Spænski boltinn
250 251 252 253 254 255 256 257 258 … 266 ›
Eiður Smári í leikmannahópi Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen verður í leikmannahópi Spánar- og Evrópumeistara Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti Espanyol í meistarakeppninni sem markar upphaf keppnistímabilsins þar í landi. Þeir Gianluca Zambrotta og Lilian Thuram eru einnig í leikmannahópi Barcelona, en þeir komu til félagsins fyrir skömmu líkt og Eiður Smári. Fótbolti 17.8.2006 16:56
Barcelona - Espanyol í beinni í kvöld Fyrsti alvöruleikur Eiðs Smára Guðjohnsen með Evrópumeisturum Barcelona verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í kvöld klukkan 20. Hér er á ferðinni viðureign Spánar- og bikarmeistara Barcelona og Espanyol. Það verður hinn óviðjafnanlegi Guðjón Guðmundsson sem lýsir leiknum og hefst útsendingin klukkan 19:50. Fótbolti 17.8.2006 15:53
Diarra er efstur á óskalistanum Ramon Calderon, forseti spænska knattspyrnufélagsins Real Madrid, segir það algjört forgangsatriði fyrir félagið að landa afríska miðjumanninum Mahamadou Diarra frá franska liðinu Lyon. Real hefur einnig mikinn áhuga á að fá Jose Reyes frá Arsenal, en þó komi það ekki til greina nema Arsenal samþykki að selja hann á hóflega upphæð. Fótbolti 17.8.2006 14:24
Nýr samningur í sjónmáli fyrir Beckham Forráðamenn Real Madrid segja stutt í að samningur David Beckham verði framlengdur við félagið og gæti nýr samningur náð allt fram til ársins 2009. Beckham gekk í raðir Real árið 2003 og líkar lífið vel á Spáni með fjölskyldu sinni. Hann mætti raunar of seint á æfingu liðsins í gærkvöldi eftir að hafa verið í heimalandi sínu að fylgjast með leik Englendinga og Grikkja og gæti átt yfir höfði sér sekt vegna þessa. Fótbolti 17.8.2006 13:40
Meiddist lítillega á ökkla Fernando Torres, leikmaður Atletico Madrid á Spáni, meiddist lítillega í leik Íslands og Spánar á Laugardalsvelli í fyrrakvöld. Hann snerist á ökkla í fyrri hálfleik en hélt engu að síður áfram. Fótbolti 16.8.2006 21:11
Newcastle eða Celtic? Newcastle United og Glasgow Celtic eru bæði talin vera að berjast um danska miðjumanninn Thomas Gravesen sem leikur með Real Madrid. Fótbolti 16.8.2006 21:11
Stoltur af 100 leikjum Landsliðsfyrirliði Spánar, Madrídingurinn Raul Gonzalez, sagði í samtali við spænska fjölmiðla eftir leikinn gegn Íslandi í fyrrakvöld að hann væri stoltur af 100 landsleikjum sínum fyrir Spán. "Ég var mjög hamingjusamur og stoltur," sagði kappinn. "Það er mjög mikilvægt fyrir mig að hafa náð þessum áfanga. Það var synd að úrslit leiksins hafi ekki verið betri en þetta var erfitt fyrir okkur." Fótbolti 16.8.2006 21:11
Á leið til Real Madrid Nú virðist fátt geta komið í veg fyrir að spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes hja Arsenal gangi í raðir Real Madrid. Reyes segir í samtali við breska fjölmiðla í dag að það sé draumur hans að spila fyrir Real og þakkar knattspyrustjóra sínum fyrir að greiða sér leiðina aftur heim til Spánar. Fótbolti 15.8.2006 12:27
Snýr sig fimlega út úr yfirlýsingum sínum Ramon Calderon, nýráðinn forseti spænska knattspyrnufélagsins Real Madrid, hefur viðurkennt að ekkert verði af loforðum hans um að fá þá Kaka, Cesc Fabregas og Arjen Robben til félagsins eins og hann lýsti yfir í forsetakosningunum fyrr í sumar. Fótbolti 14.8.2006 16:18
Gravesen á leið aftur í enska boltann? Umboðsmaður Tomas Gravesen hefur viðurkennt að Real Madrid vilji losna við þennan fyrrum leikmann Everton og að endurkoma í ensku úrvalsdeildina sé líkleg. Fótbolti 2.8.2006 15:37
Eiður og félagar í æfingabúðum í Mexíkó Eiður Smári Guðjohnsen og félagar hans í Evrópumeistaraliði Barcelona komu saman á æfingu í Katalóníu í gær eftir vel heppnaða ferð til Danmerkur. Þeir halda á morgun í æfingabúðir til Mexíkó og Bandaríkjanna. Fótbolti 2.8.2006 15:23
Draumur að ganga í raðir Real Madrid Hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy gekk formlega í raðir spænska stórliðsins Real Madrid í dag og lýsti félagaskiptunum sem draumi sem hefði orðið að veruleika. Hann kallaði Real Madrid stærsta félagslið í heiminum og segist ekki geta beðið eftir að leika við hlið fyrrum félaga síns David Beckham. Fótbolti 28.7.2006 18:34
Stóðst læknisskoðun hjá Real Hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy hefur nú staðist læknisskoðun hjá spænska stórliðinu Real Madrid og verður kynntur formlega sem nýr leikmaður félagsins undir síðla dags. Fótbolti 28.7.2006 13:18
Real segist vera búið að kaupa Nistelrooy Real Madrid hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að félagið hafi gengið frá kaupum á hollenska framherjanum Ruud Van Nistelrooy. Sagt er að leikmaðurinn hafi samþykkt að undirrita þriggja ára samning og er kaupverðið sagt vera um 15 milljónir evra. Nistelrooy mun að sögn félagsins gangast undir læknisskoðun á morgun. Fótbolti 27.7.2006 17:55
Ég fer ekki frá Atletico Madrid Framherjinn Fernando Torres hjá spænska liðinu Atletico Madrid gaf út sérstaka yfirlýsingu á blaðamannafundi í dag þar sem hann undirstrikaði að hann færi ekki frá félaginu. Þessi frábæri 22 ára gamli framherji hefur verið einhver eftirsóttasti og umtalaðasti leikmaður Evrópu á liðnum árum, en þó hann sé hvað eftir annað orðaður við lið eins og Manchester United, virðist hann ætla að klára ferilinn með uppeldisfélagi sínu. Fótbolti 25.7.2006 14:16
Hundfúll yfir að vera fallinn úr Evrópukeppninni Manuel Pellegrini, þjálfari spænska liðsins Villarreal, var mjög óhress með að liðið félli óvænt úr Intertoto keppninni gegn slóvenska liðinu NK Maribor í gær. Pellegrini gagnrýndi leikmenn liðsins harðlega eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli við Slóvenana á útivelli og féll því úr keppni eftir að hafa tapað heimaleiknum 2-1. Fótbolti 23.7.2006 14:55
Del Horno skrifar undir hjá Valencia Spænski landsliðsmaðurinn Asier del Horno skrifaði í dag undir sex ára samning við Valencia í heimalandi sínu, en félagið keypti hann frá Englandsmeisturum Chelsea á dögunum. Talið er að kaupverðið sé tæpar fimm milljónir punda. Fótbolti 22.7.2006 15:26
Laporta gefur aftur kost á sér Joan Laporta ætlar að gefa aftur kost á sér sem forseti Evrópumeistara Barcelona, en á stjórnarfundi á föstudag var ákveðið að boða til forsetakosninga hjá félaginu eftir að í ljós kom að kjörtímabil Laporta væri úti þó hann hefði í raun aðeins setið í þrjú ár í valdastóli. Laporta segist gefa kost á sér í áframhaldandi embætti því hann beri hagsmuni félagsins í brjósti. Fótbolti 22.7.2006 14:27
Ég er kominn til Real Madrid til að vinna Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro segist ekki skilja hvernig standi á því að stórlið Real Madrid hafi ekki unnið titil í þrjú ár, en segist staðráðinn í að gera sitt til að breyta því á næstu leiktíð. Cannavara gekki í raðir spænska liðsins frá Juventus á dögunum og leikur nú undir stjórn gamla stjóra síns frá því hjá Juventus, Fabio Capello. Fótbolti 22.7.2006 14:17
Zambrotta og Thuram til Barcelona Evrópumeistarar Barcelona hafa gefið það út að félagið sé búið að ná samningi við þá Gianluca Zambrotta og Lilian Thuram frá ítalska liðinu Juventus. Zambrotta er 29 ára og hefur skrifað undir fjögurra ára samning og Thuram, sem er 34 ára, hefur skrifað undir tveggja ára samning. Samanlagt kaupverð þeirra er sagt vera um 19 milljónir evra. Fótbolti 21.7.2006 14:36
Forsetakosningar framundan hjá Barcelona Boðað hefur verið til fundar hjá stjórn Evrópumeistara Barcelona á morgun, þar sem ákveðið verður hvenær forsetakosningar verða haldnar hjá félaginu. Joan Laporta hefur gegnt embætti forseta síðan 2003 og hefur skilað frábærum árangri, en er engu að síður gríðarlega umdeildur. Hann hefur skilað tveimur meistaratitlum og einum Evróputitli í hús, en hefur þótt harður húsbóndi. Fótbolti 20.7.2006 16:34
Ætlum að kaupa þrjá leikmenn í viðbót Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, segir að félagið hafi lagt upp með að kaupa fimm leikmenn í sumar og því sé félagið enn á höttunum eftir þremur leikmönnum. Capello segir að aðaláherslan hafi verið lögð á að ná í varnarmann og miðjumann og sú þörf hafi þegar verið leyst með þeim Fabio Cannavaro og Emerson. Fótbolti 20.7.2006 16:22
Vonast til að landa Zambrotta og Thuram Evrópumeistarar Barcelona halda því fram í dag að samningaviðræður gangi vel við forráðamenn Juventus um að kaupa varnarmennina Lilian Thuram og Gianluca Zambrotta. Því er haldið fram að kaupin gætu farið fram í upphafi næstu viku og að Zambrotta muni kosta 13,5 milljónir punda og Thuram 3,5 milljónir punda. Fótbolti 20.7.2006 15:16
Real Madrid kaupir Cannavaro og Emerson Spænska stórliðið Real Madrid festi í kvöld kaup á þeim Fabio Cannavaro og Emerson frá ítalska liðinu Juventus. Spænskir fjölmiðlar halda því fram að kaupverðið sé tæpar 14 milljónir punda og munu leikmennirnir báðir skrifa undir tveggja ára samninga með möguleika á þriðja árinu. Hjá Real hitta þeir fyrir fyrrum stjóra sinn hjá Juventus, Fabio Capello. Fótbolti 19.7.2006 21:11
Tilboði Real Madrid í Nistelrooy hafnað Sir Alex Ferguson staðfesti í kvöld að Manchester United hefði neitað kauptilboði spænska stórliðsins Real Madrid í framherjann Ruud Van Nistelrooy. Fyrr í kvöld gengu þær fréttir fjöllum hærra að framherjinn gengi í raðir Real Madrid á morgun, en nú er útlit fyrir að ekkert verði af því. Fótbolti 18.7.2006 21:57
Engin tilboð komin í Torres Forseti spænska félagsins Atletico Madrid segir að sér hafi engin tilboð borist í framherjann sterka Fernando Torres, þrátt fyrir þrálátan orðróm um að félög á borð við Manchester United séu á höttunum eftir honum. Hinn 22 ára gamli Torres hefur verið talinn einn besti og efnilegasti framherji í Evrópu um árabil og er reglulega orðaður hvert stórliðið á fætur öðru. Fótbolti 18.7.2006 15:15
Valencia hefur áhuga á Ronaldo Spænska stórliðið Valencia hefur nú bæst í hóp þeirra liða sem renna hýru auga til portúgalska miðjumannsins Cristiano Ronaldo hjá Manchester United. Pilturinn er ekki talinn eiga von á fallegri heimkomu þegar hann snýr aftur til Manchester eftir HM og framtíð hans er stórt spurningamerki þessa dagana. Sport 14.7.2006 15:54
Orðrómurinn æ háværari Sá orðrómur gerist nú æ háværari að hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United sé á leið til spænska liðsins Real Madrid. Hollenskir fjölmiðlar halda því fram að Nistelrooy hafi þegar samþykkt félagaskiptin og að aðeins eigi eftir að semja um kaupverðið. Sir Alex Ferguson heldur blaðamannafund á morgun og þar er talið líklegt að svör fáist um framtíð Hollendingsins. Sport 14.7.2006 14:41
Landsleik Íslendinga og Spánverja flýtt? Spænsk vefsíða helguð knattspyrnuliði Barcelona greinir frá því í dag að Frank Rijkaard geti teflt fram sínu sterkasta liði í hinum árlega leik um meistara meistaranna á Spáni, því spænska knattspyrnusambandið sé búið að semja við það íslenska að flýta fyrirhuguðum landsleik þjóðanna hér á landi þann 16. ágúst. Sport 13.7.2006 15:40
Ruud Van Nistelrooy á leið til Real Madrid Spænska dagblaðið Marca heldur því fram í dag að aðeins eigi eftir að ganga frá smáatriðum svo hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy geti gengið í raðir Real Madrid frá Manchester United fyrir upphæð nálægt 11 milljónum punda. Engar fréttir hafa borist frá Englandi til að staðfesta þetta en lið Real Madrid er með hverjum deginum orðað við fleiri leikmenn í ensku úrvalsdeildinni. Sport 13.7.2006 14:41