
ÍR

HK og ÍR með yfirhöndina í umspili um sæti í Olís-deildinni
HK og ÍR eru núeinum sigri frá því að koma sér í úrslitaleik um laust sæti í Olís-deild kvenna í handbolta eftir sigra í leikjum kvöldsins.

Kallað út vegna elds í íþróttahúsi í Breiðholti
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds innan í klæðingu íþróttahússins í Austurbergi í Breiðholti í Reykjavík skömmu eftir hádegi í dag.

ÍR lagði Ármann og spilar í efstu deild á næstu leiktíð
ÍR verður meðal þátttakenda í Subway deildinni í körfubolta á næstu leiktíð eftir að hafa lagt Ármannskonur að velli í oddaleik í Kennaraháskólanum í dag.

Oddaleikur Ármanns og ÍR sýndur í beinni útsendingu
Oddaleikur Ármanns og ÍR um laust sæti í Subway-deild kvenna sem fram fer í dag verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

ÍR tryggði sér oddaleik um sæti í Subway-deild kvenna
ÍR-ingar tryggðu sér oddaleik um sæti í Subway-deild kvenna í körfubolta er liðið vann öruggan 26 stiga sigur gegn Ármanni í kvöld, 87-61.

Ármann einum sigri frá Subway-deildinni
Ármann er einum sigri frá Subway-deild kvenna eftir eins stigs sigur gegn ÍR í kvöld. Lokatölur 88-87, og Ármann leiðir nú einvígið 2-1.

ÍR hafði betur gegn KR í oddaleik
Það verður ÍR sem leikur til úrslita um sæti í Subway-deild kvenna eftir 19 stiga sigur gegn KR í oddaleik í kvöld, 84-65.

Umfjöllun og viðtöl: Vestri – ÍR 81-92 | Ekkert undir en samt hörkuleikur
ÍR-ingar unnu ellefu stiga sigur gegn Vestra í lokaumferð Subway-deildar karla í kvöld, 92-81.

KR-ingar knýja fram oddaleik
Það verður oddaleikur í undanúrslitum úrslitakeppni fyrstu deildar kvenna, á milli ÍR og KR eftir að KR-ingar gerðu sér lítið fyrir og unnu annan leikinn í röð gegn ÍR. KR vann viðureign liðanna í Vesturbænum í kvöld, 86-79.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Njarðvík 105-109 | Njarðvíkingar sterkari í framlengingu
Reynslusigur Njarðvíkur í Seljaskóla í kvöld og enn einn leikurinn sem ÍR kastar frá sér í Subway deildinni í körfubolta.

„Leikur sem tapaðist á mörgum litlum hlutum“
ÍR-ingar sýndu það svo sannarlega í kvöld að þeir voru að berjast fyrir síðasta sætinu í úrslitakeppni Subway-deildarinnar í vor.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-ÍR 89-86 | Sjáðu flautuþrist EC Matthews sem tryggði Grindavík sætan sigur
EC Matthews var hetja Grindavíkur í kvöld en hann tryggði liðinu sigur með flautukörfu gegn ÍR í Subway-deildinni. Von ÍR um sæti í úrslitakeppninni er afar veik eftir tapið.

Friðrik Ingi: Ég var ekki ánægður með dómgæsluna í kvöld
„Þetta var bara villa. Hann er með lítinn skurð á enninu sem blæðir úr þannig að það segir allt sem segja þarf,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari ÍR sem vildi villu í síðustu sókn ÍR í tapleiknum gegn Grindavík í kvöld.

Tveggja ára bið eftir launum: „Auðvitað leiðinlegt að þessi leið skyldi vera farin“
Körfuknattleiksmaðurinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson bíður enn þolinmóður eftir því að fá laun sín greidd frá því að hann var leikmaður ÍR keppnistímabilið 2019-20. Launadeila hans við ÍR fer fyrir Hæstarétt.

Mál Sigurðar og ÍR alla leið í Hæstarétt
Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni körfuknattleiksdeildar ÍR um að áfrýja dómi Landsréttar í máli Sigurðar Gunnars Þorsteinssonar sem dæmdar höfðu verið tæplega tvær milljónir króna vegna vangoldinna launa.

Tindastóll tryggði sér sæti í úrslitakeppninni
Tindastóll vann nauman fjögurra stiga útisigur gegn ÍR í Subway-deild karla í kröfubolta í kvöld, 75-71, og tryggði sér um leið sæti í úrslitakeppni Íslandsmótsins með sigrinum.

Umfjöllun: KR - ÍR 93-80 | KR-ingar unnu sannfærandi sigur gegn ÍR í Frostaskjólinu
KR-ingar unnu sannfærandi sigur þegar liðið fékk ÍR í heimsókn Subway-deild karla í körfubolta í DHL-höllina í Vesturbæinn í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 93-80 KR í vil.

Haukar, HK, ÍBV og ÍR í átta liða úrslit | Tvöföld framlenging í Breiðholti
Fjórir leikir fóru fram í 16-liða úrslitum Coca Cola bikars kvenna í handbolta í kvöld. Haukar, HK, ÍBV og ÍR tryggðu sér öll sæti í átta liða úrslitum, en ÍR þurfti tvöfalda framlengingu til að slá Gróttu úr leik.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Valur 80-83 | Valsmenn unnu nauman sigur gegn ÍR-ingum
ÍR fékk Val í heimsókn í TM-hellirinn í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Leiknum lauk með þriggja stigi sigri gestanna, 80-83, eftir gríðarlega spennandi leik.

ÍR-ingar ekki í vandræðum með botnliðið
ÍR vann öruggan 37 stiga sigur er liðið heimsótti Þór frá Akureyri í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 108-71.

Körfuboltakvöld um innkomu Friðriks í Breiðholtið: „Er að gera stórkostlega hluti með þetta ÍR-lið“
Þó ÍR hafi tapað naumlega gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Þórs Þorlákshafnar í síðustu umferð Subway-deildar karla í körfubolta þá fékk þjálfari liðsins – sem og leikmenn hans – mikið hrós í síðasta þætti Körfuboltakvölds.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Þór Þ. 88-90| Þór Þorlákshöfn vann í háspennuleik
Íslandsmeistararnir frá Þorlákshöfn enduðu þriggja leikja sigurgöngu ÍR með tveggja stiga sigri 88-90 í háspennuleik.

Sigurður hafði betur gegn ÍR í Landsrétti
Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Sigurður Gunnars Þorsteinssonar gegn Körfuknattleiksdeild ÍR.

„Ég hef ekki átt neinar samræður við ÍR“
Ragnar Þór Bragason, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, segir ekkert til í þeim sögusögnum að hann sé á leiðinni aftur í Breiðholtið.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - ÍR 77-94| Þriðja tap Keflavíkur á heimavelli
Keflavík tapaði sínum þriðja leik á heimavelli í Subway-deildinni gegn ÍR. Gestirnir frá Breiðholti áttu skínandi seinni hálfleik sem endaði í 17 stiga sigri ÍR-inga.

Friðrik Ingi: Varnarleikurinn var til fyrirmyndar
ÍR valtaði yfir Keflavík og vann 17 stiga sigur 77-94. Þetta var þriðji sigur ÍR-inga í röð og var Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari ÍR, afar ánægður með sigurinn.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Breiðablik 116-97 | Öruggur sigur ÍR-inga
ÍR hafði betur gegn Breiðablik í viðureign liðanna í Breiðholtinu í kvöld en lokatölur leiksins voru 116-97.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Stjarnan 88-77 | Heimamenn fara upp úr fallsæti
ÍR vann góðan 11 sigur á Stjörnunni í Subway-deild karla í kvöld, lokatölur 88-77. Sigurinn lyftir heimamönnum upp úr fallsæti.

„Það er alltaf markmiðið að komast inn í úrslitakeppnina“
Jordan Semple, leikmaður ÍR, var besti leikmaður vallarins í 88-77 sigri ÍR á Stjörnunni í kvöld. Jordan var sérstaklega öflugur þegar mest á reyndi á lokamínútum leiksins.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: ÍR - Vestri 77-78 | Háspenna lífshætta í Breiðholti
Vestri vann ÍR í sannkölluðum spennitrylli í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 78-77 gestunum í vil sem unnu einkar dýrmætan sigur í botnbaráttunni.