Hondúras
Ein grófasta tækling sem sést hefur
Andre Orellana, leikmaður CD Marathón, gat ekki hreyft við miklum mótmælum eftir að hann var rekinn af velli í leik gegn Olimpia í úrvalsdeildinni í Hondúras.
Að minnsta kosti 41 látinn í óeirðum í kvennafangelsi í Hondúras
Að minnsta kosti 41 er látinn eftir að óeirðir brutust út í kvennafangelsi í Hondúras í gær. Svo virðist sem átök hafi brotist út milli gengja og að annað hafi kveikt í fangaklefa í kjölfarið.
Enn fækkar þeim ríkjum sem styðja Taívan
Forseti Hondúras, Xiomara Castro segist hafa fyrirskipað utanríkisráðuneyti landsins að koma á formlegum tengslum við stjórnvöld í Kína.
Á þriðja tug hafa farist vegna fellibyljar í Mið-Ameríku
Minnst 28 hafa látist í gríðarlegum rigningum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Fellibylurinn Júlía sem gekk yfir svæðið hefur misst kraft sinn en enn rignir mikið í bæði Gvatemala og El Salvador.
Þóttist vera fórnarlamb og gæti hlotið dauðarefsingu
Vörubílstjóri sem keyrði vörubíl sem fannst yfirgefinn í Texas á mánudag með 53 látið farandfólk innanborðs segist ekki hafa vitað af bilaðri loftræstingu. Upphaflega faldi vörubílstjórinn sig nálægt vörubílnum og þóttist vera einn af farandfólkinu en var handtekinn stuttu síðar. Verði hann sakfelldur gæti hann hlotið dauðarefsingu.
Tveir landsliðsmenn Hondúras þurftu að fara af velli vegna kulda
Það var mjög kalt í Saint Paul í Minnesota fylki í gær þegar bandaríska landsliðið vann 3-0 sigur á Hondúras í undankeppni HM.
53 látnir eftir umferðarslys í Mexíkó
Að minnsta kosti 53 eru látnir og tugir slasaðir eftir að flutningabíll fór á hliðina í Mexíkó. Svo virðist sem bíllinn hafi verið að flytja ólöglega farendur frá Mið-Ameríku og væntanlega á leið til Bandaríkjanna.
Verður fyrsta konan til að gegna embætti forseta í Hondúras
Xiomara Castro mun taka við embætti forseta Mið-Ameríkuríkisins Hondúras. Stjórnarflokkurinn í landinu hefur þegar lýst yfir ósigri í forsetakosningunum sem fram fóru á sunnudaginn.
Hamfarasvæði aftur í hættu vegna fellibyljarins Jóta
Fellibylnum Jóta óx afl í Karíbahafi í dag og er nú orðinn að fimmta stigs fellibyl. Hann virðist nú stefna á hamfarasvæði í Mið-Ameríku sem urðu illa úti í fellibylnum Eta fyrr í þessum mánuði.
Telja 150 látna vegna óveðurs í Gvatemala
Talið er að minnst hundrað hafi látist í Quejá héraði í Gvatemala vegna aurskriða sem féllu í kjölfar mikilla rigninga vegna stormsins Etu sem riðið hefur yfir landið undanfarna daga.
Fimmtíu látin eftir aurskriður vegna Eta
Fimmtíu manns hið minnsta eru látnir eftir að hafa orðið undir í aurskriðum í Gvatemala. Aurskriðurnar féllu eftir að óveðrið Eta, sem áður var skilgreint sem fellibylur, gekk yfir landið.
Fellibylurinn Eta herjar á íbúa í Mið-Ameríku
Fellibylurinn Eta gekk á land í Níkaragva í gær þar sem gríðarlegt úrhelli og miklir vindar hafa herjað á íbúa.
Forseti Hondúras sakaður um að þiggja dóppeninga
Bandarískir saksóknarar segja að forseti Hondúras hafi þegið tugi þúsunda dollara frá þekktum fíkniefnabaróni í skiptum fyrir að héldi hlífiskildi yfir ólöglegri starfsemi hans um það leyti sem hann var kjörinn forseti.
Alræmt glæpagengi réðst inn í dómshús til að frelsa leiðtoga sinn
Talið er að um tuttugu þungvopnaðir og einkennisklæddir liðsmenn glæpagengisins MS-13 hafi fellt lögreglumenn og frelsað leiðtoga sinn sem beið dóms vegna fjölda morða.
Tugir barna deyja úr beinbrunasótt í Hondúras
Skæður faraldur geisar nú í Mið-Ameríku þar sem hundruð hafa farist úr beinbrunasótt. Um tvöfalt fleiri hafa látið lífið en á öllu síðasta ári.
Fjórir látnir eftir slagsmál í Hondúras
Mikil læti voru í Hondúras um nýliðna helgi er erkifjendur áttu að mætast. Lætin byrjuðu áður en leikurinn hófst og hann náði aldrei að hefjast. Fjórir eru látnir eftir átökin.
Lést aðeins þremur árum eftir að átján ára fótboltaferli hans lauk
Hondúrinn Walter Martinez er látinn aðeins 37 ára að aldri en hann lék á sínum tíma 49 landsleiki fyrir þjóð sína.
Fréttamynd ársins af grátandi stúlku á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó
Fréttamynd ársins 2018 er af Yanelu Sanchez, lítilli stúlku, sem sést grátandi þar sem hún og mamma hennar, Sandra Sanchez, eru teknar höndum á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.
Sjö ára stúlka lést í haldi landamærayfirvalda
Sjö ára gömul stúlka sem reynt hafði ásamt föður sínum að komast ólöglega yfir landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna lést nokkrum klukkustundum eftir að hafa verið hneppt í varðhald, þegar tilraunin mistókst.
Trump reifst við fréttamann í beinni: „Þetta er nóg, settu niður hljóðnemann“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Jim Acosta, fréttamaður CNN áttu í snörpum orðaskiptum á blaðamannafundi í Hvíta húsinu nú fyrir stundu eftir að forsetanum mislíkaði spurningar Acosta, ekki síst eftir að Trump var spurður út í Rússarannsóknina svokölluðu.
Hótar að kalla út herinn til að loka landamærum
Donald Trump sagði þetta á Twitter í kvöld eftir að fregnir bárust af rúmlega þrjú þúsund farandfólki á leið norður frá Suður-Ameríku.
Bandarísk yfirvöld segjast hafa skilað 500 börnum
Enn eru þó rúmlega 2.000 börn í haldi.
Áhrifamáttur ljósmynda: Sagan á bak við ljósmyndina af lítilli stúlku við landamærin
Ljósmyndin sem John Moore tók af stúlkunni og móður hennar við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó hefur víða vakið athygli.
Ljósmyndarinn segir söguna á bak við myndina á forsíðu Time
Bandaríska tímaritið Times hefur birt forsíðuna á næsta eintaki blaðsins.
Skrifa andlát transkonu á Bandaríkjastjórn
Mannréttindasamtök saka bandarísk stjórnvöld um að hafa myrt hælisleitandann Roxana Hernandez, sem lést í haldi þarlendu útlendingastofnunarinnar.
Ríkislögreglustjóri Hondúras sakaður um aðild að fíkniefnasmygli
Hann er sagður hafa skipað að spilltum lögreglumanni og stórri fíkniefnasendingu sem hann var að fylgja yrði sleppt eftir að lægra settur lögreglumaður stöðvaði hann.
Trump virðist þræta fyrir að hafa talað um „skítaholur“
Í röð tísta fullyrði Bandaríkjaforseti að hann hafi aldrei sagt neitt niðrandi um íbúa Haítí.
Krefjast skýringa á ummælum Trump um "skítaholur“
Ummæli Bandaríkjaforseta um að Mið-Ameríku- og Afríkuríki séu skítaholur hafa verið harðlega gagnrýnd víða um heim.