
Samfylkingin

Frá ímyndarstjórnmálum til klassískrar jafnaðarstefnu
Kosningaslagorð Samfylkingarinnar — Sterk velferð, stolt þjóð — hefur vakið talsverða umræðu undanfarna daga. Svo virðist sem ákveðnum hópi á vinstri væng stjórnmálanna finnist ósæmandi að alþjóðlega sinnaður jafnaðarmannaflokkur notist við orðið „þjóð“ – hvað þá að orðunum „stolt“ og „þjóð“ sé blandað saman í pólitískri orðræðu.

Sjálfstæðisflokkurinn skuldi kjósendum skýringar
Ólafur Adolfsson nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi segir Sjálfstæðisflokkinn skulda kjósendum sínum skýringar. Það hafi verið röng ákvörðun að halda áfram í ríkisstjórnarsamstarfinu. Í flokknum sé verið að skipta út fólki því kjósendur vilji nýjar áherslur.

Tæpur þriðjungur vill Kristrúnu í forsætisráðuneytið
Meirihluti þjóðarinnar, eða um 66 prósent, eru ánægð með stjórnarslitin samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Þá vilja flestir, eða um þriðjungur, að Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar, leiði næstu ríkisstjórn og verði forsætisráðherra.

Alma og Guðmundur Ari leiða í Kraganum
Guðmundur Ari Sigurjónsson, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, mun skipa annað sætið á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi. Alma Möller verður í því fyrsta og Þórunn Sveinbjarnardóttir í því þriðja. Markmið Guðmundar er að ná sama árangri á landsvísu og hann náði í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022 á Seltjarnarnesi, fjörutíu prósent atkvæða.

Oddný gleymir aldrei símtali Bjarna Ben
Oddný Harðardóttir minnist símtals frá Bjarna Benediktssyni eftir að Samfylkingin beið afhroð í þingkosningunum árið 2016. Brynjar Níelsson segist alls ekki hafa gefist upp á Jóni Gunnarssyni. Þetta var meðal þess sem fram kom í Kosningapallborði á Vísi þar sem gestir fóru um víðan völl.

Bæjarstjóri dembir sér í landsmálin
Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar gefur kost á sér í oddvitasæti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.

Kosningapallborð: Kanónur kveðja
Fyrsta formlega kosningapallborð fréttastofunnar fyrir alþingiskosningarnar verður helgað reyndum þingmönnum sem eru að kveðja sviðið og hafa tekið ákvörðun um að láta gott heita.

Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur tilkynnt að hún ætli sér ekki í oddvitaslag við Ölmu Möller landlækni og býður sig fram í þriðja sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Hún segist ekki hafa verið beitt þrýstingi en sé að bregðast við ákalli um endurnýjun.

Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi
Sverrir Bergmann tónlistarmaður og bæjarstjórnarfulltrúi í Reykjanesbæ býður sig fram í 3. sæti í Suðurkjördæmi fyrir Samfylkinguna. Fyrst var greint frá á mbl.is. Í samtali við fréttastofu segir Sverrir Bergmann að hann hafi stefnt á 2. til 3. sæti en nú þegar liggi ljóst að Víðir Reynisson taki fyrsta sætið stefni hann á það þriðja, hjá Samfylkingu séu fléttulistar.

Útiloka ekki samstarf en segja málefnin skipta mestu máli
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson útiloka ekki að starfa saman í tveggja flokka stjórn. Þau segja samt málefnin alltaf skipta mestu máli. Kristrún segir mögulega styttra á milli Miðflokks og Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar og annarra flokka. Kristrún og Sigmundur fóru yfir stöðuna á Sprengisandi á Bylgjunni í dag.

Spáir því að Bjarni gangi til liðs við Miðflokkinn
Össur Skarphéðinsson fyrrverandi þingmaður og ráðherra Samfylkingarinnar spáir því að Bjarni Jónsson fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna muni ganga til liðs við Miðflokkinn. Það sagði Össur á Sprengisandi í Bylgjunni í dag þar sem hann fór yfir stöðuna í stjórnmálunum.

Spurt um áhuga fólks á Degi í forystu í Reykjavík
Keyptar voru spurningar í spurningavagn Prósents til að kanna áhuga á framboði Dags B. Eggertssonar fyrrverandi borgarstjóra fyrir Samfylkinguna.

Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar
Öll augu eru nú á Suðvesturkjördæmi, þar sem varaformaður Sjálfstæðisflokks leggur framtíð sína sem formaður að veði, í von um að hreppa annað sætið, að sögn prófessors í stjórnmálafræði. Skyndilegt brotthvarf varaformanns Samfylkingar úr oddvitaslag eykur enn á spennuna.

Þórólfur ætlar ekki fram
Þórólfur Guðnason, fyrrverandi sóttvarnalæknir, ætlar ekki að fylgja í fótspor Víðis Reynissonar og Ölmu Möller og bjóða sig fram í næstu Alþingiskosningum.

„Ég hef alltaf haft augun á þessu“
Víðir Reynisson segist alltaf haft augun á því að fara á þing. Hann hafi því verið fljótur að taka slaginn þegar uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar hafði samband. Hann leggur áherslu á velferðarmál og öryggismál.

Víðir verður oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi
Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, er sagður munu taka oddvitasæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi.

Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum
Alma Möller landlæknir vill leiða lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður tilkynnti í dag að hann hygðist ekki gefa kost á sér vegna heilsubrests. Þórunn Sveinbjarnardóttir þingkona flokksins stefnir á sama sæti.

Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu
Hannes Sigurbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ) býður sig fram í annað efstu sæta í Norðvesturkjördæmi fyrir Samfylkingu. Hann bauð sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 2014 en kveðst hafa fjarlægst flokkinn síðustu ár.

Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu
Guðmundur Árni sækist ekki lengur eftir oddvitasæti hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi. Það tilkynnti hann á Facebook rétt í þessu. Í tilkynningu sinni vísar hann til tímabundinna heilsufarsástæðna. Það sé að læknisráði sem hann taki þessa ákvörðun. Hann segist styðja Ölmu Möller í forystu í kjördæminu.

Páll Valur vill forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi
Páll Valur Björnsson býður sig fram í forystusæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir komandi kosningar. Páll sat á þingi fyrir Bjarta Framtíð árin 2013 - 2016, og var varaþingmaður Samfylkingarinnar 2017 - 2021.

„Eigum við ekki að fara yfir þann þröskuld þegar við komum að honum?“
Þórunn Sveinbjarnardóttir og Guðmundur Árni Stefánsson, gamalreyndar stjórnmálakempur sem báðar sækjast eftir oddvitasæti Samfylkingar í Kraganum, svara því ekki hvort þau þæðu sæti neðar á lista. Mikil spenna ríkir einnig fyrir baráttu um annað sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í kjördæminu, sem skera á úr um á sunnudag.

Ný könnun: Ómarktækur munur á Viðreisn og Sjálfstæðisflokknum
Fylgi Samfylkingar, Pírata og Flokks fólksins minnkar milli mánaða á meðan Viðreisn bætir við sig töluverðu fylgi. Ómarktækur munur er á milli Viðreisnar og Sjálfstæðisflokksins. Vinstri græn hanga inni á þingi.

Vill að rödd hins almenna launamanns heyrist á Alþingi
Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambandsins ætlar að blanda sér í pólitíkina og gefur kost á sér í 2. sæti hjá Samfylkingunni í öðru Reykjavíkurkjördæmanna. Hvort þeirra? Kristján Þórður segir að það verði svo bara að koma á daginn hvernig uppstillingarnefnd hagi sínum störfum.

„Fólk hefur verið að ýta við mér“
Flosi Eiríksson, fyrrverandi bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segist íhuga það alvarlega að skella sér í pólitíkina á ný ef félagar hans í Samfylkingunni vilja njóta liðsinnis hans.

„Fullt út úr dyrum“ á öllum fundum Samfylkingarinnar
Vali á lista Samfylkingarinnar verður hagað með uppstillingu. Þetta var staðfest á fundum kjördæmisráðs í kvöld en formaður framkvæmdastjórnar segir fullt út úr dyrum á öllum fundum flokksins.

Alma hættir sér ekki í oddvitabaráttuna
Alma Möller landlæknir gefur kost á sér í annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Hún fer í leyfi frá störfum sem landlæknir þegar listinn verður birtur og tekur Guðrún Aspelund sóttvarnarlæknir við embættinu á meðan.

Alma Möller skellir sér í pólitíkina
Alma Möller landlæknir hefur ákveðið að gefa kost á sér til framboðs hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Jón Magnús gefur kost á sér
Jón Magnús Kristjánsson, fyrrverandi yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, mun óska eftir þriðja til fjórða sæti á lista Samfylkingarinnar í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu.

„Loksins er lokið lengsta dauðastríði nokkurrar ríkisstjórnar“
Forsætisráðherra tilkynnti um þingrof og kosningar á þingi í dag. Formaður Miðflokksins sagði dauðastríði ríkisstjórnarinnar loks lokið og formenn annarra stjórnarandstöðuflokka sögðu kosningarnar tækifæri til breytinga. Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði erindi ríkisstjórnarinnar lokið og formaður Vinstri grænna sagði hann óhæfan til að leiða ríkisstjórn.

Þórunn og Guðmundur Árni munu bítast um oddvitasætið
Þórunn Sveinbjarnardóttir gefur kost á sér í 1. sæti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður flokksins sækist einnig eftir oddvitasætinu.