
Lífið

Borghildur býður í bíó
„Okkar hugmynd var að þegar verið væri að þróa og hanna borgarímynd væri hægt að horfa til rannsóknarinnar og vinna eftir henni,“ segir Auður Hreiðarsdóttir, nemandi í arkitektúr við Listaháskóla Íslands.

Borðaði aðeins pasta og pitsur
Natalie Portman þurfti að fylgja ströngu mataræði meðan á tökum kvikmyndarinnar The Black Swan stóð. Leikkonan hætti þó í megrun um leið og tökum lauk.

Útgáfuhátíð Geimsteins
Elsta hljómplötuútgáfa landsins, Geimsteinn, heldur útgáfuhátíð á Nasa á laugardaginn. Þar verður öllum þeim sem gefa út á árinu hjá útgáfunni smalað saman í allsherjar veislu.

Niðurskurður í jóladagatali Sjónvarpsins
„Í ár er jóladagatalið norskt,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri Sjónvarpsins.

Vel þegin upprifjun
Niðurstaða gömlu Melchior-plöturnar aftur fáanlegar í flottri yfirlitsútgáfu.

Lætur eiginkonuna um jólainnkaupin
Leikarinn Ben Affleck var gestur í spjallþætti Ellen DeGeneres fyrir stuttu og ræddi meðal annars jólainnkaupin, sem hann segir eiginkonu sína sjá alfarið um.

Lækkaði í launum
Jim Carrey féllst á umtalsverða launalækkun til að geta leikið í kvikmyndinni I Love You Phillip Morris á móti Ewan McGregor.

Þrefaldur sigur hjá Glee-stjörnu
Lea Michele hefur slegið í gegn í sjónvarpsþáttunum Glee sem njóta fáránlegra vinsælda um hinn vestræna heim.

Sveppi og Dorrit í jólaskapi
Það var hátíðleg stund í Kringlunni um helgina þegar kveikt var á jólatrénu. Það var forsetafrúin Dorrit Moussaieff sem tendraði ljósin á trénu og við sama tækifæri hófst góðgerðasöfnun á jólapökkum undir jólatréð.

Drekka bara kaffi
Sveitasöngkonan Taylor Swift og leikarinn Jake Gyllenhaal sáust í annað sinn saman á kaffihúsinu Frothy Monkey í borginni Nashville nú á þriðjudaginn var. Fylgst er með hverju skrefi parsins, sem hefur fengið gælunafnið „Jaylor" í anda Brangelinu.

Íslenskur iPhone-leikur á markað
„Grunnpælingin er að færa heim klassískrar tónlistar nær börnum,“ segir Viggó Ingimar Jónasson, en í dag kemur út íslenskur tölvuleikur fyrir iPhone sem byggður er á vinsælum barnabókum Hallfríðar Ólafsdóttur um forvitnu músina Maxímús.

Stjörnurnar deila fatasmekk
Þrátt fyrir dýran fatasmekk eiga stjörnurnar það til að kolfalla fyrir sömu flíkinni líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum. Það getur verið skemmtilegt að sjá hvernig persónulegur stíll stjarnanna skín þó í gegn, til dæmis með notkun fylgihluta.

Britney hrædd við kærastann
Fyrrverandi eiginmaður söngkonunnar Britney Spears heldur því fram í viðtali við tímaritið Star Magazine að hún búi við heimilisofbeldi.

Vill halda í æskuna
Leikarinn Tom Cruise er svo hræddur við að eldast að hann er farinn að stelast í snyrtivörur eiginkonu sinnar, leikkonunnar Katie Holmes.

Konungur kjánahrollsins
Leslie Nielsen lést á sunnudaginn, 84 ára að aldri. Leslie var konungur fimmaura-brandaranna, skopstælinga og aulahrollsins og það er erfitt að sjá einhvern feta í fótspor hans.

Harðhausastuð og rómantík
Fjölbreytni ræður ríkjum í kvikmyndahúsum borgarinnar þótt myndir vikunnar séu ekki í hæsta gæðaflokki hjá erlendum kvikmyndaveitum.

Bright Eyes vaknar til lífsins
Hinn fjölhæfi tónlistarmaður Conor Oberst hefur undanfarin ár hvílt aðalbandið sitt, Bright Eyes, og einbeitt sér að öðrum verkefnum. Þar ber hæst bandið Conor Oberst and the Mystic Calley Band sem hann fer vitanlega fyrir en svo er hann einnig meðlimur í súpergrúppunni Monsters of Folk.

Tæpar þrjátíu milljónir platna á fimmtán árum
Sjötta plata The Black Eyed Peas, The Beginning, kom út fyrir skömmu.

Halda Harry Potter hlutverkaleik
„Við gerðum þetta í fyrra og þá vorum við þrír. Við ætlum að reyna að gera þetta aftur núna og fá vonandi fleiri til að vera með,“ segir Ólafur Sverrir Guðmundsson, en hann og vinur hans, Kristján Karl, ætla að halda Harry Potter hlutverkaleik á föstudaginn.

Besta plata Norðurlanda valin
Norrænu tónlistarverðlaunin 2010 verða afhent í fyrsta sinn á norsku tónlistarhátíðinni by:Larm 18. febrúar á næsta ári. 25 íslenskar plötur hafa verið tilnefndar til verðlaunanna og hefur blaðamaðurinn Arnar Eggert Thoroddsen umsjón með valinu hér á landi.

Til heiðurs Deep Purple
Söngvarinn Eyþór Ingi, sem sló í gegn í Bandinu hans Bubba, verður með tónleika til heiðurs rokksveitinni Deep Purple í Hvíta húsinu á Selfossi annað kvöld, föstudagskvöld.

Góðir gestir í jólaglöggi
Útón hélt sitt árlega jólaglögg á Kaffi Rosenberg á þriðjudagskvöld. Hljómsveitin Of Monsters and Men spilaði lög af plötu sinni sem er væntanleg á næsta ári.

Barton reynir að bjarga sér
Sjónvarpsstjarnan Mischa Barton var skærasta stjarna Hollywood-borgar þegar sjónvarpsþættirnir The O.C. voru sýndir úti um allan heim. Svo var framleiðslu þeirra hætt og Barton hefur aldrei almennilega fundið sig nema kannski á knæpum og í örmum vafasamra náunga. Raunar gekk sápuóperan svo langt að Mischa var vistuð á geðdeild til skamms tíma.

The Dark Knight Rises sú síðasta
Christian Bale lýsti því yfir fyrir nokkru að hann hygðist leggja skikkju Batman á hilluna eftir næstu mynd.

Gott að kyssa Ewan
Leikararnir Jim Carrey og Ewan McGregor leika á móti hvor öðrum í kvikmyndinni I Love You William Morris, en þar leika þeir tvo menn sem hittast í fangelsi og fella hugi saman.

Arftakar Stiegs Larsson bíða í röðum eftir tækifæri
Engin ný bók eftir Stieg Larsson kemur út fyrir þessi jól og keppast bókaforlög því um að nefna til sögunnar hina nýja Larsson í sænska glæpatómarúminu sem nú hefur myndast.

Syngja lög Waits
Hljómsveitin The Bad Livers and Broken Hearts Band flytur tónlist eftir Tom Waits i Tjarnarbíói á tvennum tónleikum á laugardagskvöld. Uppselt er á þá fyrri sem hefjast kl. 20 en hinir síðari verða kl. 22.30.

Finnst gott að eldast
Leikkonan Reese Witherspoon segist öruggari með sig nú þegar hún er komin á fertugsaldur en þegar hún var yngri. Þetta segir hún í viðtali við tímaritið Glamour.

Amiinu-krakkar búa til jóladagatal
Krakkarnir í hljómsveitinni Amiinu eru komnir í jólaskap eins og sést vel þegar farið er inn á heimasíðu sveitarinnar, amiina.com.

Dreymir um Hamlet
Johnny Depp viðurkennir í samtali við Vanity Fair að draumahlutverk hans sé danski prinsinn Hamlet úr leikverki Williams Shakespeare. Hann skuldi reyndar hinum sáluga Marlon Brando að leika þetta hlutverk.