Viðskipti
100 101 102 103 104 105 106 107 108 … 223 ›
Engan leka takk fyrir Viðskiptatímaritið Economist er frægt fyrir að leggja mikið upp úr því að hafa skemmtilegar fyrirsagnir á greinum sínum. Blaðinu er dreift um heim allan og hefur því efni á að leyfa sér að halda úti sérstöku teymi fyrirsagnasmiða sem sagan segir að geri lítið annað en að upphugsa eitthvað skemmtilegt. Viðskipti innlent 28.11.2006 21:56
Verð á fiski úr methæðum Tæp 2.100 tonn af fiski seldust á mörkuðum landsins í síðustu viku, sem er rúmlega tvöfalt meira magn en vikuna á undan. Meðalverðið var 170,46 krónur á kíló sem er 8 prósenta lækkun á milli vikna. Verðið er engu að síður hátt enda stóð fiskverð í hámarki í síðustu viku. Viðskipti innlent 28.11.2006 21:56
HugurAx kaupir Mekkanis HugurAx hefur keypt Mekkanis hugbúnaðarstofu. Eigendur fyrirtækjanna skrifuðu undir samning þess efnis fyrir stuttu og verða félögin sameinuð í framhaldinu. Viðskipti innlent 28.11.2006 21:55
Forstjóri Dressmann klæðist bara Batistini „Gengurðu sjálfur í Batistini?“ var fyrsta spurningin sem hrökk af vörum blaðakonu þegar hún hitti forstjóra Dressmann. Vörumerkið verður enda að eilífu greypt í huga hennar, eins og annarra sem hafa séð Dressmann-auglýsingarnar, þar sem ofursvalir miðaldra súkkulaðimenn ganga öruggir um í Batistini-jakkafötum. „Aldrei í öðru,“ segir hann og flettir jakkanum frá því til sönnunar. Viðskipti innlent 28.11.2006 21:56
Tap HB Granda ríflega milljarður á fyrstu níu mánuðum ársins Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækisins HB Granda nam rúm einum og hálfum milljarði króna á þriðja ársfjórðungi ársins samkvæmt uppgjöri. Er það nærri milljarði meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra. Hins vegar er tap fyrirtækisins á fyrstu níu mánuðum ársins rúmlega milljarður en ríflega 900 milljóna króna hagnaður varð af rekstri fyrirtækisins á sama tíma í fyrra. Innlent 28.11.2006 16:17
Tap OR 1,4 milljarðar á fyrstu níu mánuðum ársins Tap Orkuveitu Reykjavíkur nam rúmum 1,4 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins samkvæmt uppgjöri sem birt er á heimasíðu Kauphallar Íslands. Til samanburðar var hagnaður fyrirtækisins rúmir 3,5 milljarðar króna á sama tímabili í fyrra. Innlent 28.11.2006 14:39
Fitch stafestir lánshæfiseinkunnir Landsbankans Lánshæfimatsfyrirtækið Fitch staðfesti í kjölfar árlegrar skoðunar í dag óbreyttar lánshæfimatseinkunir Landsbankans. Lánshæfimatseinkun fyrir langtímaskuldbindingar er A, skammtímaeinkun er F1, Stuðningur 2 og fjárhagslegur styrkur er B/C. Horfur lánshæfimatsins eru stöðugar, samkvæmt Fitch. Viðskipti innlent 28.11.2006 13:03
Dregur úr væntingum neytenda Dregið hefur úr tiltrú neytenda síðustu vikurnar ef marka má Væntingavísitölu Gallup fyrir nóvember sem birt var í morgun. Almennt eru neytendur mjög jákvæðir gagnvart efnahagslífinu, en þó eru þeir aðeins fleiri um þessar mundir sem telja að ástandið muni versna en hinir sem telja að það muni batna. Viðskipti innlent 28.11.2006 12:00
HugurAx kaupir Mekkanis hugbúnaðarstofu Eigendur Mekkanis hugbúnaðarstofu og HugurAx undirrituðu nýverið samning um kaup þess síðarnefnda á öllu hlutafé í Mekkanis. Í framhaldi af þessu verða félögin tvö sameinuð. Viðskipti innlent 28.11.2006 11:02
Ný útgáfa af Opera Mini kom út í dag Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software gaf í dag út nýja útgáfu af Opera-vafranum, Opera Mini 3.0 fyrir farsíma. Með vafranum geta farsímanotendur meðal annars deilt með sér stafrænum ljósmyndum, bloggað og farið á netbanka. Vafrinn þykir afar hentugur fyrir einfaldari gerðir farsíma. Viðskipti erlent 28.11.2006 10:37
Ford í fjárhagskröggum Stjórn bandaríska bílaframleiðandans Ford segir að fyrirtækið þurfi að taka allt að 18 milljarða dala lán til að standa straum af þeim kostnaði sem hagræðingarferli fyrirtækisins kostar. Þetta svarar til rúmlega 1.260 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 28.11.2006 09:45
Hlutafjárútboð Icelandair hafið Almennt hlutafjárútboð í Icelandair Group Holding hófst í gær. Alls eru í boði 4.995 milljónir króna að markaðsverði á genginu 27 krónur á hlut. Viðskipti innlent 27.11.2006 22:54
Teymi semur við Kaupþing Upplýsingatækni- og fjarskiptafyrirtækið Teymi hefur samið við Kaupþing banka um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands í síðustu viku, en starfsemi þess var áður hluti af Dagsbrún. Viðskipti innlent 27.11.2006 22:54
Bati á fasteignamarkaði Greiningardeild Landsbankans segir auknar vísbendingar komið fram á síðustu vikum um að fasteignamarkaðurinn sé að taka við sér eftir samdrátt lengst af á þessu ári. Vísbendingarnar eru þó fremur veikar. Viðskipti innlent 27.11.2006 18:27
Eurotunnel bjargað frá gjaldþroti Meirihluti lánadrottna Eurotunnel, sem rekur göngin á milli Bretlands og Frakklands undir Ermarsundi, hafa samþykkt skuldabreytingu hjá félaginu sem á að forða því frá gjaldþroti og sölu eigna. Breytingin felur í sér stofnun nýs rekstrarfélags, Groupe Eurotunnel. Viðskipti erlent 27.11.2006 14:10
Hlutafjárútboð í Icelandair hefst í dag Almennt hlutafjárútboð í Icelandair Group Holding hf. hefst í dag. Í boði til almennings eru hlutabréf í félaginu fyrir einn milljarð króna að markaðsvirði á genginu 27 krónur á hlut. Viðskipti innlent 27.11.2006 11:19
Hráolíuverð hækkaði Heimsmarkaðsverð á framvirkum samningum á hráolíu hækkaði á markaði í Bandaríkjunum í dag í kjölfar fregna um að Samtök olíuútflutningsríkja, OPEC, muni hugsanlega tilkynna um samdrátt á olíuframleiðslukvóta í næsta mánuði. Viðskipti erlent 27.11.2006 10:25
Skipt um fjármálastjóra hjá Volkswagen Stjórn þýsku bílaframleiðandanna hjá Volkswagen ætlar ekki að framlengja samning sinn við Hans Dieter Poetsch, fjármálastjóra fyrirtækisins, sem rennur út um áramótin. Ákvörðunin tengist uppsögn Bernd Pischetsrieders, forstjóra Volkswagen, sem ákveðið hefur að hætta um áramótin. Viðskipti erlent 27.11.2006 10:04
Wal-Mart nemur land á Indlandi Bandaríska verslanakeðjan Wal-Mart hefur tilkynnt að hún muni opna verslanir á Indlandi á næstunni í samstarfi við indversku verslanasamstæðuna Bharti Enterprises. Verslanakeðjur á Vesturlöndum hafa lengi horft til þessa en möguleikinn opnaðist ekki fyrr en slitnaði upp úr viðræðum bresku verslanakeðjunnar Tesco við Bharti Enterprises fyrir helgi. Viðskipti erlent 27.11.2006 09:29
Peningaskápurinn ... Stærstu hluthafarnir í HB Granda týna tölunni hver á fætur öðrum. Nú hafa Vátryggingafélag Íslands, Lífís og Samvinnulífeyrissjóðurinn horfið á braut eftir að félögin seldu hlutabréf sín í þessu stærsta útgerðarfélagi landsins, ef mælt er í kvóta. Viðskipti innlent 24.11.2006 21:53
Tryggvi Þór Herbertsson ráðinn bankastjóri Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, hefur verið ráðinn bankastjóri nýs fjárfestingabanka sem taka mun til starfa í byrjun næsta árs. Að bankanum standa meðal annars Sjóvá fjárfestingar, fasteignafélagið AVP og Ráðgjöf og efnahagsspá. Viðskipti innlent 24.11.2006 16:54
Sigurður Óli verður aðstoðarforstjóri Actavis Sigurður Óli Ólafsson tekur við af Svöfu Grönfeldt sem aðstoðarforstjóri Actavis en Svafa var í dag kynnt sem næsti rektor Háskólans í Reykjavík. Fram kemur í tilkynngu frá Actavis að Sigurður Óli hafi verið framkvæmdastjóri félagsins í Bandaríkjunum og muni nú einnig gegna stöðu aðstoðarforstjóra félagsins frá 1.desember 2006. Innlent 24.11.2006 16:52
Vogunarsjóðir gegn Stork Vogunarsjóðirnir Centaurus og Paulson, sem eiga samanlagt um 32% hlutafjár í hollensku fyrirtækjasamstæðunni Stork, hafa sett fram kröfu um að haldinn verði sérstakur hluthafafundur til að taka fyrir vantrausttillögu á stjórn félagsins. Viðskipti erlent 24.11.2006 16:51
Scania fellir tilboð MAN Stjórn sænska vörubílaframleiðandans Scania hefur fellt óvinveitt yfirtökutilboð þýska samkeppnisaðilans MAN í félagið. Tilboðið hljóðaði upp á 10,2 milljarða evrur eða um 942 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 24.11.2006 15:44
Volvo innkallar 360.000 bíla í Bandaríkjunum Bandaríska umferðaöryggisstofnunin (NHTSA) hefur skikkað bílaframleiðandann Volvo, dótturfyrirtæki Ford, til að innkalla 360.000 bíla í Bandaríkjunum vegna galla í rafeindastýrðri eldsneytisgjöf bílanna. Viðskipti erlent 24.11.2006 12:56
Olíuverð hækkaði lítillega Heimsmarkaðverð á hráolíu hækkaði lítillega í rafrænum viðskiptum á markaði í Bandaríkjunum í dag. Búist er við nokkurri eftirspurn eftir eldsneyti vestanhafs um helgina en Þakkargjörðarhátíðin er nú að renna þar í garð. Verðið hefur lækkað um 23 prósent síðan það náði hámarki í júlí í sumar. Viðskipti erlent 24.11.2006 11:25
Hluthafar hindra yfirtöku á Aer Lingus Sjóður í eigu starfsmannafélags írska flugfélagsins Aer Lingus, sem á stóran hlut í flugfélaginu, hefur fellt yfirtökutilboð írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair í félagið. Breska ríkisútvarpið segir sjóðinn geta komið í veg fyrir yfirtöku Ryanair á Aer Lingus. Viðskipti erlent 24.11.2006 10:01
Sony innkallar stafrænar myndavélar Japanski hátækniframleiðandinn Sony hefur ákveðið að innkalla átta gerðir stafrænna myndavéla vegna galla í myndnema sem gerir það að verkum að notendur geta átt í erfiðleikum með að sjá á skjá vélarinnar þegar þeir taka myndir. Forsvarsmenn Sony hafa neitað að tjá sig um það hversu margar myndavélar verði innkallaðar. Viðskipti erlent 24.11.2006 09:26
Beita sér ekki gegn yfirtöku á Qantas Ríkisstjórn Ástralíu ætlar ekki að beita sér gegn því að ástralski bankinn Macquire og bandaríska fjárfestingafélagið Texas Pacific geri yfirtökutilboð í ástralska flugfélagið Qantas. Viðskipti erlent 24.11.2006 09:13
Peningaskápurinn... „Þeir börðust við okkur um þorskinn og nú eru þeir að taka yfir verslunargöturnar, tónlistarvinsældarlistana, sjónvarpsskjáina og jafnvel fótboltafélögin okkar." Þannig hefst löng og ítarleg grein sem birtist í vefútgáfu The Independent í gær þar sem rakið er hvernig Íslendingar hafa skotið upp kollinum á ýmsum sviðum bresks þjóðlífs á undanförnum árum. Viðskipti innlent 23.11.2006 20:16