Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)
101 102 103 104 105 106 107 108 109 … 149 ›
Aukin neysla mikið áhyggjuefni Heilbrigðisráðherra segir það áhyggjuefni hversu mikið áfengis- og fíkniefnaneysla hefur aukist hér á landi. Áfengisneysla hefur aukist um níu prósent á mann á tíu ára tímabili og notkun á ópíóðum hefur aldrei verið meiri. Innlent 2.12.2021 12:01
Brynjar verður aðstoðarmaður innanríkisráðherra Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, verður aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar í innanríkisráðuneytinu samkvæmt heimildum Innherja. Brynjar á að baki langan feril úr lögmennsku. Innherji 2.12.2021 10:18
Framkvæmdastjóri SAF: „Gott að sjá að stefnuplaggið fari ekki ofan í skúffu“ Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að stjórnarsáttmáli ríkisstjórnar Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri-grænna komi inn á margar af þeim áskorunum sem greinin stendur frammi fyrir. Hann býst við að eiga gott samtal við stjórnvöld um skuldastöðu ferðaþjónustunnar þótt hennar sé ekki getið neins staðar í sáttmálanum. Innherji 2.12.2021 09:02
Stór verkefni fyrir höndum og mörg ófyrirséð Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir nýja ríkisstjórn hennar ganga fulla að bjartsýni til verka. Mörg verkefni þurfi að fara í á kjörtímabilinu, bæði stór og smá, og mörg þeirra sagði Katrín vera ófyrirséð. Innlent 1.12.2021 19:52
Eþíópar á Íslandi hvetja stjórnvöld til stuðnings við stjórn lands síns Hópur fólks frá Eþíópíu sem býr á Íslandi kom saman á Austurvelli í dag til að mótmæla afskiptum vestrænna þjóða af innanríkismálum í Eþíópíu og stuðningi við TPLF hreyfinguna sem fer með völd í Tigray héraði í landinu. Erlent 1.12.2021 19:41
Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra og umræður Umræða um stefnuræðu forsætisráðherra fer fram í kvöld klukkan 19:30. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Hver þingflokkur hefur 6 mínútur í fyrstu umferð, 5 mínútur í annarri umferð og 4 mínútur í þriðju umferð en forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu. Innlent 1.12.2021 19:01
SA segja lykilmálum verið gleymt í stjórnarsáttmála Málin sem gleymdust í nýundirrituðum stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að mati Samtaka atvinnulífsins eru skýrari áherslur á lækkun skulda og forgangsröðun ríkisútgjalda. Þá hafi farist fyrir að ræða sjálfbærni bótakerfanna í sáttmálanum. Loforð um skattalækkanir séu óljós. Innherji 1.12.2021 16:00
Hreinn ráðinn aðstoðarmaður Jóns Hreinn Loftsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar innanríkisráðherra. Hann var aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra í síðustu ríkisstjórn. Innlent 1.12.2021 12:41
Minnir þingmeirihlutann á hverfulleika lífsins Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur fyrstu stefnuræðu nýrrar ríkisstjórnar á Alþingi í kvöld þegar hundrað og þrjú ár eru liðin frá því Ísland varð fullvalda ríki. Kosið verður í forsætisnefnd, aðrar fastanefndir og alþjóðanefndir þingsins eftir hádegi. Innlent 1.12.2021 11:52
Stjórnvöld fjármagna þróun nýrrar streymisveitu Ríkisstjórnin hyggst veita fé til þróunar nýrrar innlendrar streymisveitu á næsta ári sem er ætlað að auðvelda og einfalda aðgengi að íslenskum kvikmyndaarfi. Viðskipti innlent 1.12.2021 09:13
Allir leggist á eitt í baráttu við verðbólgu Fjármálaráðherra segir mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins leggist á eitt með Seðlabankanum og stjórnvöldum í að koma verðbólgunni niður. Hagur eldri borgara og öryrkja verði bættur á næsta ári og stefnt að nýjum samningum um þeirra kjör. Innlent 30.11.2021 19:20
Telur hljóð og mynd ekki fara saman Þingmaður Miðflokksins segir að á meðan uppbygging sé boðuð í samgöngumálum sé dregið úr fjárfestingu í málaflokknum. Innlent 30.11.2021 19:01
Stjórnvöld boði stöðnun í nýju fjárlagafrumvarpi BSRB gagnrýnir nýtt fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og segir það boða stöðnun í opinbera geiranum á sama tíma og blása þurfi til sóknar. Innlent 30.11.2021 16:14
Áætla að áfengis- og tóbaksgjöld verði hærri en fjármagnstekjuskattur í ár Tekjur af áfengisgjaldi hafa aukist mikið milli ára og skýrist meðal annars af aukinni einkaneyslu og samdrætti í ferðalögum Íslendinga erlendis. Gert er ráð fyrir að ríkissjóður fái hærri tekjur af áfengis- og tóbaksgjaldi í ár en af fjármagnstekjuskatti. Innlent 30.11.2021 14:12
Fjárlögin til marks um betri stöðu en víðast hvar í heiminum Nýtt fjármálafrumvarp varpar ljósi á það hversu vel Ísland stendur í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að efnahagsmálum. Greinendur sem Innherji ræddi við benda á að ríkissjóður hafi rúmt svigrúm til að fjármagna sig með öðrum leiðum en í gegnum peningaprentun Seðlabankans og að önnur ríki hafi þurft að grípa til stórfelldari aðgerða í ríkisfjármálum og peningamálum. Innherji 30.11.2021 14:12
Sakar Bjarna Ben um lítilsvirðingu gagnvart landsbyggðinni Fráfarandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir formann flokksins harðlega hvernig staðið var að ráðherraskipun í nýrri ríkisstjórn. Hann segir sinnuleysi ítrekað gagnvart landsbyggðinni sem eigi eftir að skaða flokkinn enn frekar. Innlent 30.11.2021 13:43
Hættumerki, vannýtt tækifæri og öryrkjar sitji áfram eftir Stjórnarandstaðan gagnrýnir að ennþá vanti upp á leiðréttingar fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega í nýju fjárlagafrumvarpi. Þá vanti mikið upp á að framlög til heilbrigðs-og loftslagsmála séu í takt við stjórnarsáttmálann. Innlent 30.11.2021 12:31
Bjarni segir hvorki þörf á skattahækkunum né niðurskurði á næstu árum Bjartsýni ríkir í fyrsta fjárlagafrumvarpi og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem reiknar með meiri afkomubata ríkissjóðs en áður var áætlað. Það skili sér til fyrirtækja og heimila því hvorki þurfi að hækka skatta né skera niður til að halda upp góðri opinberri þjónustu. Barnabætur verið auknar og frítekjumark eftirlaunafólks tvöfaldað. Innlent 30.11.2021 11:56
Guðmundur Ingi verður samstarfsráðherra Norðurlanda Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála, og vinnumarkaðsráðherra, verður samstarfsráðherra Norðurlanda í nýju ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur. Innlent 30.11.2021 11:38
Selja Íslandsbanka að fullu á næstu tveimur árum Eignarhlutur ríkissjóðs í Íslandsbanka verður seldur að fullu á næstu tveimur árum. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2022 sem lagt er fram á Alþingi í dag. Innherji 30.11.2021 10:23
Tekjur ríkissjóðs verða 66 milljörðum umfram fyrri áætlanir Afkoma ríkissjóðs batnar um 120 milljarða króna milli þessa árs og næsta árs og útlit er fyrir að tekjur ríkissjóðs verði 66 milljörðum hærri árið 2022 en gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun síðastliðið vor. Heildartekjur ríkissjóðs á næsta ári verða 955 milljarða króna. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2022 sem lagt er fram á Alþingi í dag. Innherji 30.11.2021 10:00
Gera ráð fyrir 169 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir 169 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs á næsta ári. Innlent 30.11.2021 09:18
Bjarni kynnti fjárlagafrumvarp og nýja fjármálastefnu Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnir fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár og fjámálastefnu fyrir árin 2022 til 2026 á fréttamannafundi klukkan 9. Innlent 30.11.2021 08:22
Stöðva stopula leit að olíu í lögsögu Íslands Hálfrar aldar sögu olíuleitar við Ísland virðist lokið; leitar sem reyndist bæði stopul og árangurslítil. Í nýjum stjórnarsáttmála er því lýst yfir að fleiri leyfi til olíuleitar verði ekki gefin út. Innlent 29.11.2021 22:20
Samstarf í þingnefndum hafi gengið illa á síðasta kjörtímabili Ný ríkisstjórn Íslands ætlar að taka aftur formennsku allra nefnda, að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd undanskilinni. Sigurður Ingi Jóhannsson segir það rökrétt framhald af slæmri samvinnu meðal stjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar í nefndum. Skiptar skoðanir eru meðal stjórnarandstöðunnar um málið. Innlent 29.11.2021 21:31
Furðar sig á að VG afhendi „íhaldinu“ umhverfis- og loftlagsmálin Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, furðar sig á að Vinstri græn skuli afhenda „íhaldinu“ umhverfis- og loftslagsmálin í nýrri ríkisstjórn. Þá gagnrýnir hún að flokkarnir fjölgi ráðuneytum, þvert á tillögu í rannsóknarskýrslu Alþingis um hrunið. Innlent 29.11.2021 20:04
Sáttmálinn fellur í misgóðan jarðveg Það er mjög jákvætt að styrkja eigi þjóðarsjúkrahúsið segir forstjóri Landspítalans um nýjan stjórnarsáttmála. Framkvæmdastjóri Landverndar segir hins vegar náttúru Íslands fjarverandi í sáttmálanum. Formaður öryrkja ætlar að reyna að vera bjartsýnn. Innlent 29.11.2021 19:02
Hægri græn orka? Það hljóta allir að sjá að það er algjörlega út úr kú að sami ráðherra fari með umhverfis-/loftslagsmál og orkumál. Hagsmunir orkugeirans á Íslandi eru gríðarlegir og náttúran alltaf sett i annað sæti. Einfaldlega vegna þess að í orku- og stóriðjugeiranum liggja peningarnir - og lobbýismi staðalbúnaður. Skoðun 29.11.2021 17:00
Það helsta sem snertir viðskiptalífið í nýja sáttmálanum Stjórnvöld ætla að halda áfram að selja eignarhlut sinn í Íslandsbanka, auka frelsi fólks til að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði og hvetja lífeyrissjóði til þátttöku í innviðafjárfestingum. Þetta er á meðal þess sem varðar viðskiptalífið hvað mest í nýjum stjórnarsáttmála Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri Grænna. Innherji 29.11.2021 14:31
Þessum er treyst fyrir áherslumálum ríkisstjórnarinnar Viðmælendur Innherja sem erum öllum hnútum kunnugir innan stjórnarflokkanna þriggja eru sammála um að í nýundirrituðum stjórnarsáttmála Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins fái allir flokkarnir þrír eitthvað fyrir sinn snúð. Innherji 29.11.2021 13:05