Innlent Nafn konunnar sem lést Konan sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við Langsstaði aðfaranótt mánudags hét Rósa Björg Guðmundsdóttir til heimilis að Vallarási 1 í Reykjavík. Rósa var fædd 4. apríl 1970. Hún var ógift og barnlaus. Innlent 8.8.2006 19:01 Kríuvarp virðist hafa brugðist á suðvesturhorninu Kríuvarp virðist hafa brugðist á suðvesturhorninu og þá sérstaklega vestast á Seltjarnarnesi þar sem algjör viðkomubrestur varð hjá kríunni. Fuglafræðingur telur að sandsílaskorti sé um að kenna og segir hann það vera áhyggjuefni fyrir fleiri fuglategundir. Innlent 8.8.2006 18:51 Bílar á bið í Herjólf Svo mikil örtröð er í Herjólf, eftir Þjóðhátíð í Eyjum, að fólk með bíla kemst ekki frá Vestmannaeyjum í land. Innlent 8.8.2006 18:48 Hinsegin dagar framundan Hátíðin Hinsegin dagar er ein af stærstu árlegu hátíðum landsins og verður nú haldin í áttunda sinn, dagana 10.- 13. ágúst. Innlent 8.8.2006 16:23 Betur fór en á horfðist í hörðum árekstri strætó og fólksbíls Fólksbíll og strætisvagn lentu í hörðum árekstri á gangamótum, Stangar og Breiðholtsbrautar á ellefta tímanum í morgun. Í fyrstu var talið að um alvarlegt slys væri að ræða og því viðbúnaður slökkviliðs og lögreglu töluverður. Betur fór þó en á horfðist en ökumaður og farþegi fólksbílsins voru fluttir á slysadeild Landspítalans með skurð á höfði og ökumaður strætóins kenndi sér eymsla í hné. Töluvert tjón varð á ökutækjum. Innlent 8.8.2006 16:07 Fékk reykeitrun við störf á vettvangi Einn lögreglumaður þurfti að leggjast inn á sjúkrahús vegna reykeitrunar sem hann fékk við störf á vettvangi þegar eldur kviknaði í Síldarverksmiðjunni á Akranesi síðastliðinn föstudag. Hann er enn óvinnufær vegna eitrunarinnar. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða en málið er í rannsókn og miðar henni vel. Innlent 8.8.2006 15:37 Annasöm helgi hjá lögreglunni á Eskifirði Helgin var nokkuð erilsöm hjá lögreglunni á Eskifirði vegna útihátíðarinnar Neistaflugs. Talið er að um 2000 manns hafi sótt hátíðina. Engin líkamsárás var kærð til lögreglu en þrjú fíkniefnamál komu upp um helgina. Alls voru 23 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og þá voru nokkrir ökumenn kærðir fyrir önnur umferðarlagabrot. Lögreglumenn voru þó almennt ánægðir með umferðina sem var mikil og þung alla helgina. Innlent 8.8.2006 15:16 Vatnsleki í íbúð í Safamýri Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan tvö í dag vegna vatnsleka í íbúð í Safamýri. Húsráðendur voru heima þegar heitt vatn tók að leka í baðherbergi í íbúðinni, sem eru í fjölbýli, en fólkinu var engin hætta búin. Slökkviliðsmenn vinna nú að því að stöðva lekann. Svo virðist sem gólfefni séu skemmd en vatnið hefur ekki borist inn í nærliggjandi íbúðir. Innlent 8.8.2006 14:33 Vilja að varnarsvæðið verði hreinsað á kostnað hersins Landvernd og sex norræn náttúruverndarsamtök beina því til ríkisstjórnar Íslands að menguð svæði á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli verði hreinsuð á kostnað mengunarvaldsins. Innlent 8.8.2006 12:07 Sprengjuæfing síðar í mánuðinum Fimmta og ef til vill síðasta fjölþjóðlega sprengueyðingaræfingin verður haldin á Keflavíkurflugvelli síðar í mánuðinum, með þáttöku hátt í 80 erlendra sérfræðinga. Æfingar þessar, sem bera heitið Northern Challenge, hófust eftir að bandaríkjaher hætti að efna til reglubundinna æfinga bandaríska heimavarnarliðsins hér á landi. Innlent 8.8.2006 12:01 Þreyttur og kaldur eftir hrakningar næturinnar Maðurinn, sem leitað var að í Skaftafelli frá því á hádegi í gær, var orðinn hrakinn, kaldur og svangur þegar björgunarmenn fundu hann á Skeiðarársandi í morgun. Hann fannst kl. 8 í morgun u.þ.b fimm kílómetra fyrir sunnan þjóðveginn á milli Skaftafellsár og Skeiðarár. Innlent 8.8.2006 11:56 Stígamót gagnrýna villandi fréttaflutning Stígamót gagnrýna villandi fréttaflutning helgarinnar í tengslum við sjónarmið samtakanna varðandi útihátíðarhald og kynferðisbrot. Samtökin ítreka að þau hafi boðið upp á þjónustu sína fyrir helgina til þess eins að tryggja að skortur á þjálfuðu starfsfólki kæmi ekki í veg fyrir að áfallahjálp væri í boði yfir verslunarmannahelgina. Innlent 8.8.2006 11:46 Alþjóðlegt skátamót sett í Perlunni Það fór lítið fyrir sólinni þegar 250 skátar komu saman við Perlunna í morgun þar sem alþjóðlegt skátamót var sett. Bandalag íslenskra skáta stendur fyrir mótinu sem haldið er hér á landi í þriðja sinn. Skátarnir eru á aldrinum 15-30 ára og koma frá tíu löndum, meðal annars frá Færeyjum og Hong Kong. Skátarnir munu fara í ferðir um landið næstu fjóra daga en skátarnir velja sér ferðir sem boðið verður upp á víða um land. Að ferðunum loknum munu skátarnir sameinast á ný á Úlfljótsvatni og dvelja þar í tvær nætur. Innlent 8.8.2006 11:42 Gistinóttum fjölgaði um 8% í júnímánuði Gistinóttum á hótelum í júní síðastliðnum fjölgaði um tæp 8% eða úr tæplega 124.000 133.000 frá því í sama mánuði á síðasta ári. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarðar eða um 17%. Fjölgun gistinátta er bæði meðal Íslendinga og útlendinga en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 22% en um 5% meðal útlendinga. Innlent 8.8.2006 09:57 Engir mótmælendur á Kárahnjúkasvæðinu Allt er nú með kyrrum kjörum á Kárahnjúkasvæðinu eftir mótmæli síðustu daga. Síðustu mótmælendurnir voru fluttir frá búðunum við Lindir í gær og niður á Egilsstaði. Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Egilsstöðum, segir að flutningur fólksins hafi gengið vandræðalaust fyrir sig en allur hópurinn, um tólf manns, var fluttur á Egilsstaði. Það eru því engar búðir við Lindir núna og segir Óskar að lögreglan muni fylgjast með hvort mótmælendur fari á Kárahnjúkasvæðið á ný til að mótmæla. Flestir mótmælandanna eru útlendingar og telur Óskar að þeir séu enn á Egilsstöðum eða nágrenni, en búnaður fólksins er enn í haldi lögreglunnar. Innlent 8.8.2006 09:28 TM hlýtur samþykki til að eignast NEMI Viðskipti innlent 8.8.2006 09:35 Hátt á 200 fíkniefnamál komu upp um helgina Á annað hundrað fíkniefnamál komu til kasta lögreglu um verslunarmannahelgina, aðallega í tengslum við útihátíðir og lang flest á Akureyri. Búist er við að ekki séu öll kurl enn komin til grafar og fleiri mál eigi eftir að koma í ljós. Í mörgum tilvikum er um svonefnd smámál að ræða, eða að fólk hefur verið tekið með fíkniefni til einkaneyslu, en nokkur sölumál eru einnig í rannsókn og í tengslum við þau var hald lagt á talsvert af fíkniefnum. Lögregla hafði víða mjög mjög öflugt eftirlit með þessum málum og kann það að skýra fjölda mála að hluta. Innlent 8.8.2006 08:37 Aðeins 107 kaupsamningum þinglýst í síðustu viku Aðeins 107 kaupsamningum vegna íbúðakaupa var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku, sem er 28 samningum undir meðaltali síðustu tólf vikna. Meðaltalið hefur líka lækkað ört, eða úr 150 samningum fyrir þremur vikum niður í 135 núna. Húsnæðiskaupveltan var 2,7 milljaðrar og hefur aðeins mælst lægri í janúar og apríl, á árinu. Meðal upphæð samninga lækkaði lítillega í síðustu viku, frá 12 vikna meðaltalinu. Innlent 8.8.2006 08:33 Enn gestir í Vestmannaeyjum Slatti af þjóðhátíðargestum er enn í Vestmannaeyjum en búist er við að flestir eða allir komist heim í dag. Þar fór allt vel fram í gærkvöldi og í nótt. Það fóru heldur ekki allir gestir frá Akureyri í gærkvöldi og voru tveir þeirra handteknir í nótt grunaðir umm innbrot og jafnvel fleiri afbrot um helgina. Innlent 8.8.2006 08:30 Umferð gekk vel Þrátt fyrir mjög mikla umferð til höfuðborgarsvæðisins í gær og fram á kvöld, er ekki vitað til þess að neitt slys eða umtalsverð óhöpp hafi orðið. Að sögn lögreglumanna má vel við una, ekki síst í ljósi þess að margir bílar drógu tjaldvagna, fellihýsi eða hjólhýsi, sem ökumenn eru óvanir að hafa aftan í bílum sínum. Þrátt fyrir að umferðin væri alla jafnan róleg, stöðvaði lögreglan á Blönduósi fimmtíu ökumenn fyrir of hraðan akstur og í Vestur Skaftafellssýslu voru 80 stöðvaðir um helgina fyrir hraðakstur. Innlent 8.8.2006 08:27 Fannst á Skeiðarársandi Maðurinn, sem leitað var að í Skaftafelli frá því á hádegi í gær, fannst klukkan átta í morgun á Skeiðarársandi. Hann var þreyttur og hrakinn, en heill á húfi, þegar björgunarsvietarmenn á fjórhjólum óku fram á hann. Hann var ekki vel búin til útivistar, en rigning var á leitarsvæðinu í nótt. Hátt í 200 leitarmenn tóku þátt í leitinni ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar og sporhundum, en leitin var strax blásin af. Ekki liggur fyrir hvers vegna maðurinn yfirgaf tjaldstæðið við þjónustumiðstöðina í fyrrinótt. Innlent 8.8.2006 08:14 Neituðu að greiða atkvæði Skipting menntaráðs Reykjavíkurborgar í tvennt með stofnun leikskólaráðs var afgreidd af fundi menntaráðs í gær. Minnihluti Samfylkingar og Vinstri grænna sat hjá við afgreiðsluna. Innlent 7.8.2006 22:36 Kaupendur í betri stöðu en seljendur Seljendur fasteigna hafa þrýst á um hærra verð en fasteignasalar hafa ráðlagt. Vegna samdráttar í sölu seljast slíkar eignir síður. Fasteignasali segir fólk ekki selja langt undir verðmati. Það hætti frekar við og leigi út. Innlent 7.8.2006 22:36 Starfa undir eigin merkjum Marel hefur keypt danska matvælavélaframleiðandann Scanvaegt International á 109,2 milljónir evra, eða sem nemur tæplega 9,9 milljörðum íslenskra króna. Innlent 7.8.2006 22:36 Lífeyrissjóðir sýni félagslega ábyrgð Formaður Samfylkingar kallar eftir samfélagslegri ábyrgð lífeyrissjóða gegn misskiptingu í þjóðfélaginu. Stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna segir önnur markmið en skýr ávöxtunarsjónarmið vera lögbrot. Innlent 7.8.2006 22:36 Vexti á lánum þarf að lækka Innlent 7.8.2006 22:36 Ísland beiti áhrifum sínum Íslandsdeild Amnesty International sendi Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra áskorun á föstudaginn vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Innlent 7.8.2006 22:37 Aðstandendur eru sáttir Þótt veðurguðirnir hafi ekki verið í sínu besta skapi um helgina var gleðin mikil víðsvegar um landið. Innlent 7.8.2006 22:37 Látin áður en þyrlan kom Kona á fertugsaldri lét lífið í bílslysi á Suðurlandsvegi við Langastaði í Flóahreppi, um hálf eittleytið aðfaranótt mánudags. Innlent 7.8.2006 22:37 Segir stjórnvöld undir þrýstingi bænda Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir stjórnvöld óttast afnám verndartolla búvara enda þrýsti bændur á óbreytt kerfi. Mörg atkvæði séu í húfi. Landbúnaðarráðherra hafnar því og varar við auknum beingreiðslum til bænda. Innlent 7.8.2006 22:36 « ‹ 293 294 295 296 297 298 299 300 301 … 334 ›
Nafn konunnar sem lést Konan sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við Langsstaði aðfaranótt mánudags hét Rósa Björg Guðmundsdóttir til heimilis að Vallarási 1 í Reykjavík. Rósa var fædd 4. apríl 1970. Hún var ógift og barnlaus. Innlent 8.8.2006 19:01
Kríuvarp virðist hafa brugðist á suðvesturhorninu Kríuvarp virðist hafa brugðist á suðvesturhorninu og þá sérstaklega vestast á Seltjarnarnesi þar sem algjör viðkomubrestur varð hjá kríunni. Fuglafræðingur telur að sandsílaskorti sé um að kenna og segir hann það vera áhyggjuefni fyrir fleiri fuglategundir. Innlent 8.8.2006 18:51
Bílar á bið í Herjólf Svo mikil örtröð er í Herjólf, eftir Þjóðhátíð í Eyjum, að fólk með bíla kemst ekki frá Vestmannaeyjum í land. Innlent 8.8.2006 18:48
Hinsegin dagar framundan Hátíðin Hinsegin dagar er ein af stærstu árlegu hátíðum landsins og verður nú haldin í áttunda sinn, dagana 10.- 13. ágúst. Innlent 8.8.2006 16:23
Betur fór en á horfðist í hörðum árekstri strætó og fólksbíls Fólksbíll og strætisvagn lentu í hörðum árekstri á gangamótum, Stangar og Breiðholtsbrautar á ellefta tímanum í morgun. Í fyrstu var talið að um alvarlegt slys væri að ræða og því viðbúnaður slökkviliðs og lögreglu töluverður. Betur fór þó en á horfðist en ökumaður og farþegi fólksbílsins voru fluttir á slysadeild Landspítalans með skurð á höfði og ökumaður strætóins kenndi sér eymsla í hné. Töluvert tjón varð á ökutækjum. Innlent 8.8.2006 16:07
Fékk reykeitrun við störf á vettvangi Einn lögreglumaður þurfti að leggjast inn á sjúkrahús vegna reykeitrunar sem hann fékk við störf á vettvangi þegar eldur kviknaði í Síldarverksmiðjunni á Akranesi síðastliðinn föstudag. Hann er enn óvinnufær vegna eitrunarinnar. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða en málið er í rannsókn og miðar henni vel. Innlent 8.8.2006 15:37
Annasöm helgi hjá lögreglunni á Eskifirði Helgin var nokkuð erilsöm hjá lögreglunni á Eskifirði vegna útihátíðarinnar Neistaflugs. Talið er að um 2000 manns hafi sótt hátíðina. Engin líkamsárás var kærð til lögreglu en þrjú fíkniefnamál komu upp um helgina. Alls voru 23 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og þá voru nokkrir ökumenn kærðir fyrir önnur umferðarlagabrot. Lögreglumenn voru þó almennt ánægðir með umferðina sem var mikil og þung alla helgina. Innlent 8.8.2006 15:16
Vatnsleki í íbúð í Safamýri Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan tvö í dag vegna vatnsleka í íbúð í Safamýri. Húsráðendur voru heima þegar heitt vatn tók að leka í baðherbergi í íbúðinni, sem eru í fjölbýli, en fólkinu var engin hætta búin. Slökkviliðsmenn vinna nú að því að stöðva lekann. Svo virðist sem gólfefni séu skemmd en vatnið hefur ekki borist inn í nærliggjandi íbúðir. Innlent 8.8.2006 14:33
Vilja að varnarsvæðið verði hreinsað á kostnað hersins Landvernd og sex norræn náttúruverndarsamtök beina því til ríkisstjórnar Íslands að menguð svæði á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli verði hreinsuð á kostnað mengunarvaldsins. Innlent 8.8.2006 12:07
Sprengjuæfing síðar í mánuðinum Fimmta og ef til vill síðasta fjölþjóðlega sprengueyðingaræfingin verður haldin á Keflavíkurflugvelli síðar í mánuðinum, með þáttöku hátt í 80 erlendra sérfræðinga. Æfingar þessar, sem bera heitið Northern Challenge, hófust eftir að bandaríkjaher hætti að efna til reglubundinna æfinga bandaríska heimavarnarliðsins hér á landi. Innlent 8.8.2006 12:01
Þreyttur og kaldur eftir hrakningar næturinnar Maðurinn, sem leitað var að í Skaftafelli frá því á hádegi í gær, var orðinn hrakinn, kaldur og svangur þegar björgunarmenn fundu hann á Skeiðarársandi í morgun. Hann fannst kl. 8 í morgun u.þ.b fimm kílómetra fyrir sunnan þjóðveginn á milli Skaftafellsár og Skeiðarár. Innlent 8.8.2006 11:56
Stígamót gagnrýna villandi fréttaflutning Stígamót gagnrýna villandi fréttaflutning helgarinnar í tengslum við sjónarmið samtakanna varðandi útihátíðarhald og kynferðisbrot. Samtökin ítreka að þau hafi boðið upp á þjónustu sína fyrir helgina til þess eins að tryggja að skortur á þjálfuðu starfsfólki kæmi ekki í veg fyrir að áfallahjálp væri í boði yfir verslunarmannahelgina. Innlent 8.8.2006 11:46
Alþjóðlegt skátamót sett í Perlunni Það fór lítið fyrir sólinni þegar 250 skátar komu saman við Perlunna í morgun þar sem alþjóðlegt skátamót var sett. Bandalag íslenskra skáta stendur fyrir mótinu sem haldið er hér á landi í þriðja sinn. Skátarnir eru á aldrinum 15-30 ára og koma frá tíu löndum, meðal annars frá Færeyjum og Hong Kong. Skátarnir munu fara í ferðir um landið næstu fjóra daga en skátarnir velja sér ferðir sem boðið verður upp á víða um land. Að ferðunum loknum munu skátarnir sameinast á ný á Úlfljótsvatni og dvelja þar í tvær nætur. Innlent 8.8.2006 11:42
Gistinóttum fjölgaði um 8% í júnímánuði Gistinóttum á hótelum í júní síðastliðnum fjölgaði um tæp 8% eða úr tæplega 124.000 133.000 frá því í sama mánuði á síðasta ári. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarðar eða um 17%. Fjölgun gistinátta er bæði meðal Íslendinga og útlendinga en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 22% en um 5% meðal útlendinga. Innlent 8.8.2006 09:57
Engir mótmælendur á Kárahnjúkasvæðinu Allt er nú með kyrrum kjörum á Kárahnjúkasvæðinu eftir mótmæli síðustu daga. Síðustu mótmælendurnir voru fluttir frá búðunum við Lindir í gær og niður á Egilsstaði. Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Egilsstöðum, segir að flutningur fólksins hafi gengið vandræðalaust fyrir sig en allur hópurinn, um tólf manns, var fluttur á Egilsstaði. Það eru því engar búðir við Lindir núna og segir Óskar að lögreglan muni fylgjast með hvort mótmælendur fari á Kárahnjúkasvæðið á ný til að mótmæla. Flestir mótmælandanna eru útlendingar og telur Óskar að þeir séu enn á Egilsstöðum eða nágrenni, en búnaður fólksins er enn í haldi lögreglunnar. Innlent 8.8.2006 09:28
Hátt á 200 fíkniefnamál komu upp um helgina Á annað hundrað fíkniefnamál komu til kasta lögreglu um verslunarmannahelgina, aðallega í tengslum við útihátíðir og lang flest á Akureyri. Búist er við að ekki séu öll kurl enn komin til grafar og fleiri mál eigi eftir að koma í ljós. Í mörgum tilvikum er um svonefnd smámál að ræða, eða að fólk hefur verið tekið með fíkniefni til einkaneyslu, en nokkur sölumál eru einnig í rannsókn og í tengslum við þau var hald lagt á talsvert af fíkniefnum. Lögregla hafði víða mjög mjög öflugt eftirlit með þessum málum og kann það að skýra fjölda mála að hluta. Innlent 8.8.2006 08:37
Aðeins 107 kaupsamningum þinglýst í síðustu viku Aðeins 107 kaupsamningum vegna íbúðakaupa var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku, sem er 28 samningum undir meðaltali síðustu tólf vikna. Meðaltalið hefur líka lækkað ört, eða úr 150 samningum fyrir þremur vikum niður í 135 núna. Húsnæðiskaupveltan var 2,7 milljaðrar og hefur aðeins mælst lægri í janúar og apríl, á árinu. Meðal upphæð samninga lækkaði lítillega í síðustu viku, frá 12 vikna meðaltalinu. Innlent 8.8.2006 08:33
Enn gestir í Vestmannaeyjum Slatti af þjóðhátíðargestum er enn í Vestmannaeyjum en búist er við að flestir eða allir komist heim í dag. Þar fór allt vel fram í gærkvöldi og í nótt. Það fóru heldur ekki allir gestir frá Akureyri í gærkvöldi og voru tveir þeirra handteknir í nótt grunaðir umm innbrot og jafnvel fleiri afbrot um helgina. Innlent 8.8.2006 08:30
Umferð gekk vel Þrátt fyrir mjög mikla umferð til höfuðborgarsvæðisins í gær og fram á kvöld, er ekki vitað til þess að neitt slys eða umtalsverð óhöpp hafi orðið. Að sögn lögreglumanna má vel við una, ekki síst í ljósi þess að margir bílar drógu tjaldvagna, fellihýsi eða hjólhýsi, sem ökumenn eru óvanir að hafa aftan í bílum sínum. Þrátt fyrir að umferðin væri alla jafnan róleg, stöðvaði lögreglan á Blönduósi fimmtíu ökumenn fyrir of hraðan akstur og í Vestur Skaftafellssýslu voru 80 stöðvaðir um helgina fyrir hraðakstur. Innlent 8.8.2006 08:27
Fannst á Skeiðarársandi Maðurinn, sem leitað var að í Skaftafelli frá því á hádegi í gær, fannst klukkan átta í morgun á Skeiðarársandi. Hann var þreyttur og hrakinn, en heill á húfi, þegar björgunarsvietarmenn á fjórhjólum óku fram á hann. Hann var ekki vel búin til útivistar, en rigning var á leitarsvæðinu í nótt. Hátt í 200 leitarmenn tóku þátt í leitinni ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar og sporhundum, en leitin var strax blásin af. Ekki liggur fyrir hvers vegna maðurinn yfirgaf tjaldstæðið við þjónustumiðstöðina í fyrrinótt. Innlent 8.8.2006 08:14
Neituðu að greiða atkvæði Skipting menntaráðs Reykjavíkurborgar í tvennt með stofnun leikskólaráðs var afgreidd af fundi menntaráðs í gær. Minnihluti Samfylkingar og Vinstri grænna sat hjá við afgreiðsluna. Innlent 7.8.2006 22:36
Kaupendur í betri stöðu en seljendur Seljendur fasteigna hafa þrýst á um hærra verð en fasteignasalar hafa ráðlagt. Vegna samdráttar í sölu seljast slíkar eignir síður. Fasteignasali segir fólk ekki selja langt undir verðmati. Það hætti frekar við og leigi út. Innlent 7.8.2006 22:36
Starfa undir eigin merkjum Marel hefur keypt danska matvælavélaframleiðandann Scanvaegt International á 109,2 milljónir evra, eða sem nemur tæplega 9,9 milljörðum íslenskra króna. Innlent 7.8.2006 22:36
Lífeyrissjóðir sýni félagslega ábyrgð Formaður Samfylkingar kallar eftir samfélagslegri ábyrgð lífeyrissjóða gegn misskiptingu í þjóðfélaginu. Stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna segir önnur markmið en skýr ávöxtunarsjónarmið vera lögbrot. Innlent 7.8.2006 22:36
Ísland beiti áhrifum sínum Íslandsdeild Amnesty International sendi Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra áskorun á föstudaginn vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Innlent 7.8.2006 22:37
Aðstandendur eru sáttir Þótt veðurguðirnir hafi ekki verið í sínu besta skapi um helgina var gleðin mikil víðsvegar um landið. Innlent 7.8.2006 22:37
Látin áður en þyrlan kom Kona á fertugsaldri lét lífið í bílslysi á Suðurlandsvegi við Langastaði í Flóahreppi, um hálf eittleytið aðfaranótt mánudags. Innlent 7.8.2006 22:37
Segir stjórnvöld undir þrýstingi bænda Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir stjórnvöld óttast afnám verndartolla búvara enda þrýsti bændur á óbreytt kerfi. Mörg atkvæði séu í húfi. Landbúnaðarráðherra hafnar því og varar við auknum beingreiðslum til bænda. Innlent 7.8.2006 22:36