
Afganistan

Spá því að þriðjungur ísbreiðu Himalajafjalla muni bráðna
Ítarleg rannsókn yfir 200 vísindamanna sem staðið hefur yfir í fimm ár á áhrifum loftslagsbreytinga á svokallað Hindu Kush-Himalaja-svæði (HKH) leiðir í ljós að þriðjungur af ísbreiðu Himalajafjalla mun bráðna vegna hnattrænnar hlýnunar á næstu 80 árum.

Stórt skref stigið í átt að friði
Sex daga viðræður Bandaríkjanna og talibana skila árangri. Samþykktu ramma utan um friðarsamninga. Talibanar koma í veg fyrir hryðjuverkastarfsemi og mæta til viðræðna við stjórnina ef Bandaríkjamenn fara úr landi.

Drög að friðarsamkomulagi í Afganistan
Drögin eru afrakstur sex daga viðræðna við fulltrúa talibana í Katar.

Talibanar segjast hafa skrifað undir drög að friðursamkomulagi
Samningamenn Bandaríkjanna og Talibana eru sagðir hafa skrifað undir drög að friðarsamkomulagi í Afganistan.

Mannskæð árás á herstöð í Afganistan
Yfirvöld í Afganistan segja nú að fjörutíu og fimm hermenn hafi fallið í árás Talíbana á herstöð í landinu í gær.

Trump hefnir sín á Pelosi
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sent Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildarinnar, bréf þar sem hann segist ekki geta leyft henni að fara í opinbert ferðalag á flugvélum ríkisins vegna lokunnar alríkisstofnana.

Trump sagður hafa falið heimildir um fundi með Pútín
Forsetinn lagði hald á minnispunkta túlks og bannaði honum að ræða efni fundar við embættismenn hans eigin ríkisstjórnar.

Yfir þrjátíu látnir eftir að gullnáma hrundi í Afganistan
Í það minnsta þrjátíu eru látnir eftir að gullnáma í norðaustur Afganistan hrundi í dag.

Þrír sakfelldir fyrir að myrða blaðamann BBC
Þrír afganskir menn hafa verið sakfelldir fyrir að myrða Ahmad Shah, blaðamann BBC.

Trump lýsti stuðningi við innrás Sovétríkjanna í Afganistan
Ummæli forsetans vekja furðu enda studdi Bandaríkjastjórn Reagan andstæðinga Sovétmanna og afganskra bandamanna þeirra í stríðinu.

Á fimmta tug látinn eftir árás öfgamanna í Kabúl
Hópur vopnaðara manna réðst inn í ráðuneyti í borginni eftir að sjálfsmorðssprengja var sprengd fyrir utan bygginguna.

Talið að Bandaríkjamenn muni kalla þúsundir hermanna frá Afganistan
Þetta herma heimildir Reuters fréttastofunnar.

Trump sakar bandamenn um vanþakklæti og lýgur um Sýrland
Á sama tíma og Pútín Rússlandsforseti lofaði ákvörðun Trump um að draga herlið frá Sýrlandi fullyrti bandaríski forsetinn að Rússar væru óánægðir með hana.

„Ef Obama hefði gert þetta, værum við allir brjálaðir“
Ákvörðun Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að kalla alla hermenn Bandaríkjanna frá Sýrlandi heim, kom mörgum á óvart. Þar á meðal þingmönnum, embættismönnum og bandamönnum Bandaríkjanna.

Trump ætlar að draga allt herlið Bandaríkjanna frá Sýrlandi
Landhernaði gegn Ríki íslams verður hætt strax.

Háttsettur Talibani felldur í loftárás
Mullah Abdul Manan Akhund, einn æðsti meðlimur Talibana í Afganistan, var felldur í loftárás Bandaríkjanna í gær.

Tugir fórust í sjálfsmorðsárás
Að minnsta kosti 26 fórust og 50 særðust þegar sjálfsmorðsárásarmaður sprengdi sig í loft upp í mosku á herstöð í Khost-fylki Afganistans í gær.

Dularfulla morðið á Jamal Khashoggi
Þó að enn sé margt á huldu varðandi morðið á Khashoggi hefur ýmislegt komið fram í fréttum undanfarnar vikur. Hér verður tekið það saman það helsta sem komið hefur fram um þetta dularfulla morð.

Blóðugir kjördagar í afgönsku kosningunum
Þingkosningar fóru fram í Afganistan um helgina.

Ofbeldi einkennir þingkosningar í Afganistan
Mikið hefur verið um ofbeldi í Afganistan í dag, en íbúar landsins ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til þings. Tugir hafa látið lífið í sprengjuárásum á kjörstaði víðs vegar um landið. Búið er að framlengja kosningartímann og munu þónokkrir kjörstaðir standa opnir fram á sunnudag.

Bandarískur hershöfðingi lifði af morðtilraun í Afganistan
Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Afganistan, hershöfðinginn Austin S. Miller, var einnig á svæðinu en hann slapp án meiðsla.

Fyrstu formlegu viðræður Bandaríkjanna og Talibana
Nýr erindreki Bandaríkjanna fundaði í fyrsta sinn með leiðtogum Talibana í Afganistan í gær. Talibanar segja að viðræðurnar muni halda áfram.

Trump-liðar ætla í hart gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum
Meðal annars ætla Bandaríkin að hóta að beita dómarar ICC viðskiptaþvingunum og er það vegna mögulegrar rannsóknar dómsstólsins á hugsanlegum stríðsglæpum bandarískra hermanna í Afganistan.

Frá „góðmennskunni holdgerðri“ til hryðjuverkamanns
Einn af æðstu hernaðarleiðtogum Talibana og stofnandi Haqqani fylkingarinnar, Jalaluddin Haqqani, er látinn.

Bandaríkin hætta stuðningi við Pakistan vegna vígamanna
Hernaðaryfirvöld Bandaríkjanna hafa ákveðið að stöðva 300 milljóna dala fjárstuðning við Pakistan vegna aðgerðarleysis yfirvalda þar í landi varðandi vígahópa.

Hvetur þýsku þjóðina til að mótmæla áróðri öfgahægrimanna og rasista
Fjölmennir hópar öfgaþjóðernissinna og vinstrisinnaðra mótmælenda hafa tekist á í þýsku borginni Chemnitz undanfarna daga.

Tólf fórust í þyrluslysi í Afganistan
Flestir hinna látnu voru afganskir hermenn.

Friðargæsluliði svarar fyrir sig
Allt frá því að sprengjuárás varð í teppabúð í Afganistan árið 2004 og heimildarmynd um störf friðargæslunnar í landinu var frumsýnd skömmu síðar, hefur aðgangur fjölmiðla að starfinu í Kabúl verið lítill. Klemens Ólafur Þrastarson heimsótti friðargæsluna í Afganistan og ræddi við Inga Þór Þorgrímsson, forsvarsmann Íslendinga við stjórnun flugvallarins í Kabúl.