Dýr

Metfjöldi fíla drepnir í Srí Lanka
Minnst 361 fíll drapst í Srí Lanka í fyrra og hefur sú tala aldrei verið hærri.

Lundinn sækir sér prik til að klóra sér
Erpur Snær Hansen hjá Náttúrustofu Suðurlands og félagar hafa komist að því að lundinn virðist fær um að nota prik til að klóra sér.

Prjóna fyrir móðurlaus dýr
Hópur fólks ætlar að bregðast við ákalli dýraverndunarsamtaka í Ástralíu og hittast á Kex Hosteli í Reykjavík í kvöld og prjóna poka fyrir dýr sem eru móðurlaus eftir gróðureldana í Ástralíu.

Garnaveiki greinist í Húnavatnshreppi
Garnaveiki greindist í kind á bænum Reykjjum í Húnavatnshreppi skömmu fyrir jól.

Hænan Hildur tekin af lífi í Húsdýragarðinum
Hænan Hildur var í dag tekin af lífi í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum eftir að hún hafði velkst um Langholtshverfið í nokkra klukkutíma. Hildur hafði villst úr garðinum sínum en eigandi hennar, Vífill Sigurðsson, er veðurtepptur í Noregi og gat því ekki komið henni til bjargar.

Vilja bjarga villikisum
Um fimmtán hundruð manns hafa skrifað undir undirskriftarlista til stuðnings villiköttum. Formaður Dýraverndarsambands Íslands segir mikilvægt að ráðherra setji reglugerð um að fólki sé kleift að hjálpa þeim í stað þess að aflífa þá.

Lést eftir árás hákarls
Ástralskur kafari lést í dag nærri Cull-eyju í Esperance í Vestur-Ástralíu eftir að hafa orðið fyrir árás hvítháfs.

Ríflega hundrað hross drápust í hamfaraveðrinu
Þetta eru mestu afföll á hrossum í áratugi.

Myndband af íslenskum lunda að klóra sér með priki vekur heimsathygli
Myndband sem vísindamenn náðu af íslenskum lunda að klóra sér með priki í Grímsey á síðasta ári hefur vakið heimsathygli eftir að vísindagrein um notkun lunda á tólum var birt 30. desember síðastliðinn. Atferli lundans þykir benda til þess að sjófuglar noti tól.

Björguðu hundi af flæðiskeri í Óslandi
Liðsmenn Björgunarfélags Hornafjarðar björguðu hundi af flæðiskeri í Óslandi rétt fyrir hádegið í dag.

Hvítabjörninn aflífaður utan við Longyearbyen
Hvítabjörninn, sem heimsótt hafði aðalbæ Svalbarða, Longyearbyen, nokkrum sinnum yfir jól og áramót, var aflífaður í gær, nýársdag, samkvæmt ákvörðun sýslumannsins á Svalbarða.

Simpansar og górillur drápust í eldsvoða
Eldsvoði á nýársnótt varð yfir 30 dýrum í Krefeld-dýragarðinum í Þýskalandi að bana á nýársnótt. Lögreglan telur að flugeldar gætu hafa valdið eldinum.

„Okkar samfélagslega ábyrgð að reyna að minnka þessar þjáningar“
Þóra Jónasdóttir, dýralæknir, segir öll dýr að eðlisfari hrædd við skot og læti.

Myndir náðust af villtum Síberíutígrisdýrum
Þrír tígrishvolpar voru við leik þegar falin myndavél festi þá á filmu þann 2. nóvember síðastliðinn.

Ull af feldfé er mjög vinsæl
Ull af íslensku feldfé er vinsæl hjá prjónakonum landsins en það þykir einstaklega gott að vinna úr henni allskonar handverk.

Elsti nashyrningur heims allur
Fausta drapst á Ngorongoro-verndarsvæðinu í Tansaníu á föstudaginn.

Vara við hreindýrum í myrkrinu á Suðausturlandi
Töluvert er nú af hreindýrum við vegi á Suðausturlandi, sérstaklega á svæðinu frá Breiðdalsvík og suður að Hvalnesskriðum.

Forsetaembættið hjúkrar fálkaunga til heilsu
Forsetinn segir mikilvægt að fara gætilega í kringum rándýrið.

Nashyrningskálfur kom í heiminn á aðfangadagskvöld
Fátítt er að svartir nashyrningar fæðist í haldi. Tegundin er talin í bráðri útrýmingarhættu.

Breskar hersveitir flytja nashyrninga til Malaví
Breskar hersveitir hjálpuðu til við að flytja svarta nashyrninga, sem eru í mikilli útrýmingarhættu frá Suður Afríku til Malaví til að vernda þá frá veiðiþjófum.

Bábiljan um íslenzka hestinn
Það eru mörg dæmi um það, að meðferð útigangshrossa hefur verið misjöfn, eftir bændum, og oft aðfinnsluverð.

Einangrun hunda og katta stytt úr fjórum í tvær vikur
Tími sem hundar og kettir þurfa að vera í einangrun eftir innflutning til landsins verður styttur úr fjórum í tvær vikur.

Örtröð í hundasnyrtingu fyrir jólin
Sífellt fleiri eiga hunda og finnst að þeir eigi ekki síður að vera hreinir og fínir um jólin en aðrir í fjölskyldunni.

Ef gefa á dýr í jólagjöf þarfnast það undirbúnings og ábyrgðar
Formaður dýraverndarsambands Íslands varar við því að fólk gefi dýr óvænt í jólagjöf. Slíkt þurfi að undirbúa vel. Dýrin séu skyni gæddar verur sem þurfi að taka ábyrgð á.

Ást við fyrstu sýn segir Ólafur Ragnar um Dorrit og klónið Samson
Ólafar Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, birti í kvöld myndskeið á Twitter þar sem sjá má eiginkonu hans, Dorrit Mooussaieff taka á móti Samson, klóni hundsins Sáms. Vel fór á með þeim Dorrit og Samson.

Þola margra daga flutninga í kulda
Skordýr og köngulær sem koma hingað til lands með vörum frá heitari löndum geta mörg þolað margra daga flutninga í töluvert meiri kulda en þau eiga að venjast.

Sjö svartar köngulær á aðventunni
Sjö svartar köngulær með rauðum blettum hafa borist Náttúrufræðistofnun til skoðunar á síðustu vikum.

„Fólk er grátandi og miður sín þarna fyrir norðan“
Hallgerður Hauksdóttir, formaður Dýraverndarsamband Íslands, biður þá sem gagnrýnt hafa bændur á Norðurlandi sem misstu hesta í óveðrinu sem geisaði í síðustu viku, að gæta orða sinna

Stormur í vatnsglasi og „á einhverjum misskilningi byggt“
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir að bænum hafi borið skylda til að taka athugasemdir Vegan-búðarinnar vegna hestvagnaferða í jólaþorpi bæjarins til umfjöllunar. Takmörkun á ferðunum á laugardag hafi verið til málamiðlunar.

Flutningur fjögurra hrúta tilkynntur til lögreglu
Matvælastofnun hefur óskað eftir lögreglurannsókn á meintum flutningi fjögurra lambhrúta frá Vestfjörðum til Norðurlands eystra.