Slökkvilið
1 2 3 4 5 6 7 8 … 55 ›
Engin útköll vegna vatnsleka í nótt Nóttin var róleg hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og engin fleiri útköll vegna leka. Í tilkynningu frá slökkviliðinu kemur fram að síðasta sólarhringinn hafi þeir farið í átta útköll á dælubíla. Flest verkefnin voru leyst á nokkrum klukkustundum en um var að ræða bæði smáelda og vatnsleka. Innlent 20.8.2024 07:40
Óvenjumörg útköll vegna vatnsleka á höfuðborgarsvæðinu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur farið í óvenjulega mörg útköll í kvöld vegna vatnsleka. Það vekur athygli að allir lekarnir nema eitt hafi verið í þeim hverfum höfuðborgarsvæðisins þar sem skrúfað hefur verið fyrir heita vatnið vegna vinnu Veitna við tengingu á Suðuræð 2. Innlent 20.8.2024 00:15
Kom að heimilinu í ljósum logum Heimili Helgu Skowronski og fjölskyldu hennar varð fyrir stórtjóni í seinasta mánuði þegar eldur kviknaði í húsi þeirra. Talið er að eldurinn hafi átt upptök sín í fitubakka undir útigrilli. Helga var nýlega byrjuð að koma sér fyrir í húsinu og segir erfitt að lýsa tilfinningunni sem fylgdi því að horfa upp á framtíðarheimilið í rjúkandi rúst. Innlent 18.8.2024 10:00
Eru að slökkva í síðustu glæðunum í Somerset Slökkviliðiðið í London hefur nú náð tökum á eldi í Somerset húsi en tilkynnt var um eld þar um hádegisbil í dag. Á vef breska ríkisútvarpsins segir að um 125 slökkviliðsmenn hafi verið kallaðir að vettvangi í dag til að slökkva eldinn. Slökkvilið vinnur nú að því slökkva í síðustu glæðunum í þaki hússins. Erlent 17.8.2024 20:35
Pottur á eldavél talinn upptök brunans á Amtmannsstíg Rannsókn lögreglu bendir til þess að kviknað hafi í potti á eldavél á neðri hæð þegar eldur kom upp í húsi á Amtmannsstíg á þriðjudag. Ekkert liggur fyrir um dánarorsök íbúa á sjötugsaldri sem lést eftir eldsvoðann. Innlent 16.8.2024 12:23
Þakklát fyrir þrjósku hundsins Margrét Víkingsdóttir var sofandi í íbúð sinni við Amtmannsstíg 6 þegar eldur kviknaði á neðri hæðinni. Hún slapp vel frá eldsvoðanum en sér á eftir nágranna sínum á sjötugsaldri sem lést í brunanum. Hún varð fyrst vör við eldinn eftir að hundurinn hennar vakti hana í morgunsárið. Innlent 14.8.2024 00:06
Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Karlmaður á sjötugsaldri sem var í íbúðarhúsnæði við Amtmannsstíg í miðborg Reykjavíkur þegar eldur kviknaði í morgun hefur verið úrskurðaður látinn. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 13.8.2024 17:28
Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn var fluttur á slysadeild eftir bruna í íbúðarhúsnæði við Amtmannsstíg í morgun. Aðstoðarvarðstjóri segir mikinn og þykkan reyk hafa verið í íbúðinni þegar viðkomandi fannst. Innlent 13.8.2024 11:06
Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg Einn var fluttur á slysadeild vegna bruna í húsi á Amtmannsstíg 6. Allt tiltækt lið slökkviliðs er á vettvangi en búið er að slökkva eldinn. Slökkvilið vinnur nú að því að reykræsta. Innlent 13.8.2024 08:35
Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Hringvegurinn er lokaður við Hafnarskóg rétt sunnan við Borgarnes eftir að eldur kviknaði í stýrishúsi vörubíls. Slökkvilið hefur ráðið niðurlögum eldsins en áfram er unnið að því að þrífa veginn og fjarlægja ökutækið. Bílstjóra sakaði ekki. Innlent 12.8.2024 19:17
Eldur í flugskýli í Múlakoti í nótt Í nótt barst lögreglunni á Suðurlandi tilkynning um eld í gömlu flugskýli í Múlakoti. Vel gekk að ráða niðurlögum hans. Innlent 11.8.2024 12:21
Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Slökkviliðsmenn æfðu sig í að kæla hraun með nýjum kröftugum dælum frá Bretlandi við Svartsengi í dag. Vatni er meðal annars dælt úr Bláa lóninu á margföldum krafti á við dælur slökkviliðsins. Innlent 8.8.2024 19:41
Eldur í einu herbergi í íbúðarhúsnæði á Hallgerðargötu Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu sinnti í hádeginu útkalli vegna elds á Hallgerðargötu í Reykjavík. Tilkynning barst um eld í íbúðarhúsnæði klukkan 12. Slökvistarf gekk hratt og örugglega fyrir sig. Ekki þurfti að flytja neinn á slysadeild. Innlent 8.8.2024 12:19
Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Maður var handtekinn vegna elds í ruslagámi í miðborg Reykjavíkur sem lögregla segir að hafi mátt litlu muna að bærist í nærliggjandi hús. Slökkviliði tókst að slökkva fljótt í gámnum. Innlent 3.8.2024 07:22
Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Bílvelta varð við Löngulínu í Sjálandshverfi í Garðabæ í dag. Einn var fluttur á sjúkrahús til skoðunar en áverkar viðkomandi eru ekki taldir alvarlegir. Innlent 31.7.2024 23:44
Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst útkall á ellefta tímanum í kvöld um að bíll hefði hafnað utan vegar á Reykjavíkurvegi. Innlent 31.7.2024 22:29
Hjólhýsi sem búið var í að engu orðið Allar tiltækar slökkviliðsstöðvar voru kallaðar út vegna elds í Mosfellsbæ. Eldur kviknaði í hjólhýsi og læsti sér í nærliggjandi byggingu. Ekki er vitað hversu mikið tjón varð af en búið er að slökkva eldinn að mestu leyti. Innlent 31.7.2024 11:29
Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Eldur sem kviknaði í bílstjórahúsi flutningabíls um klukkan sjö í kvöld dreifði sér í kassa bílsins, en í honum voru fjörutíu tonn af þurru fiskafóðri. Að sögn slökkviliðsmanns stórskemmdist bíllinn sem og vagninn. Innlent 30.7.2024 22:30
Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Slökkviliðinu í Árnessýslu barst útkall á áttunda tímanum í kvöld eftir að eldur hafði kviknað í mannskapshúsi flutningabíls á Þrengslavegi. Innlent 30.7.2024 20:01
Hjólhýsið fuðraði upp Hjólhýsi í Löngumýri í Skagafirði brann til kaldra kola í dag. Slökkviliðsstjóri segir milid að ekki hafi farið verr enda enginn í hýsinu þegar eldur kviknaði og engin önnur tjöld eða hjólhýsi í hættu. Innlent 30.7.2024 18:37
Tveir fluttir á bráðamóttöku eftir árekstur á Miklubraut Tveir voru fluttir á bráðamóttöku eftir árekstur á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar í Reykjavík. Innlent 25.7.2024 22:39
Eldur í gaskút á Egilsgötu Slökkviliðið þurfti að sinna útkalli í kvöld vegna elds sem kviknaði út frá gaskúti við grill á Egilsgötu í Reykjavík. Innlent 25.7.2024 19:36
Kviknaði í bíl í miðborginni Reykur stígur upp úr bílastæðahúsinu í Traðarkoti í miðborg Reykjavíkur vegna þess að eldur kom upp í bíl. Slökkviliðið er á vettvangi og er þegar búið að slökkva eldinn og unnið er að því að reykræsta húsið. Innlent 25.7.2024 18:04
Björguðu barni föstu í klósettsetu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu greindi frá því sem það kallar „sérstaklega áhugavert verkefni.“ Ungum einstaklingi tókst að festa sig í klósettsetu. Innlent 19.7.2024 11:53
Þriggja bíla árekstur undir Hamraborg Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi undir Hamraborg í Kópavogi laust eftir klukkan 15:30 í dag. Innlent 15.7.2024 15:50
Leituðu að manni í sjónum í nótt Tilkynning barst slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu um eittleytið í nótt, um að hugsanlega hefði maður farið í sjóinn við Granda í Reykjavík. Leitin stóð langt frameftir nóttu, en bar ekki árangur. Kafarar, bátar og þyrla Landhelgisgæslunnar tóku þátt í leitinni. Innlent 14.7.2024 09:53
Grunsamlegir menn reyndust dósasafnarar Tilkynnt var um tvo grímuklædda og grunsamlega aðila á rafhlaupahjólum í Kópavogi í gær eða nótt. Í dagbók lögreglu segir að þegar lögregla kom á vettvang hafi komið í ljós að mennirnir tveir voru að tína upp dósir og flöskur. Innlent 9.7.2024 06:49
Alelda bifreið við Rauðavatn Bíll valt við Rauðavatn í gær. Eftir að ökumanni var bjargað úr bílnum kviknaði í honum. Fjallað er um málið í dagbók lögreglu og færslu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Innlent 9.7.2024 06:42
Bíll í ljósum logum eftir veltu við Rauðavatn Einn er slasaður eftir að bíll valt með þeim afleiðingum að það kviknaði í honum á Suðurlandsvegi við Rauðavatn fyrir stuttu. Innlent 8.7.2024 21:03
Slökkviliðið kallað út vegna reyks á skemmtistað Næturvaktin hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var mjög erilsöm eftir því sem fram kemur í færslu á Facebook-síðu slökkviliðsins. Innlent 7.7.2024 08:48