Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Kjartan Kjartansson skrifar 28. september 2026 09:11 Fólksbílar, pallbílar og jeppar geta nú verið eyðslufrekari og meira mengandi í Bandaríkjunum vegna ákvörðun Trump-stjórnarinnar. AP/David Zalubowski Bandaríkjastjórn ætlar að draga úr kröfum á bílaframleiðendur um eldsneytissparneytni. Nýir bílar munu þá bæði brenna meira jarðefnaeldsneyti og menga
meira
Með breytingunum á kröfum um sparneytni er áætlað að meðaleldsneytiseyðsla fólksbíla og jeppa verði um 6,8 lítrar á hundrað kílómetra (34,5 mílur á gallon) árið 2031. Reglurnar sem settar voru í forsetatíð Joe Biden áttu að leiða til þess að meðaleyðsla væri um 4,7 lítrar á hundraðið (50,4 mílur á gallon). Rökin sem Donald Trump forseti færði fyrir afnámi fyrri reglna voru að það drægi úr „sóun“ í bílaframleiðslu í Bandaríkjunum, gerði nýja bíla ódýrari og það yki innlenda bílaframleiðslu. Ákvörðunin um útvötnun reglnanna verður kynnt í dag. Bandarísk samgönguyfirvöld áætluðu að eldri reglurnar kæmu í veg fyrir bruna á um 53 milljörðum lítra af bensíni fyrir miðja öldina. AP-fréttastofan segir að án reglnanna megi gera ráð fyrir að árið 2035 muni bandarískir bílar losa rúmlega 22 þúsundum tonnum meira af gróðurhúsalofttegundinni koltvísýringi á hverju ári, níutíu tonn af sóti og hátt í fimm þúsund tonn af öðrum mengandi efnum. Stjórn Biden sagði á sínum tíma að þó að sparneytnari bílar væru dýrari en aðrir kæmu þeir betur út fyrir neytendur vegna sparnaðar á bensíndælunni. Bensínverð er í hæstu hæðum í Bandaríkjunum og annars staðar vegna hernaðaraðgerða Trump-stjórnarinnar gegn Íran. Þær hafa leitt til meiriháttar raskana á flutningi á olíu frá Miðausturlöndum frá því að stríðsreksturinn hófst í lok febrúar.
Bandaríkin Donald Trump Bílar Jarðefnaeldsneyti Bensín og olía Loftslagsmál Loftgæði Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira