Spænski boltinn
178 179 180 181 182 183 184 185 186 … 266 ›
Puyol getur spilað bikaúrslitaleikinn á móti Real Carles Puyol, fyrirliði Barcelona, er búinn að ná sér af meiðslunum sem hann varð fyrir í leiknum á móti Real Madrid á Santiago Bernabeu á laugardagskvöldið. Það var staðfest á heimasíðu Barcelona í dag að Josep Guardiola geti notað miðvörðinn reynslumikla á morgun. Fótbolti 19.4.2011 13:59
Messi og Ronaldo skoruðu báðir - Barcelona er enn með 8 stig forskot Stórliðin Real Madrid og Barcelona áttust við í hinum eina sanna El Clasíco á Bernabeu vellinum í Madrid. Barcelona í kvöld. Tveir af bestu leikmönnum heims, Lionel Messi og Cristiano Ronaldo, skoruðu mörkin en leikurinn endaði 1-1. Það gekk mikið á í síðari hálfleik þar sem að Real Madrid missti mann af velli með rautt spjald en lokakafli leiksins var frábær þar sem Real Madrid var síst lakari aðilinn - manni færri. Fylgst var með gangi mála á boltavakt Fréttablaðsins og visir.is. Barcelona er með 85 stig í efsta sæti deildarinnar en Real Madrid er í öðru sæti með 77 stig. Fótbolti 16.4.2011 19:35
Messi hefur ekki enn skorað gegn Mourinho Þrátt fyrir að Lionel Messi sé markamaskína af bestu gerð hefur honum ekki enn tekist að skora mark í leik gegn liði sem hefur verið stýrt af Jose Mourinho. Fótbolti 15.4.2011 22:31
Puyol í hópi Barcelona á morgun Carles Pyol, fyrirliði Barcelona, verður í leikmannahópi liðsins fyrir leikinn gegn Real Madrid á morgun. Hann hefur verið frá í þrjá mánuði vegna meiðsla. Fótbolti 15.4.2011 22:30
Mourinho þagði og blaðamenn gengu út Blaðamannafundur Real Madrid fyrir leikinn gegn Barcelona á morgun var ansi skrautlegur. Jose Mourinho, stjóri Real, sat fundinn en sagði ekki orð. Fótbolti 15.4.2011 22:28
Iniesta var næstum því búinn að rota Guardiola Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, lenti óvænt í háska í leik Barcelona og Almeria um síðustu helgi. Þá var hans eigin leikmaður næstum búinn að rota hann. Fótbolti 14.4.2011 16:35
De Gea: Ég er ekkert búinn að tala við United David De Gea, markvörður Atletico Madrid, segir ekkert vera til í þeim sögusögnum að hann sé búinn að vera í viðræðum við Manchester United um að taka við af Hollendingnum Edwin van der Sar sem er að leggja skóna á hilluna í vor. Enski boltinn 14.4.2011 12:29
Messi jafnaði 60 ára gamalt met Lionel Messi skoraði í gær sitt 48. mark á tímabilinu og jafnaði þar með 60 ára gamalt met á Spáni. Fótbolti 13.4.2011 00:12
Berlusconi: Ætla að kaupa Ronaldo ef AC Milan verður meistari Silvio Berlusconi, eigandi AC Milan og forsætisráðherra Ítalíu, hefur mjög háleit markmið fyrir sumarið fari svo að AC Milan vinni ítalska meistaratitilinn í vor. Fótbolti 12.4.2011 13:29
Messi skráði nafn sitt í sögubækurnar gegn Almeria Lionel Messi hélt áfram að skrá nafn sitt í sögubækurnar í kvöld er Barcelona lenti óvænt í vandræðum með botnlið Almeria en hafði samt sigur, 3-1. Fótbolti 9.4.2011 19:52
Sögulegt mark hjá Ronaldo í öruggum sigri Real Madrid minnkaði forskot Barcelona á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar niður í fjögur stig í dag er Real vann öruggan útisigur, 0-3, á Athletic Bilbao. Fótbolti 9.4.2011 17:50
Adebayor vill vera áfram hjá Real Emmanuel Adebayor er hæstánægður í herbúðum Real Madrid og hann vill endilega vera þar áfram en hann er í láni hjá félaginu frá Man. City. Fótbolti 6.4.2011 12:03
Guardiola segist ekki vera að hætta Fjölmiðlar greindu frá því fyrir skemmstu að Pep Guardiola ætlaði sér að hætta að þjálfa Barcelona árið 2012. Guardiola segir þessar fréttir ekki réttar. Hann sé ekki að íhuga að hætta. Fótbolti 4.4.2011 12:20
Guardiola hættir mögulega eftir næsta tímabil Pep Guardiola, stjóri Barcelona, gaf í skyn í gær að hann muni hætta hjá félaginu þegar samningur hans rennur út sumarið 2012. Fótbolti 2.4.2011 23:27
Mourinho: Leikmennirnir eru dauðir Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, gerir sér grein fyrir því að eitthvað mjög mikið þurfi til að liðið standi uppi sem Spánarmeistari í vor. Fótbolti 2.4.2011 22:47
Pique tryggði Barcelona sigur Barcelona er með átta stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 sigur á Villarreal á útivelli í kvöld. Fótbolti 2.4.2011 21:55
Fyrsta tap Mourinho á heimavelli í níu ár - vann 150 leiki í röð Í dag batt Sporting Gijon enda á níu ára taplaust tímabil Jose Mourinho knattspyrnustjóra í deildarleikjum á heimavelli. Á þessum níu árum léku lið Mourinho 150 deildarleiki í röð án taps. Fótbolti 2.4.2011 17:54
Higuain klár en þrír meiddir hjá Real Argentínumaðurinn Gonzalo Higuain verður aftur orðinn klár í slaginn þegar að Real Madrid mætir Tottenham í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu í næstu viku. Fótbolti 2.4.2011 12:51
Forseti Barcelona: Við vinnum Real 5-0 í bikarnum Real Madrid og Barcelona mætast í úrslitum spænsku bikarkeppninnar þann 20. apríl næstkomandi og telur forseti síðarnefnda félagsins, Sandro Rosell, að sínir menn geti leikið eftir 5-0 sigur liðsins á Real í deildinni í haust. Fótbolti 1.4.2011 11:33
Benzema tæpur fyrir leikinn gegn Tottenham Karim Benzema mun mögulega missa af fyrri leik Real Madrid og Tottenham í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu vegna meiðsla sem hann varð fyrir í vináttulandsleik Frakklands og Króatíu fyrr í vikunni. Fótbolti 31.3.2011 10:34
Forlan opinn fyrir tilboðum frá Englandi Diego Forlan, sem leikur með Atletico Madrid, segist vera opinn fyrir því að snúa aftur til Englands ef rétta tilboðið berst. Enski boltinn 30.3.2011 12:53
Spilað á Spáni um helgina Verkfalli félaga sem leika í spænsku úrvalsdeildinni hefur verið afstýrt eftir að dómstóll í Madríd ógilti verkfallsboðun samtaka úrvalsdeildarfélaga þar í landi. Fótbolti 30.3.2011 10:59
Xavi: Cesc vill koma til Barcelona Xavi, leikmaður Barcelona og spænska landsliðsins, segir að Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, vilji ganga til liðs við Börsunga. Enski boltinn 29.3.2011 11:43
Mourinho í markinu er starfsmenn Real töpuðu gegn fjölmiðlamönnum José Mourinho, þjálfari Real Madrid, tók sér smá frí frá þjálfun er hann setti á sig markmannshanskana og tók þátt í leik á milli starfsmanna Real Madrid og fjölmiðlamanna í Madrid. Fótbolti 28.3.2011 17:10
Forseti Barcelona: Við munum ekki hækka okkar tilboð í Fabregas Sandro Rosell, forseti Barcelona, segir að félagið sé hætt eltingarleiknum við Cesc Fabregas, fyrirliða Arsenal, og að Barcelona mun ekki hækka tilboðs sitt í spænska landsliðsmanninn í sumar. Fótbolti 27.3.2011 10:44
Ísland síðasta landsliðið til að ná stigi af Spáni Heims- og Evrópumeistarar Spánverja héldu áfram sigurgöngu sinni í undankeppni EM 2012 með því að vinna 2-1 sigur á Tékklandi í Granada í gær. David Villa gerði bæði mörkin í leiknum en þetta var átjándi sigur spænska liðsins í leik í undankeppnum HM eða EM. Fótbolti 26.3.2011 13:39
David Villa hljóp til Pepe Reina þegar hann bætti markamet Raul David Villa sló í gær markamet Raul með spænska landsliðinu þegar hann skoraði sitt 45. og 46. mark fyrir landsliðið og tryggði liðinu 2-1 sigur á Tékkum í undankeppni EM. Villa náði þessu í sínum 72. landsleik en Raul skoraði á sínum tíma 44 mörk í 102 landsleikjum. Fótbolti 26.3.2011 12:49
Robin Van Persie: Leikmenn Barcelona eru óþolandi nöldrarar Robin van Persie, leikmaður Arsenal, segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með framkomu leikmanna Barcelona í leikjum liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 24.3.2011 13:49
Heilli umferð á Spáni frestað fram á sumar Spænska úrvalsdeildin gæti ekki endað fyrr en um miðjan júnímánuð vegna deilna um sjónvarpsmál en félögin í deildinni vilja fella úr gildi lög sem segja að einn leikur í viku hverri verði að vera sýndur í opinni dagskrá. Fótbolti 24.3.2011 10:11
Heilsan skiptir Abidal mestu máli Eric Abidal er á batavegi eftir að hafa gengist undir aðgerð í síðustu viku þar sem æxli var fjarlægt úr lifur hans. Umboðsmaður hans, David Venditelli, segir að kappinn sé ekki að hugsa um hvenær hann geti byrjað að spila á ný. Fótbolti 23.3.2011 19:38