Tækni
81 82 83 84 ›
13 ára drengur með vændisþjónustu Þrettán ára drengur í Taívan hefur verið handtekinn fyrir að starfrækja vændisþjónustu á Netinu. Samkvæmt upplýsingum lögreglu mun drengurinn hafa fengið fleiri en 100 drengi og stúlkur til að skrá sig á heimasíðuna síðustu fjóra mánuði, undir þeim formerkjum að selja kynferðislega þjónustu. Erlent 13.10.2005 14:39
Eins og að hitta gamlan vin Fjallað var um íslenskt viðmót hugbúnaðar Microsoft á stærstu árvissu ráðstefnunni sem fyrirtækið heldur hér á landi. Microsoft telur sig halda tungumálinu "lifandi" með íslenskum útgáfum vinsælasta hugbúnaðar fyrirtækisins. Innlent 13.10.2005 14:39
Fólk hætti að nota vafra Microsoft Öryggisskrifstofa upplýsingatækni í Þýskalandi (Bundesamt für Sicherheit in der Informationstechnik) leggur til að fólk hætti að nota Microsoft Internet Explorer vafrann og noti frekar aðra valkosti. Á þetta er bent í tilkynningu frá norska hugbúnaðarfyrirtækinu Opera Software. Erlent 13.10.2005 14:39
Starfsumsókn í MyDoom veiru Þrjú ný afbrigði af MyDoom veirunni hafa skotið upp kollinum og þau hafa ekki aðeins að geyma hefðbundnar hættulegar veirur heldur einnig bón um atvinnu. Nýju afbrigðin kallast MyDoom U, V og Q og þau freista þess að sýkja tölvur með svokölluðum trójuhesti, Surila, sem gæfi tölvuþrjótum kleift að taka yfir stjórn tölvur og nota þær ýmist til að senda ruslpóst eða hópsendingar til að kaffæra póstþjóna. Erlent 13.10.2005 14:38
Netið að hrynja undan álagi Fréttirnar sem Netnotendur vilja ekki heyra: Veraldarvefurinn er að hruni kominn. Þannig hljóðar upphaf fréttar í breska dagblaðinu The Guardian í morgun. Vitnað er í ummæli Patricks Gelsinger, tækistjóra hjá örgjörvarisanum Intel, en hann sagði að Netið gæti ekki lengur ráðið við umferðarþungann sem fer um kerfið. Innlent 13.10.2005 14:38
Yahoo! kaupir Musicmatch Netfyrirtækið Yahoo! greindi frá því í dag að fyrir dyrum stæðu kaup á einkafyrirtækinu Musicmatch. Með kaupunum hyggst Yahoo! efla tónlistarþjónustu fyrirtækisins á Netinu en Musicmatch hefur boðið Netnotendum hugbúnað að til að stýra stafrænum lagasöfnum og hlusta á útvarpsstöðvar á Netinu. Erlent 13.10.2005 14:38
Mýs og lyklaborð lesa fingraför Microsoft hyggst framleiða og markaðssetja innan tíðar tölvumýs og lyklaborð sem verða þeirrar náttúru að þau lesa fingraför. Erlent 13.10.2005 14:38
Höfundur Sasser veirunnar ákærður Meintum höfundi Sasser veirunnar hefur verið birt formleg ákæra. Þýski saksóknarinn tíundar í ákæruskjalinu brot þýska námsmannsins Sven Jaschan og ber á hann þær sakir að hafa unnið skemmdarverk á tölvum, hagrætt skjölum og truflað tölvukerfi í almannaþágu.  Erlent 13.10.2005 14:38
Tölvupóstsstríð í fyrirtækjum Tölvupóstur er orðinn eitt skæðasta vopnið í valdabaráttu innan fyrirtækja, segir í niðurstöðum nýrrar rannsóknar frá Monash háskólanum í Ástralíu. Rannsóknin fólst í því að kanna hvernig starfsmenn fyrirtækja nota þessa algengu samskiptaleið en starfsmenn þriggja stórfyrirtækja á mismunandi sviðum voru undir smásjá vísindamanna. Innlent 13.10.2005 14:38
Lífstíðarfangelsi fyrir Netklám Stjórnvöld í Kína hafa hert baráttuna gegn Net- og farsímaklámi með því að hóta þeim sem dreifa slíku efni allt að lífstíðarfangelsi,að því er fram kemur hjá Xinhua fréttastofunni. Erlent 13.10.2005 14:38
Samstarf um farsímasjónvarp Stærstu farsímafyrirtæki heims hafa tekið höndum saman um þróun farsímasjónvarps. Fulltrúar Nokia í Finnlandi greindu nýlega frá því að Motorola, NEC, Siemens og Sony Ericsson hefðu sett á laggirnar bandalag, Open Mobile Alliance, til að þróa sjónvarpsþjónustu fyrir farsíma og aðra farandgripi. Innlent 13.10.2005 14:38
Guð blessi Netið, segir Björk Íslenska stórstirnið Björk er ekki ánægð með hljómplötuiðnaðinn. Hún þakkar Guði fyrir Netið og heitir því að halda á lofti sjóræningjafána. Þannig hefst frétt í norska Netmiðlinum ITAvisen sem vitnar í viðtal Vals Gunnarssonar á heimasíðu Bjarkar þar sem hún segir álit sitt á baráttu hljómplötuiðnaðarins gegn Netmiðlun tónlistar. Innlent 13.10.2005 14:38
Stafrænt RÚV Ríkisútvarpið hefur hafið tilraunir með stafrænar útvarpssendingar í samvinnu við verkfræðideild Háskóla Íslands. Stafrænum sendi hefur verið komið upp á Vatnsenda í Reykjavík og nást sendingarnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 13.10.2005 14:36
Flugbílar í háloftin fyrir 2030 Boeing-verksmiðjurnar í Bandaríkjunum eru að hanna flugbíl. Sérfræðingar NASA segja tæknilega mögulegt að slíkir bílar verði að veruleika eftir 25 ár. Spurning sé hins vegar hvort þeir verði nægilega praktískir. Óvíssa ríkir um það hvernig löggæslu verði háttað í háloftunum.  Erlent 13.10.2005 14:36
Þynnsta borðtölva í heimi kynnt Apple afhjúpaði um mánaðamótin nýja iMac G5 tölvu sem inniheldur hinn gríðarlega öfluga G5-örgjörva og sláandi glæsilega hönnun þar sem tölvan er felld innan í flatskjá. Erlent 13.10.2005 14:35
Office og Windows á íslensku Tvö algengustu forrit sem notuð eru á markaðinum, Office og Windows, komu út á íslensku í dag. Íslensku forritin eiga að útrýma þeim ensku á innan við þremur árum. Innlent 13.10.2005 14:30
Google leitar að framtíð Reiptog hinna bjartsýnu og svartsýnu fyrir frumútboð Google er hafið. Enn er ekki útséð um hvor hafi betur. Google þarf að móta sér framtíð og vaxa hratt ef það á að standa undir útboðsgenginu.  Erlent 13.10.2005 14:30
Hringja beint gegnum tölvuna Nú geta tölvueigendur hringt beint í heimilissíma og farsíma úr tölvunni ef þeir útvega sér nýtt forrit. Erlent 13.10.2005 14:27
Brosandi bílar Uppfinningamenn hjá bílaframleiðandanum Toyota hafa fengið einkaleyfi í Bandaríkjunum fyrir hugmynd að bíl sem sýnir tilfinningar. Erlent 13.10.2005 14:27
Dregið í opnunarleik Vísis Búið er að draga úr skráningum sem bárust í opnunarleik Vísis sem efnt var til vegna opnunar nýs og glæsilegs vefs, www.visir.is 16. júní síðastliðinn. Samtals skráðu sig rúmlega 11.000 manns og voru fimm heppnir þátttakendur dregnir út. Innlent 13.10.2005 14:25
Veirur orðnar fleiri en í fyrra Þótt árið 2004 sé rétt hálfnað eru tölvuveirur þegar orðnar fleiri en allt árið 2003. Sasser kallaðist sá síðasti og gerði stormandi ólukku víða um heim, einn af mörgum ormum með mörgum afbrigðum, en slíkir ormar virðast einmitt vera í sérstakri tísku nú um stundir, ef þannig má að orði komast.Þetta má lesa á vef Tæknivals, taeknival.is. Innlent 17.10.2005 23:41
Vefsíður sem luma á óværu Fyrir skömmu vöruðu sérfræðingar á sviði upplýsingaöryggis við nýrri óværu á Internetinu sem stolið getur aðgangsorðum og reikningsupplýsingum fólks sem notast við heimabanka í tölvum sínum. Notendur geta fengið óværuna í tölvur sínar úr sumum "pop-up" auglýsingum sem spretta upp frá síðum sem vafrað er inn á á Internetinu. Innlent 13.10.2005 14:24
Google á Nasdaq Leitarvélafyrirtækið Google hefur ákveðið að félagið verði skráð á Nasdaq-markaðinn að loknu frumútboði. Vangaveltur voru um að félagið yrði skráð á NYSE-markaðinn. Erlent 13.10.2005 14:24
Mótmælafundur við Alþingi á morgun Þjóðarhreyfingin - viðbragðshópur sérfræðinga svokallaður, sem hafinn var handa við að hvetja landsmenn til að hafna fjölmiðlalögunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fyrirhuguð var, mun efna til mótmælafundar við Alþingishúsið á morgun klukkan 12:30. Innlent 13.10.2005 14:23
Íslenskt viðmót í ágúst Í næsta mánuði verður fáanlegt íslenskt viðmót á nýjasta skrifstofuhugbúnaðarvöndul Microsoft og stýrikerfi. Hægt verður að kaupa hugbúnaðinn með íslensku viðmóti eða hlaða viðmótinu niður af vef Microsoft. Innlent 13.10.2005 14:23
Netnotkun eykst Netnotendum fjölgar ekki á Íslandi. Fækkar ekki heldur - og Íslendingar státa líkast til enn af heimsmeti í Netnotkun þrátt fyrir að hún standi í stað þriðja árið í röð. Fjórir af hverjum fimm Íslendingum nota Netið. Þetta kemur fram á vef Tæknivals, taeknival.is Innlent 13.10.2005 14:21
Fyrirtækin losa um budduna Reikna má með því að fyrirtæki losi aðeins um budduna á þessu ári og verji meira fé en undanfarin ár til endurnýjunar á tölvubúnaði og öðru sem lýtur að upplýsingatækni, að því er fram kemur á vef Tæknivals. Innlent 13.10.2005 14:20
Truflanir á tölvupósti Síminn Internet hefur á einum og hálfum sólarhring stöðvað um hálfa milljón vírussýktra tölvupóstskeyta sem send voru til viðskiptavina fyrirtækisins. Í tilkynningu fyrirtækisins kemur fram að starfsmenn Símans hafa sjaldan séð annað eins magn sýktra skeyta á jafn skömmum tíma. Innlent 13.10.2005 14:18
Óværan sem gerir usla á netinu Útgáfur Netsky ormsins eru fyrirferðamestar á mánaðarlegum lista vírusvarnafyrirtækisins Central Command yfir "sóðatylftina," eða fyrirferðamestu tölvuóværuna í liðnum mánuði. Fyrsta sæti listans vermir hins vegar Sasser ormurinn, sem uppgötvaðist 30. apríl sl. Hann varð fljótlega mjög fyrirferðamikill og sýkti þúsundir Windows tölva um heim allan. Erlent 13.10.2005 14:18
Íslenskumælandi talgervill í síma Í sumarlok er von á íslenskumælandi talgervli í farsíma sem gagnast getur blindum og sjónskertum. Með hjálp búnaðarins geta blindir og sjónskertir þá nýtt sér til fulls þá kosti sem farsímatæknin hefur í för með sér, svo sem SMS eða MMS smáskilaboð sem síminn les þá upphátt fyrir notandann. Innlent 13.10.2005 14:17