Kvöldfréttir Stöðvar 2
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 64 ›
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við ítarlega yfir sátt fjármálaeftirlitsins og Íslandsbanka vegna brota bankans við sölu á 22,5 prósenta hlut í bankanum í mars í fyrra. Bankinn hefur sæst á að greiða 1,1 milljarð króna í sekt en eftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði farið gegn fjölmörgum reglum sem giltu um útboðið. Við heyrum meðal annars í fjármálaráðherra, aðstoðarseðlabankastjóra sem fer með fjármálaeftirlitið og forstjóra bankasýslunnar. Innlent 26.6.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar í kvöld verður rætt við afbrotafræðing, sem segir að aukin tíðni manndrápsmála kunni að vera komin til að vera, þó bylgjur slíkra mála hafi vissulega komið og farið á árum áður. Hann segir fjölda útlendinga sem fremji eða verði fyrir afbrotum vera merki um viðkvæmari stöðu þeirra. Innlent 25.6.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar fjöllum við um hreint ótrúlega atburðarás í Rússlandi síðastliðinn sólarhring. Málaliðahópur sem hafði lýst því yfir að steypa ætti Vladimír Pútín forseta af stóli virðist hættur við, og hefur málaliðum sem sóttu að Moskvu verið snúið við af leiðtoga hópsins. Við förum ítarlega í málið í fréttatímanum og ræðum við utanríkisráðherra. Innlent 24.6.2023 18:13
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar í kvöld fjöllum við um 1,2 milljarða króna sekt sem Íslandsbanki hefur samþykkt að greiða vegna brota á reglum við framkvæmd á útboði á hlut ríkisins í bankanum á síðasta ári. Bankastjórinn íhugar ekki stöðu sína en vildi ekki tjá sig við fréttastofu um hvort starfsfólki hefði verið sagt upp vegna málsins. Innlent 23.6.2023 18:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum kynnum við okkur aðstæður á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem forstjórinn sakar stjórnvöld um að svelta stofnunina fjárhagslega. Hann hefur einnig óskað eftir að Umboðsmaður Alþingis taki afstöðu til framgöngu ráðherra, með þátttöku ráðuneytisstjóra gagnvart honum þegar heffur upplýst þá um óþægilegar staðreyndir eða gagnrýnt stjórnvöld. Hann hafi verið verið beittur óeðlilegum þrýstingi og orðið fyrir óviðunandi framkomu. Innlent 22.6.2023 18:29
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við yfir dóm Hæstaréttar í einu umtalaðasta morðmáli íslandssögunnar þegar Armando Beqirai var myrtur fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði í febrúar 2021. Hæstiréttur staðfesti sök allra fjögurra sakborninga en mildaði dóma Landsréttar yfir þeim öllum. Innlent 21.6.2023 18:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við ítarlega yfir ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um tímabundið bann við veiðum á langreyði. Ákvörðunin hefur valdið titringi innan samstarfsflokka Vinstri grænna í ríkisstjórn en ráðherra óttast ekki áhrif á stjórnarsamstarfið. Innlent 20.6.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum heyrum við í Guðrúnu Hafsteinsdóttur nýjum dómsmálaráðherra sem segir kerfið í kringum móttöku flóttafólks komið að þolmörkum. Þá segir formaður Sjálfstæðisflokksins kostnaðinn við þá sem bíða svara um hvort þeir fái hæli kominn í um tíu milljarða á ári. Innlent 19.6.2023 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar fjöllum við um yfirvofandi ráðherraskipti, en í dag samþykkti þingflokkur Sjálfstæðisflokksins tillögu Bjarna Benediktssonar um að Guðrún Hafsteinsdóttir tæki við embætti dómsmálaráðherra af Jóni Gunnarssyni. Skiptin ganga formlega í gegn á ríkisráðsfundi á morgun. Við heyrum frá formanninum, tilvonandi og fráfarandi ráðherra og prófessor í stjórnmálafræði. Innlent 18.6.2023 18:04
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 fjöllum við um mannslát í Hafnarfirði, en tveir menn voru handteknir í morgun eftir að sá þriðji fannst látinn í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. Innlent 17.6.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar verður rætt við Guðlaug Þór Þórðarson umhverfisráðherra, um horfur í máli Hvammsvirkjunar, sem nú er í uppnámi eftir að virkjanaleyfi var fellt úr gildi. Ráðherra segir að skoða þurfi hvað fór úrskeiðis við virkjanaleyfið og að það megi ekki taka langan tíma. Útilokað sé að bíða með öflun grænnar orku hér á landi ef Ísland ætli að ná loftslagsmarkmiðum sínum. Innlent 16.6.2023 18:06
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum segjum við frá ótrúlegum vendingum í virkjanamálum. Hvammsvirkjun sem virtist á beinu brautinni í gær er aftur komin í algert uppnám eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi virkjaleyfið úr gildi í dag. Innlent 15.6.2023 18:03
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá mikilvægu skrefi sem stigið var til að Hvammsvirkjun geti orðið að veruleika. Kristján Már er fyrir austan fjall og segir okkur frá afgreiðslu Skeiða- og Gnúpverjahrepps á málinu. Innlent 14.6.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tæplega þúsund milljarðar fara í uppbyggingu samgöngumannvirkja á næstu fimmtán árum samkvæmt samgönguáætlun sem innviðaráðherra kynnti í dag. Lokið verði við uppbyggingu varaflugvalla fyrir alþjóðaflugið og áætlun lögð fram um gerð allt að fjórtán jarðganga sem öll verði með gjaldtöku ásamt eldri göngum. Fjallað verður ítarlega um nýja áætlun í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 13.6.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Annar tveggja sakborninga í hryðjuverkamálinu svokallaða mældi bil á milli götulokana í Gleðigöngunni til þess að kanna hvort hægt væri að aka stóru ökutæki þar í gegn. Samkvæmt nýrri ákæru ræddu þeir um að fljúga dróna fylltum sprengiefni inn á Alþingi. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við verjanda annars þeirra í beinni útsendingu. Innlent 12.6.2023 17:58
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Reykjavíkurborg brýtur lög með verklagi sínu í kringum biðlista einstaklinga eftir sértækum húsnæðisúrræðum að sögn lögmanns Landssamtakanna Þroskahjálp. Á annað hundrað manns eru á biðlista og enginn veit hvenær röðin kemur að þeim. Innlent 11.6.2023 17:50
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Landssamtökin Þroskahjálp telja að Reykjavíkurborg sé bótaskyld gagnvart öllum fötluðum umsækjendum á biðlista um sértæk húsnæðisúrræði eftir að dómur féll í máli þroskahamlaðs manns árið 2021. Faðir ungs manns með einhverfu, sem hefur verið á biðlista í tæp fimm ár, segir stöðuna mjög erfiða. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 10.6.2023 18:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Utanríkisráðherra segir enga ástæðu til að halda úti starfsemi sendiráðs í Moskvu þegar samskipti og viðskipti Íslands og Rússlands væru nánast engin og ætlar því að loka sendiráðinu. Það væri einnig hugsað í samhengi við alþjóðlegar aðgerðir til að einangra Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 9.6.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum rýnum við í ágreininginn í viðræðum BSRB og sveitarfélaganna en í morgun sleit sáttasemjari viðræðum fulltrúa þeirra eftir aðeins klukkustundar fund, þar sem ekkert nýtt kom fram. Innlent 6.6.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkisstjórnin boðar aðhald og ætlar að spara þrjátíu og sex milljarða með nokkrum aðgerðum til að sporna gegn verðbólgu og frekari vaxtahækkunum. Þá hefur verið ákveðið að draga úr launahækkun æðstu embættismanna. Við ræðum við forsætisráðherra um fyrirhugaðar aðgerðir og verðum í beinni frá Alþingi með formönnum Samfylkingar og Flokks fólksins í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 5.6.2023 17:59
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Samninganefndir BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa fundað sleitulaust hjá ríkissáttasemjara í allan dag. Innlent 4.6.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá skýrslu sem segir viðbrögð starfsmanna sumarbúðanna í Reykjadal hafa verið ómarkviss, ámælisverð og alvarleg þegar níu ára stúka með fötlun greindi frá því að þroskaskaskertur starfsmaður hefði brotið á henni kynferðislega. Innlent 1.6.2023 18:07
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við yfir nýútgefið fasteignamat fyrir næsta ár. Töluverður munur er á hækkun á mati íbúða eftir svæðum og hverfum á höfuðborgarsvæðinu en að jafnaði hækkar fasteignamat þar um 13 prósent. Mest hækkar það í prósentum á Vestfjörðum og Austfjörðum. Innlent 31.5.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ráðherrar skilja gremju almennings vegna launahækkana æðstu embættismanna ríkisins en segja þær í samræmi við lög. Forseti Alþýðusambands Íslands segir engin lög yfir það hafin að ekki megi endurskoða þau. Nauðsynlegt sé að skoða ástandið í samfélaginu að hverju sinni. Innlent 30.5.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Framkvæmdastjóri Samtakanna 78 segir nýsamþykkt lög um samkynhneigða í Úganda þau hættulegustu í heimi í dag fyrir hinsegin fólk og geri það nánast réttdræpt. Ísland hefur átt þróunarsamstarfi við Úganda í áratugi. Innlent 29.5.2023 17:56
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dauðir lundar og ritur hafa fundist í hundraðatali í fjörum við Faxaflóa undanfarna daga. Stórfelldur fugladauði þvert á tegundir þykir óvenjulegur. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við fuglafræðing, sem segir dauðann mikið áhyggjuefni. Innlent 28.5.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjölmargar sundlaugar á landsbyggðinni voru lokaðar í dag vegna verkfalla. Lokað verður fram á þriðjudag, á þessari fyrstu ferðahelgi sumarsins. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 heyrum við í ferðalöngum sem komu að lokuðum dyrum sundlaugarinnar í Borgarnesi voru svekktir að missa af sólinni í lauginni. Innlent 27.5.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Álag á starfsfólk og rúmanýting á legudeildum er að skapa neyðarástand í heilbrigðiskerfinu segir formaður Læknafélags Reykjavíkur. Læknafélag Íslands biðlar til stjórnvalda um að grípa inn í. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 26.5.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formaður VR segir galið að seðlabankastjóri skuli skella skuldinni á verkalýðshreyfinguna þegar kemur að verðbólgu í landinu. Hann segir endalausar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar vera óskiljanlegar. Innlent 25.5.2023 18:30
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Seðlabankinn mun ekki hika við að hækka meginvexti sína í tveggja stafa tölu ef á þarf að halda til að ná niður verðbólgu að sögn seðlabankastjóra. Bankinn hækkaði vexti um 1,25 prósentustig í morgun og skorar á aðila vinnumarkaðarins að gera hófsama langtímasamninga og stjórnvöld að auka aðhald sitt í efnahagsmálum. Innlent 24.5.2023 18:10