Kauphöllin
22 23 24 25 26 27 28 29 30 … 79 ›
Spakur Invest naut góðs af styrkingu Bandaríkjadals Ágjöf á fjármálamörkuðum vegna óvissu í alþjóðlegu efnahagslífi hefur leitt þess að hlutabréfasjóðir, innlendir sem erlendir, hafa skilað tapi að undanförnu. Fjárfestingasjóðurinn Spakur Invest, sem fjárfestir einkum í bandarískum hlutabréfum, státaði af skástu ávöxtun allra innlendra hlutabréfasjóða sem fjárfesta aðeins erlendis. Ávöxtun sjóðanna frá áramótum var neikvæð um 13 til 31 prósent. Á sama tíma lækkaði íslenska úrvalsvísitalan um 27 prósent. Innherji 26.10.2022 11:00
Skuldabréfasjóðir færa niður eignir um milljarða vegna áforma um slit á ÍL-sjóði Stærstu skuldabréfasjóðir landsins, sem eru opnir öllum fjárfestum og margir hverjir með stórt hlutfall eignasafnsins bundið í íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum, hafa nú þegar fært niður virði eigna sinna um marga milljarða króna eftir að fjármálaráðherra boðaði aðgerðir til að slíta ÍL-sjóði, samkvæmt greiningu Innherja. Mestu munar um tæplega fimm prósenta gengislækkun 20 milljarða ríkisskuldabréfasjóðs í stýringu Íslandssjóða í einu vetfangi sem þýddi niðurfærslu á virði eigna hans um meira en 900 milljónir. Innherji 26.10.2022 08:15
Selur hlut sinn í Orkufélaginu fyrir tæplega þrjá milljarða SKEL hefur samþykkt kauptilboð frá færeysku félagi í allan 48,3 prósenta hlut íslenska fjárfestingafélagsins í S/P Orkufélaginu fyrir jafnvirði um 2,8 milljarða króna. Orkufélagið er eignarhaldsfélag utan um P/F Magn sem starfar í Færeyjum. Innherji 25.10.2022 16:52
Ráðherra „mótmælir harðlega“ að slit á ÍL-sjóði líkist greiðslufalli ríkissjóðs Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist „mótmæla harðlega“ þeirri skoðun sem stjórnarmaður í lífeyrissjóði hefur sett fram að ef ÍL-sjóður, áður gamli Íbúðalánasjóðurinn, verði settur í slitameðferð jafngildi það greiðslufalli ríkissjóðs sem er í ríkisábyrgð fyrir skuldbindingum sjóðsins. Innherji 25.10.2022 08:36
Spá því að hagnaður bankanna minnki talsvert þrátt fyrir auknar vaxtatekjur Útlit er fyrir að afkoma stóru bankanna tveggja sem skráðir eru á hlutabréfamarkað muni dragast umtalsvert saman á þriðja ársfjórðungi eða um 16 til 29 prósent. Samdrátturinn mun eiga sér stað þrátt fyrir að vaxtatekjur muni aukast verulega vegna hærra vaxtastigs og aukinna útlána. Innherji 25.10.2022 07:00
Verðið á íbúðabréfum fellur um 16 prósent vegna áforma um slit á ÍL-sjóði Verðið á íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum lækkaði verulega á markaði í morgun í fyrstu viðskiptum sem hafa átt sér stað með bréfin, sem eru á sérstökum athugunarlista Kauphallarinnar, eftir að fjármálaráðherra boðaði tillögur um hvernig megi leysa upp ÍL-sjóð síðasta fimmtudag. Miðað við verð bréfanna í viðskiptunum, sem voru aðeins upp á samtals 300 þúsund krónur, má áætla að markaðsvirði útistandandi íbúðabréfa hafi lækkað um samtals meira en 100 milljarða króna. Innherji 24.10.2022 11:49
„Hæpið“ að eignaréttindi kröfuhafa séu skert verði ÍL-sjóður settur í þrot Sérstök lög sem hefðu það að markmiði að knýja fram skiptameðferð á ÍL-sjóði, þar sem í engu væri samt haggað ríkisábyrgð á eftirstöðvum skulda sjóðsins, er mun „vægari“ aðgerð en það svigrúm sem löggjafanum hefur verið heimilað af dómstólum til að setja notkun og ráðstöfun eiga skorður vegna almannahagsmuna. Innherji 24.10.2022 06:00
Verðlagning flestra félaga komin undir langtímameðaltal eftir miklar lækkanir Hlutabréfaverð hérlendis og alþjóðlega hefur lækkað skarpt á einu ári. Sjóðstjóri segir að V/H hlutfall flestra félaga á Aðallista í Kauphöllinni sé komið undir langtímameðaltal, en flest fyrirtækin hafa lækkað talsvert á þennan mælikvarða sem gefur til kynna að þau séu ódýrari en fyrir einu ári, samkvæmt samantekt Innherja. Innherji 23.10.2022 12:01
Fjármálaráðherra segir Þorbjörgu Sigríði fara með rangt mál Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttir þingmann Viðreisnar ranglega halda því fram að hann hafi lengi borið ábyrgð á málefnum ÍL-sjóðs. Hið rétta sé að málið hafi komið í hans hlut árið 2020 og hann sé að leggja fram góða lausn, sem geti sparað tugi milljarða, nái tillagan fram að ganga. Innlent 23.10.2022 10:53
VÍS hefur minnkað vægi skráðra hlutabréfa um nærri þriðjung Tryggingafélagið VÍS hefur á síðustu misserum minnkað verulega um stöður sínar í skráðum hlutabréfum í Kauphöllinni samtímis versnandi árferði á hlutabréfamörkuðum. Tvær stærstu fjárfestingareignir félagsins eru í dag eignarhlutir í óskráðum félögum. Innherji 22.10.2022 14:18
Fjármálaráðherra hafi „kallað fram óþarfa óvissu á markaði“ Framkvæmdastjóri eins stærsta lífeyrissjóðs landsins, sem eru langsamlega stærstu eigendur krafna á hendur ÍL-sjóði, gagnrýnir harðlega tímasetningu Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra þegar hann kynnti tillögur sínar um hvernig gera megi upp eignir og skuldir sjóðsins eftir lokun markaða í gær. Ávinningur ríkissjóðs af aðgerðunum muni jafnframt á móti þýða tap fyrir lífeyrissjóði. Innherji 21.10.2022 16:04
Óvissa um uppgjör ÍL-sjóðs setur „allan skuldabréfamarkaðinn í uppnám“ Tillögur fjármálaráðherra um hvernig leysa megi upp ÍL-sjóð voru „nokkuð óvænt útspil“ en verði það gert á grundvelli svonefndrar einfaldrar ábyrgðar ríkissjóðs, þar sem tæknilega er hægt að greiða upp skuldabréf sjóðs á pari í dag frekar en yfir líftíma þeirra allt til ársins 2044, mun það þýða „umtalsvert“ tap fyrir þá sem halda á bréfunum, að sögn sérfræðings á skuldabréfamarkaði. Langsamlega stærstu eigendur skuldabréfanna eru lífeyrissjóðir. Innherji 21.10.2022 13:31
Brim fjárfestir í Polar Seafood í Danmörku fyrir 12 milljarða Íslenska sjávarútvegsfyrirtækið Brim hf. hefur gengið frá samkomulagi um kaup á hlutabréfum í danska félaginu Polar Seafood Denmark A/S fyrir 625 milljónum danskra króna, um 12 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 21.10.2022 13:01
Lífeyrissjóðir þurfa að „taka á sig högg“ vegna slita á ÍL-sjóði Fá sjónarhóli ríkisins er skiljanlegt að vilja leysa upp ÍL-sjóð og stöðva þá blæðingu úr ríkisfjármálunum vegna hans sem annars er fyrirsjáanleg næstu tvo áratugina. Lánardrottnar ÍL-sjóðs, að langstærstum hluta lífeyrissjóðir en einnig verðbréfasjóðir, fjármálafyrirtæki og einstaklingar, munu þurfa að taka á sig högg hvort sem gengið verður til samninga um uppgjör skuldanna eða sjóðnum slitið einhliða af ríkinu í kjölfar lagasetningar. Þetta segir aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Innherji 21.10.2022 12:04
Farþegatekjur Icelandair 54 milljarðar og aldrei verið meiri á einum fjórðungi Icelandair skilaði rekstrarhagnaði (EBIT) upp á 92,7 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 12,3 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi og jókst hann um 11,2 milljarða frá sama tímabili í fyrra. Forstjóri flugfélagsins segir að með því að skila svo góðu uppgjöri á þessum tímapunkti á grundvelli sterkrar tekjumyndunar sýni „augljóslega að viðskiptalíkan félagsins sé að sanna gildi sitt.“ Innherji 20.10.2022 16:21
Jón Skaftason nýr stjórnarformaður Sýnar Jón Skaftason, forsvarsmaður Gavia Invest, er nýr stjórnarformaður Sýnar. Þrír af fimm stjórnarmönnum eru hluti af hópi einkafjárfesta sem hafa eignast stóran hlut í fyrirtækinu. Hluthafafundur fór fram í morgun. Viðskipti innlent 20.10.2022 12:24
Miklar verðhækkanir frá birgjum Haga setur „pressu á framlegð“ Forstjóri Haga sagði að það séu miklar og stöðugar verðhækkanir frá heildsölum og framleiðendum. „Enn sem komið er hefur ekkert borið á lækkunum frá birgjum,“ sagði hann. Það sé enda mikil verðbólga alþjóðlega. Innherji 20.10.2022 11:51
Sækir yfir tvo milljarða til íslenskra fjárfesta fyrir skráningu á markað Málmleitarfyrirtækið Amaroq Minerals, sem hefur meðal annars uppi stórtæk áform um gullvinnslu á Grænlandi, hefur klárað hlutafjáraukningu frá breiðum hópi íslenskra fjárfesta og sjóða í lokuðu hlutafjárútboði sem hefur staðið yfir síðustu daga samtímis erfiðum aðstæðum á mörkuðum. Í kjölfarið verður félagið skráð á markað á núverandi ársfjórðungi í Kauphöllinni hér á landi. Innherji 19.10.2022 14:30
Áformar að styrkja fjárhagsstöðuna eftir helmingslækkun á Marel Eyrir Invest, langsamlega stærsti hluthafi Marels, vinnur nú að því með ráðgjöfum að styrkja eiginfjárstöðu sína frekar þar sem til greina kemur að fá inn nýtt hlutafé í félagið, samkvæmt heimildum Innherja. Stjórnarformaður fjárfestingafélagsins segir að verið sé að „skoða fjármögnun“ Eyris en telur að sama skapi að hlutabréfaverð Marels sé búið að lækka „óeðlilega“ mikið að undanförnu. Innherji 19.10.2022 07:04
Verðmat Ölgerðarinnar hækkaði um níu prósent eftir firnasterkan ársfjórðung Verðmat á Ölgerðinni hækkar um níu prósent meðal annars vegna þess að tekjuvöxtur var langt umfram væntingar á síðasta ársfjórðungi eftir firnasterkt uppgjör. Verðmat Jakobsson hljóðar nú upp á 13,7 krónur á hlut og er 26 prósent yfir markaðsgengi. Innherji 18.10.2022 12:01
Innlausnir í hlutabréfasjóðum drifnar áfram af útflæði fjárfesta hjá Akta Meirihluti stærstu hlutabréfasjóða landsins hafa horft upp á hreint útflæði fjármagns á árinu samhliða því að fjárfestar flýja áhættusamari eignir á tímum þegar óvissa og miklar verðlækkanir hafa einkennt hlutabréfamarkaði. Úttekt Innherja leiðir í ljós að innlausnir á fyrri árshelmingi voru einkum drifnar áfram af sölu hlutabréfafjárfesta hjá stærsta sjóðnum í stýringu Akta. Innherji 18.10.2022 07:01
Stjórnarformaðurinn hættur hjá Klöppum Linda Björk Ólafsdóttir hefur tilkynnt um úrsögn sína úr stjórn Klappa grænna lausna og hefur hún þegar tekið gildi. Linda Björk var formaður stjórnar félagsins. Viðskipti innlent 17.10.2022 11:44
Reynir reynir ekki aftur við stjórnarsæti Reynir Grétarsson, aðaleigandi Gavia Invest, ætlar ekki aftur að bjóða sig fram til stjórnar Sýnar þegar kosið verður á ný í næstu viku. Reynir náði ekki kjöri er kosið var fyrr í haust. Viðskipti innlent 15.10.2022 14:34
Eignamarkaðir ættu að njóta þess að Ísland sé í öfundsverðri stöðu Sjóðstjóri fjárfestingasjóðsins Algildi segist ekki vera „mjög bjartsýnn“ á erlenda eignamarkaði um þessar mundir. Staðan hérlendis sé mun betri. Ísland sé í öfundsverðri stöðu og því ætti eignamörkuðum hérlendis að vegna betur en margra annarra landa sem standi verr að vígi. Innherji 15.10.2022 11:00
Gangi ekki að lykilstarfsmanni sé meinaður aðgangur að tilteknum lykilupplýsingum Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir að það gangi ekki að framkvæmdastjóri fjármála fyrirtækisins sé meinaður aðgangur að tilteknum fjárhagslegum og rekstrarlegum upplýsingum fyrirtækisins, líkt og raunin er vegna fjölskyldutengsla framkvæmdastjórans við stjórnarformann Sýnar. Viðskipti innlent 13.10.2022 21:07
Hættir við framboð í stjórn Sýnar vegna afarkosta OR Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Sýnar, hefur dregið framboð sitt til stjórnar félagsins til baka. Hún segir ástæðuna vera afarkosti sem OR setti eiginmanni hennar vegna meintra hagsmunaárekstra í tengslum við stjórnarsetu hennar. Viðskipti innlent 13.10.2022 20:26
30 prósenta vöxtur á milli ára hjá Iceland Spring Framleiðsla á vatninu Iceland Spring jókst um 30 prósent á milli ára á fyrri helmingi ársins. Framleiddum einingum fjölgaði úr 12 milljónum á fyrri helmingi ársins í fyrra í 16 milljónir á fyrri helmingi ársins í ár. Þetta sagði forstjóri Ölgerðarinnar á kynningarfundi þegar uppgjör fyrirtækisins var kynnt eftir lok markaðar í gær. Innherji 12.10.2022 14:25
Síminn braut ekki samkeppnislög með sölu enska boltans Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi ekki brotið gegn ákvæða sáttar við Samkeppniseftirlitið með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónustu, enska boltann á Símanum Sport, í svonefndum Heimilispakka. Viðskipti innlent 12.10.2022 10:53
Fordæmalausar verðhækkanir frá birgjum Ölgerðarinnar Ölgerðinni berast tilkynningar um verðhækkanir frá erlendum birgjum „í gríð og erg“. Þær eru „fordæmalausar og hlaupa stundum á tugum prósenta.“ Þetta sagði forstjóri fyrirtækisins á uppgjörsfundi eftir lokun markaða í gær þegar afkoman á fyrri helmingi ársins var kynnt og nefndi að verðhækkanirnar myndu leiða út í verðlag. Innherji 12.10.2022 10:47
Bandaríski risinn Vanguard stækkar stöðu sína í Arion Sjóðastýringarfélagið Vanguard, sem keypti sig inn í fimmtán íslensk fyrirtæki í Kauphöllinni um miðjan síðasta mánuð, hefur á síðustu dögum stækkað nokkuð eignarhlut sinn í Arion banka. Fimm vísitölusjóðir í stýringu Vanguard eru núna komnir í hóp með tuttugu stærstu hluthöfum íslenska bankans og er félagið um leið orðið stærsti einstaki erlendi fjárfestirinn í eigendahópnum. Innherji 12.10.2022 09:01