Umboðsmaður Alþingis

Fréttamynd

Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína er­lendis

Maður sem missti dóttur sína á sjúkrahúsi erlendis vildi að Sjúkratryggingar Íslands tækju að sér samskipti við erlend stjórnvöld vegna andlátsins. Hann taldi aðstoðina ófullnægjandi og kvartaði til umboðsmanns Alþingis eftir að heilbrigðisráðuneytið hafnaði athugasemdum hans.

Innlent
Fréttamynd

Metfjöldi kvartana

Metfjöldi kvartana barst umboðsmanni Alþingis árið 2025 og fjölgaði þeim um 12,5 prósent á milli ára. Það stefnir allt í að annað met verði sett á þessu ári.

Innlent
Fréttamynd

Börn send fram og til baka

Ef foreldri hefur áhyggjur af því hvernig komið er fram við barnið þess í skóla og vill kvarta, þá vaknar einföld spurning. Hvert á að leita? Svarið ætti að vera einfalt en er það ekki. Það fer eftir því við hvern talað er og svörin stangast á.

Skoðun
Fréttamynd

Al­var­legt að svo ill með­ferð á dýrum sé metin refsilaus

Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndunarsambands Íslands, DÍS, segir niðurstöðu umboðsmanns Alþingis um blóðmerahald mikil vonbrigði. Með því að gera ekki neinar athugasemdir við eftirlit Matvælastofnunar, MAST, sé ill meðferð á dýrum metin refsilaus.

Innlent
Fréttamynd

Kvörtunum rigndi yfir um­boðs­mann í fyrra

Aldrei hafa fleiri kvartanir borist umboðsmanni Alþingis á einu almannaksári en í fyrra. Af tæplega sex hundruð málum vörðuðu flestar þeirra tafir á afgreiðslu mála eða erinda af hálfu stjórnvalda.

Innlent
Fréttamynd

Brutu stjórnsýslulög við út­gáfu hvalveiðileyfis

Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að málsmeðferð matvælaráðuneytisins á umsókn um leyfi til hvalveiða var ekki í samræmi við lög árið 2024. Þá var Bjarkey Olsen matvælaráðherra. Í áliti umboðsmanns segir að stjórnsýslulögum hafi ekki fylgt við meðferð matvælaráðuneytisins á umsókn um leyfi til hvalveiða.

Innlent
Fréttamynd

Áttu að taka til­lit til þess að tals­maðurinn klikkaði

Umboðsmaður Alþingis hefur gert athugasemdir við málsmeðferð kærunefndar útlendingamála og beint því til nefndarinnar að hún taki mál fyrir að nýju. Samkvæmt áliti var umfjöllun nefndarinnar áfátt og er henni bent á að taka tillit til sjónarmiða umboðsmanns í framtíðinni.

Innlent
Fréttamynd

Hafnar­fjörður mátti ekki aftur­kalla ráðningu Óskars Steins

Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að Hafnarfjarðarbær hafi brotið gegn stjórnsýslulögum með því að afturkalla ráðningu Óskars Steins Ómarssonar stjórnmálafræðings í stöðu deildarstjóra tómstundamiðstöðvar Hraunvallaskóla, þremur vikum eftir að hann var ráðinn. Óskar Steinn telur að gagnrýni hans í garð kjörinna fulltrúa bæjarins hafi orðið til þess að hætt var við ráðninguna og segir gott að geta skilað skömminni til síns heima, í ráðhús Hafnarfjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Vill fá svör um málsmeðferðartíma úrskurðarnefndar

Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir svörum frá forsætisráðuneytinu varðandi afgreiðslutíma úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Í erindi til ráðuneytisins segir að vísbendingar séu uppi um að meðferð nefndarinnar á málum sé enn óhóflega löng.

Innlent
Fréttamynd

Um­boðs­maður snuprar stjórn­völd

Umboðsmaður Alþingis les stjórvöldum pistilinn í niðurstöðum frumkvæðisathugunar á því hvort fyrirkomulag eða framkvæmd réttindagæslu fyrir fatlað fólk hafi verið í samræmi við efni og framkvæmd samnefndra laga.

Innlent
Fréttamynd

Skrif­stofa for­seta Ís­lands minnt á að hlíta upp­lýsinga­lögum

Skrifstofa forseta Íslands segir afgreiðslu á beiðnum fréttastofu RÚV um upplýsingar um dagskrá forsetans ekki hafa verið fyllilega í samræmi við ákvæði upplýsingalaga.  Umboðsmaður Alþingis segir ekki tilefni til frekari skoðunar á málinu í ljósi viðurkenningar skrifstofunnar á mistökum.

Innlent
Fréttamynd

Segir fanga­geymslur ekki við­eig­andi vistunarstað fyrir börn

Fangageymsla á lögreglustöðinni á Flatahrauni í Hafnarfirði er ekki viðeigandi vistunarstaður fyrir börn. Umboðsmaður Alþingis beinir því til Barna- og fjölskyldustofu og mennta- og barnamálaráðherra að endurskoða þá tilhögun að nýta fangaklefa fyrir neyðarvistun barna á Stuðlum. Í fangageymslunni sofa börn á plastklæddum dýnum á steyptum bekkjum. Vistun hefur varað í allt að sex daga. 

Innlent