Erlent Hagnaður Pepsi eykst mikið Hagnaður bandaríska gosdrykkjaframleiðandans Pepsi nam 102 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi. Þetta er 71 prósents aukning á milli ára. Viðskipti erlent 12.10.2006 12:43 Olíuverð ekki lægra síðan í desember Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag meðal annars vegna aukinna umframbirgða af olíu. Verðið hefur ekki verið lægra síðan í desember á síðasta ári. Viðskipti erlent 12.10.2006 11:57 Samþykkti umdeilt frumvarp um þjóðarmorð Tyrkja á Armenum Neðri deild franska þingsins samþykkti í dag frumvarp sem gerir það refsivert að neita því að Armenar hafi sætt þjóðernishreinunum af hálfu Ottómanaveldis Tyrkja árið 1915. Tyrkir hafa mótmælt þessari lagasetningu hástöfum og segja að hún muni skaða samskipti þjóðanna. Erlent 12.10.2006 10:11 Drápu átta menn á sjónvarpsstöð í Bagdad Byssumenn réðust í morgun inn á sjónvarpsstöð í Bagdad og drápu átta menn sem þar voru að störfum. Írösk lögregla segir mennina hafa verið í lögreglubúningum og ekið upp að stöðinni í bílalest þar sem þeir stöðvuðu og skutu öryggisverði fyrir utan bygginguna og tæknimenn sem voru inni. Erlent 12.10.2006 09:44 Bandaríkjamenn senda öryggisráði nýja ályktun Bandaríkjamenn hafa samið ný drög að ályktun um refsiaðgerðir til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna gegn Norður Kóreu eftir kjarnorkutilraun þeirra í byrjun vikunnar. Þeir vilja að ráðið greiði atkvæði um drögin fyrir morgundaginn, þrátt fyrir andstöðu Kína gegn hluta af tillögunum um efnahags-og vopnaþvinganir. Erlent 12.10.2006 08:59 Flugvél flaug á byggingu í New York Lítilli einkaflugvél var flogið inn í 50 hæða háhýsi á Manhattan eyju í New York undir kvöld að íslenskum tíma. Skráður eigandi að flugvélinni er Cory Lidle, hafnaboltaleikari hjá New York Yankees. Talið er að hann hafi flogið vélinni og hafi látið lífið, ásamt flugkennara sem var með honum. Erlent 11.10.2006 19:10 Veita um 70 milljónir í friðarsjóð SÞ Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur ákveðið að veita framlag sem nemur einni milljón bandaríkjadala, um 70 milljónum króna til sérstaks sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna til uppbyggingar friðar í stríðshrjáðum löndum (Peacebuilding Fund). Innlent 11.10.2006 17:01 Danir bíða föstudagsins með kvíða Erlent 11.10.2006 16:53 Spilaði tölvuleik með hugarorku Erlent 11.10.2006 16:36 Morðingja Lennons synjað um reynslulausn Erlent 11.10.2006 16:06 Tólf látnir í lestarslysinu í Lorraine-héraði Tólf eru látnir og um tuttugu slasaðir eftir lestarslysið í Lorraine-héraði í Frakklandi í morgun þar sem farþegarlest og flutningalest rákust saman. Áreksturinn varð í Zoufftgen, nærri landamærunum að Lúxemborg, en farþegalestin var á leið til Nancy. Erlent 11.10.2006 16:01 Engin árás á Norður-Kóreu segir Bush Erlent 11.10.2006 15:27 Yfir 650 þúsund Írakar hafa fallið Erlent 11.10.2006 15:03 Fjárlagahalli í Bandaríkjunum 17 þúsund milljarðar á þessu ári Fjárlagahalli í Bandaríkjunum á þessu fjárlagaári nemur um 248 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði um 17 þúsund milljarða króna. Frá þessu greindi fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna í dag. Tekjur ríkissjóðs Bandaríkjanna hafa aldrei verið meiri en á þessu ári og ekki heldur útgjöld en engu að síður er fjárlagahallinn minni en í fyrra þegar hann var 319 milljarðar bandaríkjadala, um 21.700 milljarða króna. Erlent 11.10.2006 14:24 Fagna lækkun virðisaukaskatts en vilja afnema tolla og vörugjöld Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka virðisaukaskatt á matvæli, veitingaþjónustu og hótelgistingu sem og lækkun tolla á innflutt matvæli og afnámi vörugjalda að mestu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Innlent 11.10.2006 14:08 Geislavirkir sniglar á Spáni þar sem bandarísk sprengjuflugvél fórst Erlent 11.10.2006 13:56 Sterling uppvíst að annarri gjaldtöku Flugfélagið Sterling, sem nýverið varð uppvíst að því að innheimta opinberan flugskatt af hverjum farþega í Svíþjóð án þess að skatturinn væri til, er nú uppvíst af annarri gjaldtöku án þess að viðskiptavinirnir viti af. Erlent 11.10.2006 12:46 Alvarlegt lestarslys í Frakklandi Að minnsta kosti níu eru látnir og um tuttugu slasaðier eftir að farþegalest og flutningalest rákust saman í norðausturhluta Frakklands nú fyrir hádegið. Fregnir af slysinu eru enn óljósar og því gæti tala látinna átt eftir að hækka. Erlent 11.10.2006 11:33 Aer Lingus berst gegn Ryanair Lífeyrissjóður flugmanna írska flugfélagsins Aer Lingus hefur keypti 2,12 prósent hlutabréfa eða 9,8 milljón hluti í eigin félagi með það fyrir augum að sporna gegn yfirtöku lággjaldaflugfélagsins Ryanir í Aer Lingus. Lífeyrissjóðurinn greiddi 3,04 evrur fyrir hlutinn sem er tæpri evru yfir útboðsgengi bréfanna í almennu hlutafjárútboði í síðustu viku. Viðskipti erlent 11.10.2006 11:28 Saddam Hussein mætir aftur í dómsal Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, sneri aftur í dómsalinn í Bagdad í dag en dómari henti honum þaðan út í gær fyrir háreysti. Hussein og sex fyrrverandi samstarfsmenn hans innan ríkisstjórnar Íraks sæta nú réttarhöldum vegna ákæru um stríðsglæpi og þjóðarmorð á Kúrdum í valdatíð Husseins. Erlent 11.10.2006 11:01 Hóta frekari tilraunasprengingum í N-Kóreu Norður-Kóreumenn hóta frekari kjarnorkutilraunum ef Bandaríkin halda herskárri stefnu sinni gagnvart landinu til streitu. Frá þessu greina japanskir fjölmiðlar og hafa eftir Kim-Yong-nam, næstráðanda við Kim Jong-il, forseta landsins, að ef Bandaríkin haldi áfram að beita Norður-Kóreu þrýstingi muni stjórnvöld í Pyongyang svara því með áþreifanlegum aðgerðum. Erlent 11.10.2006 10:06 Enn lækkar olíuverðið Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að fjárfestar drógu í efa að OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, muni draga úr olíuframleiðslu. Um tíma hafði hráolíuverðið ekki verið lægra í átta mánuði. Viðskipti erlent 11.10.2006 10:06 Vilja refsiaðgerðir Fastaríki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna reyna nú að koma sér saman um aðgerðir gegn Norður-Kóreu eftir tilraun þeirra síðarnefndu með kjarnorkusprengju aðfaranótt mánudags. Kínverjar virðast hafa misst þolinmæðina gagnvart Kim Jong-Il og eru reiðubúnir að samþykkja harðar refsiaðgerðir. Innrás kemur þó ekki til greina. Erlent 10.10.2006 19:13 Fjórir fórust Fjórir fórust þegar leiguflugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways rann út af flugbrautinni í Storð í Vestur-Noregi í morgun. Sextán voru um borð og náðu hinir tólf að komast sjálfir út úr flakinu, rétt áður en það varð alelda. Erlent 10.10.2006 19:11 Opnað aftur á Heathrow Erlent 10.10.2006 16:52 Putin fordæmir morð á blaðakonu Erlent 10.10.2006 16:16 Playboykóngurinn minnkar við sig Erlent 10.10.2006 15:02 Vond eiginkona -og móðir Erlent 10.10.2006 14:49 Álma rýmd á Heathrow flugvelli Erlent 10.10.2006 14:36 Annað stóra flugslysið á Stord Erlent 10.10.2006 13:53 « ‹ 257 258 259 260 261 262 263 264 265 … 334 ›
Hagnaður Pepsi eykst mikið Hagnaður bandaríska gosdrykkjaframleiðandans Pepsi nam 102 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi. Þetta er 71 prósents aukning á milli ára. Viðskipti erlent 12.10.2006 12:43
Olíuverð ekki lægra síðan í desember Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag meðal annars vegna aukinna umframbirgða af olíu. Verðið hefur ekki verið lægra síðan í desember á síðasta ári. Viðskipti erlent 12.10.2006 11:57
Samþykkti umdeilt frumvarp um þjóðarmorð Tyrkja á Armenum Neðri deild franska þingsins samþykkti í dag frumvarp sem gerir það refsivert að neita því að Armenar hafi sætt þjóðernishreinunum af hálfu Ottómanaveldis Tyrkja árið 1915. Tyrkir hafa mótmælt þessari lagasetningu hástöfum og segja að hún muni skaða samskipti þjóðanna. Erlent 12.10.2006 10:11
Drápu átta menn á sjónvarpsstöð í Bagdad Byssumenn réðust í morgun inn á sjónvarpsstöð í Bagdad og drápu átta menn sem þar voru að störfum. Írösk lögregla segir mennina hafa verið í lögreglubúningum og ekið upp að stöðinni í bílalest þar sem þeir stöðvuðu og skutu öryggisverði fyrir utan bygginguna og tæknimenn sem voru inni. Erlent 12.10.2006 09:44
Bandaríkjamenn senda öryggisráði nýja ályktun Bandaríkjamenn hafa samið ný drög að ályktun um refsiaðgerðir til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna gegn Norður Kóreu eftir kjarnorkutilraun þeirra í byrjun vikunnar. Þeir vilja að ráðið greiði atkvæði um drögin fyrir morgundaginn, þrátt fyrir andstöðu Kína gegn hluta af tillögunum um efnahags-og vopnaþvinganir. Erlent 12.10.2006 08:59
Flugvél flaug á byggingu í New York Lítilli einkaflugvél var flogið inn í 50 hæða háhýsi á Manhattan eyju í New York undir kvöld að íslenskum tíma. Skráður eigandi að flugvélinni er Cory Lidle, hafnaboltaleikari hjá New York Yankees. Talið er að hann hafi flogið vélinni og hafi látið lífið, ásamt flugkennara sem var með honum. Erlent 11.10.2006 19:10
Veita um 70 milljónir í friðarsjóð SÞ Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur ákveðið að veita framlag sem nemur einni milljón bandaríkjadala, um 70 milljónum króna til sérstaks sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna til uppbyggingar friðar í stríðshrjáðum löndum (Peacebuilding Fund). Innlent 11.10.2006 17:01
Tólf látnir í lestarslysinu í Lorraine-héraði Tólf eru látnir og um tuttugu slasaðir eftir lestarslysið í Lorraine-héraði í Frakklandi í morgun þar sem farþegarlest og flutningalest rákust saman. Áreksturinn varð í Zoufftgen, nærri landamærunum að Lúxemborg, en farþegalestin var á leið til Nancy. Erlent 11.10.2006 16:01
Fjárlagahalli í Bandaríkjunum 17 þúsund milljarðar á þessu ári Fjárlagahalli í Bandaríkjunum á þessu fjárlagaári nemur um 248 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði um 17 þúsund milljarða króna. Frá þessu greindi fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna í dag. Tekjur ríkissjóðs Bandaríkjanna hafa aldrei verið meiri en á þessu ári og ekki heldur útgjöld en engu að síður er fjárlagahallinn minni en í fyrra þegar hann var 319 milljarðar bandaríkjadala, um 21.700 milljarða króna. Erlent 11.10.2006 14:24
Fagna lækkun virðisaukaskatts en vilja afnema tolla og vörugjöld Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka virðisaukaskatt á matvæli, veitingaþjónustu og hótelgistingu sem og lækkun tolla á innflutt matvæli og afnámi vörugjalda að mestu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Innlent 11.10.2006 14:08
Sterling uppvíst að annarri gjaldtöku Flugfélagið Sterling, sem nýverið varð uppvíst að því að innheimta opinberan flugskatt af hverjum farþega í Svíþjóð án þess að skatturinn væri til, er nú uppvíst af annarri gjaldtöku án þess að viðskiptavinirnir viti af. Erlent 11.10.2006 12:46
Alvarlegt lestarslys í Frakklandi Að minnsta kosti níu eru látnir og um tuttugu slasaðier eftir að farþegalest og flutningalest rákust saman í norðausturhluta Frakklands nú fyrir hádegið. Fregnir af slysinu eru enn óljósar og því gæti tala látinna átt eftir að hækka. Erlent 11.10.2006 11:33
Aer Lingus berst gegn Ryanair Lífeyrissjóður flugmanna írska flugfélagsins Aer Lingus hefur keypti 2,12 prósent hlutabréfa eða 9,8 milljón hluti í eigin félagi með það fyrir augum að sporna gegn yfirtöku lággjaldaflugfélagsins Ryanir í Aer Lingus. Lífeyrissjóðurinn greiddi 3,04 evrur fyrir hlutinn sem er tæpri evru yfir útboðsgengi bréfanna í almennu hlutafjárútboði í síðustu viku. Viðskipti erlent 11.10.2006 11:28
Saddam Hussein mætir aftur í dómsal Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, sneri aftur í dómsalinn í Bagdad í dag en dómari henti honum þaðan út í gær fyrir háreysti. Hussein og sex fyrrverandi samstarfsmenn hans innan ríkisstjórnar Íraks sæta nú réttarhöldum vegna ákæru um stríðsglæpi og þjóðarmorð á Kúrdum í valdatíð Husseins. Erlent 11.10.2006 11:01
Hóta frekari tilraunasprengingum í N-Kóreu Norður-Kóreumenn hóta frekari kjarnorkutilraunum ef Bandaríkin halda herskárri stefnu sinni gagnvart landinu til streitu. Frá þessu greina japanskir fjölmiðlar og hafa eftir Kim-Yong-nam, næstráðanda við Kim Jong-il, forseta landsins, að ef Bandaríkin haldi áfram að beita Norður-Kóreu þrýstingi muni stjórnvöld í Pyongyang svara því með áþreifanlegum aðgerðum. Erlent 11.10.2006 10:06
Enn lækkar olíuverðið Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að fjárfestar drógu í efa að OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, muni draga úr olíuframleiðslu. Um tíma hafði hráolíuverðið ekki verið lægra í átta mánuði. Viðskipti erlent 11.10.2006 10:06
Vilja refsiaðgerðir Fastaríki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna reyna nú að koma sér saman um aðgerðir gegn Norður-Kóreu eftir tilraun þeirra síðarnefndu með kjarnorkusprengju aðfaranótt mánudags. Kínverjar virðast hafa misst þolinmæðina gagnvart Kim Jong-Il og eru reiðubúnir að samþykkja harðar refsiaðgerðir. Innrás kemur þó ekki til greina. Erlent 10.10.2006 19:13
Fjórir fórust Fjórir fórust þegar leiguflugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways rann út af flugbrautinni í Storð í Vestur-Noregi í morgun. Sextán voru um borð og náðu hinir tólf að komast sjálfir út úr flakinu, rétt áður en það varð alelda. Erlent 10.10.2006 19:11