Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Lovísa Arnardóttir skrifar 17. mars 2026 13:25 Linda Karen segir að með því að bregðast ekki við illri meðferð á hrossum sé hún gerð refsilaus. Vísir/Lýður Valberg Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndunarsambands Íslands, DÍS, segir niðurstöðu umboðsmanns Alþingis um blóðmerahald mikil vonbrigði. Með því að gera ekki neinar athugasemdir við eftirlit Matvælastofnunar, MAST, sé ill meðferð á dýrum metin refsilaus.
Umboðsmaður Alþingis lauk í mánuðinum athugun sinni á fyrirkomulagi eftirlits Matvælastofnunar, MAST, með blóðmerahaldi án athugasemda. Í svari sínu sagðist umboðsmaður ekki hafa forsendur til að gera athugasemdir við starfshætti MAST og hvernig stofnunin framkvæmir sitt mat. Umboðsmaður sagði mat MAST byggja á sérþekkingu sem hún hefði ekki forsendur til að endurskoða. Hún taldi ekki tilefni til að gera athugasemd við eftirlit stofnunarinnar og sagði ekki betur séð en að ákvörðun um það væri reist á málefnalegum sjónarmiðum. „Niðurstaða umboðsmanns var mikil vonbrigði. Einfaldlega vegna þess að þarna var verið að veitast að dýrum með spörkum og barsmíðum með prikum. Harðýðgi eða ofbeldi gegn dýrum er bannað. Ef það er mat sérfræðinga Matvælastofnunar að það hefði ekki þurft að fylgja þessari meðferð á dýrum nein viðurlög, ef þessi meðferð á dýrum er í raun metin refsilaus þá er það alvarlegt og alvarlegt fordæmi sem stofnunin setur með því að bregðast ekki við málinu.“ Linda Karen segir að með þessu sé stofnunin í raun að segja að svona meðferð á hrossum sé ásættanleg þótt lög um velferð dýra segi annað. „Almenningur fékk að sjá þessa meðferð á hrossum í sjónvarpi og það getur hver sem er séð að þetta var brot á dýravelferðarlögum. Þess má geta að MAST mat það svo að á einum bænum hefði komið fram alvarlegt frávik en samt brást stofnunin ekki við. Það verður líka að minnast á að í fyrra var maður sem veittist að hundi sínum á almannafæri og hann fékk stjórnvaldssekt fyrir þessa meðferð á hundinum og maður spyr sig hvers vegna brást MAST ekki við í málum þessara hryssa með sama hætti.“ Linda Karen segir auk þess alvarlegt að í svona málum hafi DÍS og önnur dýraverndunarsamtök ekki neina stöðu til að vera aðili að málum. Þau hafi kvartað ásamt erlendum dýraverndunarsamtökum yfir málsmeðferð MAST til atvinnuvegaráðuneytisins en MAST hafi í kjölfarið óskað þess að málinu yrði vísað frá því DÍS sé ekki aðili að málinu. Það hafi verið samþykkt. Dýraverndunarsamtök verði að fá að vera málsvari dýra „Ráðuneytið varð við þessum óskum og málunum var vísað frá. Þetta þýðir að á Íslandi er ekki hægt að fá stjórnsýslulega endurskoðun í málefnum dýra vegna þess að það er enginn aðili að málinu nema dýrin og þeir sem brjóta á dýrum. Dýrin eru málleysingjar og eðlilega eiga dýraverndunarsamtök að vera þeirra málsvari.“ Linda Karen segir samtökin í kjölfarið hafa fundað með ráðherra um það og það liggi fyrir að svo nokkur samtök geti orðið aðili að slíku máli þurfi að breyta lögum um velferð dýra. Ráðherra hafi verið jákvæð fyrir því. „Eftirlit er algjörlega að bregðast þessum dýrum og það sést alveg í þessu misræmi í máli hundaeigandans og svo málum þessara hryssa sem er verið að sparka í og berja með priki. Þær meiða sig líka, finna til og verða hræddar.“ Linda Karen segir þetta ekkert einsdæmi í illri meðferð á búfénaði en þetta sé eitthvað sem þurfi að breyta og MAST þurfi að sjá til þess að lögum sé framfylgt. Reglugerðin verji hrossin Fjallað var um það í síðustu viku að Fagráð um velferð dýra komst ekki að samhljóma niðurstöðu um umsókn fyrirtækisins Ísteka um leyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum. Tveir fulltrúar veittu neikvæða umsögn, tveir jákvæða. Auk þess sagðist yfirdýralæknir, formaður nefndarinnar, ekki geta veitt jákvæða umsögn og sagði skýringar Ísteka á samfélagslegum ávinningi ekki fullnægjandi. Forstjóri MAST sagði í sömu umfjöllun að stofnunin vildi vanda til verka og því væri enn verið að fara yfir umsókn Ísteka. „Það er ljóst að reglugerð um vernd dýra í vísindaskyni ver þessar hryssur frá því að vera notaðar í þeim tilgangi. Markmið með reglugerðinni er að takmarka notkun á dýrum í vísindaskyni og hún gerir það með því að segja að þegar það er mögulegt eigi að nota aðrar aðferðir en lifandi dýr.“ Linda Karen segir að samkvæmt reglugerðinni þurfi einnig að vera skýr samfélagslegur ávinningur af því að nota lifandi dýr sem á að vega á móti skaðanum sem það veldur. „Það er skýrt að það er til fjöldi kemískra lyfja sem þjóna sama tilgangi og frjósemislyfið sem er framleitt úr PMSG-hormóni úr blóði íslenskra hryssa.“ Auk þess segir Linda Karen að auk þess séu bændur víða í Evrópu farnir að nota aðrar ráðstafanir í búfjárrækt sem byggi á velferð dýra. „Þeir eru hættir að nota frjósemislyf til að stilla gangmál dýranna svo þau eignist afkvæmin á sama tíma. Í staðinn hafa bændur bætt lýsingu og haft dýrin nær hvert öðru, gyltur og gelti, svo þau fari að fara í hít og séu tilbúin að fjölga sér. Þetta er möguleiki fyrir staðgöngu, eins og lyfin.“ Eignast fleiri grísi Linda Karen segir alveg ljóst að ávinningurinn fyrir dýrin sem fá þessi lyf sé enginn. Þá sé ein aukaverkun þeirra að gylturnar eignist fleiri grísi og oft fæðist hluti þeirra afar veikburða og drepist. „Notkun á þessum lyfjum er þannig aðeins í hagnaðarskyni,“ segir hún og að því geti hún ekki séð að það sé nokkur samfélagslegur ávinningur af notkun lyfjanna, ekki fyrir manneskjur, dýr eða samfélagið í heild.
Blóðmerahald Dýraheilbrigði Umboðsmaður Alþingis Hestar Dýr Tengdar fréttir Krefst svara frá MAST vegna eftirlits með blóðmerum Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum frá Matvælastofnun í tengslum við rannsókn stofnunarinnar á meintri illri meðferð á blóðmerum. Það gerir umboðsmaður í kjölfar ábendinga og umfjöllunar fjölmiðla. 9. maí 2025 13:24 Eftirlitsfólk MAST geti ekki fylgst með hverri einustu blóðtöku Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, MAST, segir rannsókn stofnunarinnar á illri meðferð á hryssum í blóðmerahaldi lokið. Við skoðun stofnunarinnar hafi fundist alvarlegt frávik en að í flestum tilfellum hafi verið um einn sama einstaklinginn að ræða. Búið sé að koma í veg fyrir að þessi aðili komi að meðferð hrossa aftur. 10. apríl 2025 23:18 Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Ísteka segist fordæma „hverskyns ofbeldi,“ sér í lagi gagnvart hryssum sem fyrirtækið fær hráefni úr. Mál vinnumanns sem beitti hryssur ofbeldi í fyrra hafi verið afgreitt og bærinn fái að selja blóð að uppfylltum skilyrðum. Fyrirtækið segir bændur hugsi yfir njósnum og myndbandsupptökum af bændum úr launsátri. 10. apríl 2025 19:44 Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Erlent Fleiri fréttir Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Sjá meira
Krefst svara frá MAST vegna eftirlits með blóðmerum Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum frá Matvælastofnun í tengslum við rannsókn stofnunarinnar á meintri illri meðferð á blóðmerum. Það gerir umboðsmaður í kjölfar ábendinga og umfjöllunar fjölmiðla. 9. maí 2025 13:24
Eftirlitsfólk MAST geti ekki fylgst með hverri einustu blóðtöku Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, MAST, segir rannsókn stofnunarinnar á illri meðferð á hryssum í blóðmerahaldi lokið. Við skoðun stofnunarinnar hafi fundist alvarlegt frávik en að í flestum tilfellum hafi verið um einn sama einstaklinginn að ræða. Búið sé að koma í veg fyrir að þessi aðili komi að meðferð hrossa aftur. 10. apríl 2025 23:18
Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Ísteka segist fordæma „hverskyns ofbeldi,“ sér í lagi gagnvart hryssum sem fyrirtækið fær hráefni úr. Mál vinnumanns sem beitti hryssur ofbeldi í fyrra hafi verið afgreitt og bærinn fái að selja blóð að uppfylltum skilyrðum. Fyrirtækið segir bændur hugsi yfir njósnum og myndbandsupptökum af bændum úr launsátri. 10. apríl 2025 19:44