White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri seríu gamanþáttanna White Lotus, hefur bæst í leikhóp kvikmyndarinnar Hafið er svart. Hann mun þar leika á móti Baltasar Kormáki og Ólafi Darra í spennumynd um martraðarkennda sjóferð. Bíó og sjónvarp 22.10.2026 14:49
Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Kanadíski leikstjórinn Kari Skogland mun leikstýra spennuþáttaseríunni Stóra bróðir (Vigilant á ensku) sem byggir á samnefndri glæpasögu eftir Skúla Sigurðsson og fjallar um blaðamann sem tekst á við dularfulla tálbeituglæpi. Serían hefur verið í þróun í nokkur ár, Ólafur Darri Ólafsson leiðir handritaskrifin og hefjast tökur hérlendis í lok mánaðar. Bíó og sjónvarp 22.10.2026 14:09
Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Íbúar Alberta-fylkis í Kanada höfnuðu í nótt tillögu um að hefja ferli í átt að sjálfstæði fylkisins. Úrslitin eru sigur fyrir forsætisráðherra Kanada, Mark Carney, en aðskilnaðarsinnar segja sjálfstæðisbaráttunni ekki lokið. Erlent 20.10.2026 06:42
Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Evrópusambandið, Litáen og Kanada hættu við að taka þátt í ráðstefnu um upplýsingafals eftir að fulltrúar Bandaríkjastjórnar beittu þau þrýstingi. Ástæðan var pallborðsumræður þar sem Bandaríkjunum var lýst sem upplýsingafalsógn. Erlent 8. október 2026 07:55
Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Quebecbúaflokkurinn (Parti Québécois) vann fylkiskosningarnar í Quebec-fylki í Kanada í gær. Flokkurinn vill að fylkið lýsi yfir sjálfstæði frá Kanada og hefur leiðtogi flokksins, sem verður jafnframt að öllum líkindum næsti fylkisstjóri Quebec, lofað atkvæðagreiðslu um málið á næstunni. Erlent 6. október 2026 07:18
„Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Líf húðflúrslistakonunnar Katelyn Larson breyttist gríðarlega þegar kærasti hennar til margra ára öðlaðist alheimsfrægð á örskotsstundu. Sá er leikarinn Hudson Williams sem sló algjörlega í gegn í hlutverki sínu sem Shane Hollander í hokkíástarþáttunum Heated Rivalry. Velgengnin hefur ekki bara verið dans á rósum og hafa aðdáendur ítrekað farið yfir mörk bæði Hudsons og Katelynar. Lífið 23. september 2026 16:31
Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Forsætisráðherra Noregs segist vinna að því að efla samstarf við Kanada í varnar- og norðurslóðamálum. Hann sér fyrir sér að Norðmenn, Kanadamenn og Íslendingar vinni nánar með Evrópusambandinu að málefnum norðurslóða. Erlent 21. september 2026 08:43
Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Íslendingar voru ekki einir um það að lítast ekki á blikuna þegar þeir sáu landsvæði sitt sveipað bandarískum fánalitum á korti sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti á samfélagsmiðlum í byrjun mánaðar. Frakklandsforseti og Kanadamenn senda Bandaríkjaforseta væna pillu vegna kortsins. Erlent 20. september 2026 15:16
Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Dönskum herþotum af gerðinni F-35 var á miðvikudaginn lent á Grænlandi í fyrsta sinn. Þar tóku flugmenn þeirra þátt í æfingum með flugmönnum frá Bandaríkjunum á F-16 og Kanada á F-18. Flugvélarnar eru gerðar út frá Keflavík um þessar mundir. Erlent 18. september 2026 10:40
Sleppir landsleikjunum fyrir brúðkaupsferð Alphonso Davies, landsliðsfyrirliði Kanada, mun ekki taka þátt í komandi landsliðsglugga sökum þess að hann verður í brúðkaupsferð. Þetta staðfesti þjálfari kanadíska liðsins. Fótbolti 17. september 2026 11:30
„Þetta snýst um fullveldi“ Dýpra samstarf Kanada og Evrópu er nauðsynlegt til að sporna gegn því að stærri og öflugri ríki grafi undan fullveldi smærri þjóða. Þetta sagði Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í ræðu sem hann hélt á Evrópuþinginu í morgun. Þar tók hann vel í tillögu um að Kanada yrði fyrsta ríkið til að hljóta aukaaðild að Evrópusambandinu. Erlent 17. september 2026 10:52
Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Donald Trump segir að það að hleypa Kanada inn í Evrópusambandið með einhverjum hætti gæti verið „fjandsamlegt“ gagnvart Bandaríkjunum. Forsetinn hótar því að beita ESB enn frekari tollum og jafnvel hætta viðskiptum við Evrópu á einhverjum sviðum. Erlent 17. september 2026 06:25
Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins bauð Kanada að verða fyrsta aukaaðildarríki sambandsins í stefnuræðu sinni í dag. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, var viðstaddur ræðuna. Erlent 16. september 2026 08:49
Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Óttar Guðmundsson, gagnasérfræðingur hjá Gangverk, segir mikilvægt að starfsmenn verði ekki að eins konar „kjötstykkjum“ við notkun gervigreindarinnar. Gervigreindin sé aðeins eitt tól af mörgum sem fólk hafi sér til aðstoðar í vinnu en eigi ekki að stýra vinnunni. Hann segir segir stjórnendur reglulega leita til þeirra sem vilji beita gervigreindinni en viti ekki hvernig sé best að gera það. Viðskipti innlent 12. september 2026 19:50
Bannar innflutning á kanadískum vörum Bandaríkjamenn hafa bannað innflutning á fjölda kanadískra vara, til að mynda áfengi, mjólkurvörum og mótorhjólum. Þetta er nýjasti liðurinn í viðskiptastríði nágrannaríkjanna en samband ríkjanna hefur sjaldan verið jafn slæmt og það er í dag. Erlent 9. september 2026 06:56
Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Bretar, Frakkar og Kanadamenn ætla beita ólöglegar landtökubyggðir gyðinga á palestínsku landi refsiaðgerðum. Bandarísk stjórnvöld hafa hótað að refsa Bretum fyrir aðgerðirnar. Erlent 8. september 2026 13:16
„Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Forsætisráðherra og utanríkisráðherra segja kort Bandaríkjaforseta þar sem Ísland var hluti af Bandaríkjunum ekki fyndið. Það sé ekkert grín að ógna fullveldi ríkja á þennan máta sem sé sömuleiðis móðgandi. Innlent 8. september 2026 11:19
Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Seðlabanki Hollands hefur flutt 86 tonn af gullforða sínum frá Bandaríkjunum og Kanada til London í Bretlandi, vegna vaxandi ólgu í alþjóðamálum. Auðveldara verði að selja gullforðann komi til neyðarástands í Bretlandi heldur en í Bandaríkjunum eða Kanada. Viðskipti erlent 3. september 2026 07:50
Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Kanadíski leikarinn Peter Cullen, sem talsetti vinsælar persónur á borð við Optimus Prime í Transformers og Eyrnaslapa í Bangsímon, er látinn, 85 ára að aldri. Bíó og sjónvarp 28. ágúst 2026 10:35
Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun þess efnis að Ontaríó-vatn beri nú heitið Ameríku-vatn. Erlent 27. ágúst 2026 17:56
Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Þrátt fyrir háværan áróður og beitingu tolla milli Bandaríkjanna og Kanada segjast greinendur vestanhafs sannfærðir um að ríkisstjórnir landanna muni komast að samkomulagi. Hvorki Bandaríkjamenn né Kanadamenn vilji í raun vera í viðskiptastríði. Donald Trump og félagar virðast þó telja sig með pálmann í höndunum. Erlent 26. ágúst 2026 23:42
Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hefur þekkst boð um að vera viðstaddur stefnuræðu Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í næsta mánuði. Sambandið og Kanada hafa færst nær hvert öðru í skugga ágreinings við Bandaríkjastjórn. Erlent 26. ágúst 2026 11:22
Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Fjármálaráðherra Kanada kynnti í dag hefndartolla Kanada á ýmsar bandarískar vörur sem svar við nýjum tollum Bandaríkjastjórnar. Lagður verður tollur á bilinu 15 til 50 prósent á ýmsar bandarískar vörur og taka þeir gildi á miðnætti 8. september. Viðskipti erlent 25. ágúst 2026 22:12
„Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Kanada hafa kallað eftir því að Mark Carney, forsætisráðherra, opinberi þau samningsdrög sem lágu fyrir í viðræðunum við Bandaríkin. Kanadamenn neituðu að skrifa undir samninginn og í kjölfarið setti ríkisstjórn Donalds Trump umfangsmikla tolla á vörur frá Kanada en Carney hafði varað við aðgerðum sem þessu í ræðu í Davos fyrr á árinu. Erlent 24. ágúst 2026 14:31