasmálaráðherra skipaði nefndina til að vinna gegn kynbundnum launamun, en hana vantar 75 milljónir til að ljúka verkinu. Innlent 16.9.2007 17:57
Stjórnvöld flýta ekki fyrir vistvæðingu bílaflotans Stjórnvöld þurfa að gera gangskör í að breyta gjöldum vistvænna bíla, segir framkvæmdastjóri Orkuseturs. Sýnishorn af vistvænustu bílum landsins eru til sýnis í Perlunni um helgina. Innlent 15.9.2007 17:20
Sendiskrifstofa og rammasamningur Færeyingar opnuðu í dag sendiskrifstofu í Reykjavík. Við það tækifæri var undirritaður rammasamningur um samstarf Íslendinga og Færeyinga í heilbrigðismálum. Erlent 15.9.2007 18:25
Ísland ekki lengur í alfaraleið Ísland verður síður í alfaraleið í sjóflutningum þegar Norð-vestur siglingaleiðin er að verða greiðfær skipum. Þetta segir íslenskur skipulagsfræðingur og segir að bráðunin íss á svæðinu sé töluvert á undan áætlun. Erlent 15.9.2007 18:20
Hluthafar Storebrand sagðir styðja kaup á SPP Fulltrúar hluthafa í norska tryggingafyrirtækinu Storebrand eru sagðir styðja kaup félagsins á sænska tryggingafélagið SPP, líftryggingahluta Handelsbanken. Skrifað var undir yfirlýsingu um kaupin í byrjun mánaðar. Líklegt þykir að Kaupþing, sem er stærsti hluthafi Storebrand, sé fylgjandi kaupunum. Viðskipti innlent 15.9.2007 10:38
Norðvestursiglingaleiðin opin Norðvestursiglingaleiðin yfir norðurpólinn er greiðfær skipum í fyrsta sinn síðan eftirlit með henni hófst fyrir tæpum þrjátíu árum. Um er að ræða beinustu siglingaleiðina milli Asíu og Evrópu. Erlent 15.9.2007 09:53
Ársyfirdráttur 400 manna gæti borgað lúxusferð Yfirdráttarvextir rétt rúmlega fjögur hundruð einstaklinga þarf til að standa undir áætluðum kostnaði við lúxusferð Landsbankans til Ítalíu. Tvö hundruð útvaldir viðskiptavinir bankans flugu til Ítalíu í morgun. Innlent 14.9.2007 17:48
Formaður menntaráðs í skólaakstri Formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, Júlíus Vífill Ingvarsson, er stjórnarformaður rútufyrirtækis sem hefur hundruð milljóna króna samning um skólaakstur fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu. Júlíus segir skólaakstur aldrei koma inn á borð menntaráðs og hagsmunaárekstur því ekki fyrir hendi. Innlent 14.9.2007 17:41
Úrvalsvísitalan lækkaði í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa lækkaði talsvert í Kauphöllinni í dag en það er í takt við þróun á hlutabréfamörkuðum í Evrópu en gengi bréfa í fjármálafyrirtækjum lækkaði nokkuð eftir að breska fasteignalánafyrirtækið greindi frá því að það hefði nýtt sér lánaheimild Englandsbanka. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,49 prósent og stendur í 7.772. Gengi bréfa í FL Group lækkaði mest, eða um 2,99 prósent. Viðskipti innlent 14.9.2007 16:30
Kínverjar hækka stýrivexti Kínverski seðlabankinn hækkaði stýrivexti sína um 27 punkta í dag með það fyrir augum að draga úr verðbólgu, sem mædlist 6,5 prósent í síðasta mánuði og hefur ekki verið meiri í 11 ár. Vextirnir standa nú í 7,29 prósentum. Þetta er fimmta stýrivaxtahækkun bankans á árinu. Greinendur bjuggust almennt við hækkuninni. Viðskipti erlent 14.9.2007 14:51
Hlutabréf lækka í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð eftir opnun fjármálamarkaða vestanhafs í kjölfar talna um vöxt í smásöluverslun þar í landi í ágúst. Tölurnar ollu fjárfestum nokkrum vonbrigðum. Smásöluverslu jókst um 0,3 prósent en vonast var til að hann yrði helmingi meiri. Aukin bílasala í síðasta mánuði miðað við síðasta ár vegur hins vegar á móti. Viðskipti erlent 14.9.2007 14:01
Vöxtur í smásöluverslun undir spám Smásöluverslun í Bandaríkjunum jókst um 0,3 prósent á milli mánaða í ágúst, samkvæmt nýbirtum tölum bandaríska viðskiptaráðuneytisins. Til samanburðar nemur aukningin 0,5 prósentum í júlí. Þetta er nokkru undir væntingum greinenda, sem telja að samdráttur á fasteignamarkaði vestanhafs hafi snert meira við einkaneyslu en talið hefur verið. Viðskipti erlent 14.9.2007 12:49
Gengi fjármálafyrirtækja lækkar Gengi hlutabréfa hefur lækkað talsvert í Kauphöllinni í dag. Þetta er í takti við þróunina á hlutabréfamörkuðum í Evrópu. Fjármálafyrirtæki það leiða lækkanalestina líkt og hér. Gengi bréfa í FL Group hefur lækkað mest, eða um 2,4 prósent, en bréf í Exista fylgir fast á eftir. Einungis gengi bréfa í fjórum félögum hefur hækkað í dag, mest í 365. Viðskipti innlent 14.9.2007 12:02
Vinnslustöðin óskar eftir afskráningu Stjórn Vinnslustöðvarinnar telur félagið ekki uppfylla lengur skráningarskilyrði um fjölda hluthafa og dreifða eignaraðild og hefur farið þess á leit við Kauphöllina að hlutabréf félagsins verði tekin af markaði. Afskráningin var samþykkti á stjórnarfundi Vinnslustöðvarinnar í gær. Viðskipti innlent 14.9.2007 11:00
Hlutabréf lækka í Evrópu Gengi hlutabréfa hefur lækkað nokkuð á hlutabréfamörkuðum í Evrópu í dag þrátt fyrir ágæta hækkun í Bandaríkjunum í gærkvöldi og væna hækkun í Japan í morgun. Ljóst er að óróleiki á fjármálamarkaði bítur enn í fasteignalánafyrirtæki. Skýringin fyrir lækkuninni í Bretlandi liggur í því að stærsta fasteignalánafyrirtæki landsins nýtti sér neyðarlán frá Englandsbanka. Fyrirtækið sendi frá sér afkomuviðvörun í framhaldinu og gengi bréfa þess hrundi. Viðskipti erlent 14.9.2007 08:40
Ólafur krækti í Goldman Sachs Geysir Green Energy er langtímafjárfesting að sögn Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Hann telur Goldman Sachs besta erlenda fjárfesti sem völ er á. Ólafur Jóhann Ólafsson, fjárfestir og rithöfundur, hafði milligöngu um komu bandaríska fjárfestingarbankans Goldman Sachs inn í fjárfestahóp Geysis Green Energy. Viðskipti innlent 14.9.2007 08:30
Fjárfestar glaðir á Wall Street Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð á fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum í dag eftir að Countrywide Financial, stærsta fasteignalánafyrirtæki landsins, greindi frá því að það hefði tryggt sér fjármögnun upp á 12 milljarða dala, jafnvirði 767 milljarða íslenskra króna. Gengi bréfa í skyndibitakeðjunni McDonald's og bílaframleiðandanum General Motors rauk í methæðir. Viðskipti erlent 13.9.2007 21:38
Færeyingar leiddu hækkun í Kauphöllinni Úrvalsvísitalan hækkaði lítillega í Kauphöllinni í dag. Hækkunin nemur 0,25 prósentustigum og endaði hún í 7.889 stigum. Gengi bréfa í Föroya banka hækkaði langmest allra félaga í Kauphöllinni, eða um 3,20 prósent. Landar færeyinganna í olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum fylgdi fast á eftir. Gengi bréfa í Eik banka hækkaði sömuleiðis, en nokkru minna. Viðskipti innlent 13.9.2007 15:35
Icelandair semur við Rolls-Royce Breski vélaframleiðandinn og þjónustufyrirtækið Rolls-Royce greindi frá því í dag að það hefði gert þjónustusamning við Icelandair til næstu fimm ára um endurnýjun og viðhald á flugvélum fyrirtækisins. Virði samningsins nemur 100 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði 6,4 milljarða króna. Viðskipti innlent 13.9.2007 15:05
Englandsbanki veitir fé inn á markaðinn Englandsbanki veitti 4,4 milljörðum punda, jafnvirði 571 milljarðs íslenskra króna, inn í breskt efnahagslíf í dag í því augnamiði að veita fjármálafyrirtækjum ódýrara fjármagn en gengur og gerist til að draga úr óróleika á fjármálamarkaði. Mervyn King, seðlabankastjóri Bretlands, lagði áherslu á það í ræðu sinni í gær að bankinn ætli ekki að bjarga fjármálafyrirtækjum sem hafi lent illa í óróleikanum. Viðskipti erlent 13.9.2007 13:50
Óróleikinn fjármálafyrirtækjum að kenna Fasteignalánafyrirtæki í Bandaríkjunum geta kennt sér sjálf um skellinn sem þau hafa orðið fyrir síðustu vikurnar. Þetta segir Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna. Hann segir fyrirtækin hafa sýnt óábyrgar lánveitingar og telur að vegna viðskipta þeirra muni það taka undirmálslánamarkaðinn allt upp undir tvö ár að jafna sig. Viðskipti erlent 13.9.2007 13:29
Kortaveltumet í ágúst Kortavelta var aldrei meiri en í síðasta mánuði en þá nam hún 25,5 milljörðum króna, samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans. Greiningardeild Glitnis segir mikinn vöxt hafa hlaupið í einkaneyslu og stefni í að hún verði myndarlegum á þessum þriðja fjórðungi. Viðskipti innlent 13.9.2007 11:42