Þýski boltinn
108 109 110 111 112 113 114 115 … 115 ›
Óhagstætt að selja Hargreaves Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Þýskalandsmeistara Bayern Munchen, segir að félagið vilji ekki selja enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves því skattalög í landinu geri það að verkum að það hreinlega borgi sig ekki. Fótbolti 16.11.2006 17:40
Bayern ætlar að versla í sumar Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, segir félagið tilbúið að eyða háum fjárhæðum til leikmannakaupa í sumar og á von á að heimsklassa leikmaður verði keyptur til félagsins fyrir allt að 30 milljónir evra. Fótbolti 15.11.2006 16:37
Deisler í liði Bayern á ný Sebastian Deisler verður í liði Bayern Munchen í fyrsta skipti í átta mánuði um helgina þegar meistararnir mæta Stuttgart í úrvalsdeildinni. Deisler hefur verið frá vegna hnémeiðsla, en þessi fyrrum landsliðsmaður Þjóðverja hefur verið óheppinn með meiðsli allan sinn feril og þjáist einnig ef þunglyndi. Fótbolti 15.11.2006 16:22
Stuttgart á toppinn Stuttgart skellti sér í toppsætið í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði félaga Gunnars Heiðars Þorvaldssonar í Hannover 2-1 á útivelli, eftir að hafa lent undir 1-0. Þetta er í fyrsta sinn í meira en tvö ár sem Stuttgart nær á toppinn í deildinni. Fótbolti 12.11.2006 21:08
Bayern lagði Leverkusen í æsilegum leik Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen voru hætt komnir í viðureign sinni við Leverkusen í úrvalsdeildinni í dag, en eftir að hafa lent undir 2-1 þegar 10 mínútur lifðu leiks, náðu meistararnir að snúa leiknum sér í hag og vinna 3-2 á útivelli. Fótbolti 11.11.2006 21:07
Bayern tapaði fyrir botnliðinu Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen töpuðu mjög óvænt 1-0 fyrir botnliði Hannover í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Það var Szabolcs Huszti sem skoraði mark félaga Gunnars Heiðars Þorvaldssonar eftir varnarmistök Bayern, sem er nú sex stigum á eftir toppliði Werder Bremen. Stuttgart er í öðru sætinu eftir 2-0 sigur á Hamburg í gær. Fótbolti 8.11.2006 23:52
Hargreaves byrjaður í endurhæfingu Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen er nú byrjaður í endurhæfingu eftir að hafa fótbrotnað í síðasta mánuði. Hargreaves er 25 ára gamall og er nú laus við plastspelku af fætinum, sem þýðir að hann er farinn að ganga um eðlilega. Vonir standa til um að hann geti farið að spila í lok næsta mánaðar. Fótbolti 20.10.2006 15:40
Bremen valtaði yfir Bochum Werder Bremen skellti sér á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag með því að valta yfir Bochum á útivelli 6-0. Frábært lið Bremen skoraði fimm mörk á síðasta hálftíma leiksins, en á meðan vann Bayern góðan sigur á Hertha Berlín 4-2. Fótbolti 14.10.2006 17:15
Bayern er ekki nógu stórt lið Þýski sóknarmaðurinn Miroslav Klose kveðst eingöngu hafa áhuga á að yfirgefa herbúðir Werder Bremen ef honum býðst að fara til einhvers af stóru liðunum í Evrópu og nefnir hann Real Madrid og Barcelona í því samhengi. Fótbolti 8.10.2006 20:20
Hertha á toppinn Hertha frá Berlín skellti sér í dag á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þrátt fyrir að liðið sé aðeins búið að vinna tvo af sex fyrstu leikjum sínum á tímabilnu. Eftir fyrstu sex umferðirnar eru nú sex lið efst og jöfn með tíu stig, en markatala Hertha er best eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Stuttgart í dag. Fótbolti 1.10.2006 19:18
Wolfsburg skellti meisturunum Það urðu heldur betur óvænt úrslit í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar lærisveinar Klaus Augenthaler í Wolfsburg skelltu meisturum Bayern Munchen 1-0. Wolfsburg var í botnsæti deildarinnar fyrir leikinn en fyrsta mark Mike Hanke í sjö mánuði tryggði heimamönnum sigurinn. Þetta var aðeins þriðji sigur Wolfsburg í síðustu 23 leikjum, en þessi sigur hefur væntanlega keypt Augenthaler einhvern gálgafrest í starfi sínu. Fótbolti 30.9.2006 19:40
Tim Borowski meiddur Þýski landsliðsmaðurinn Tim Borowski hjá Werder Bremen verður frá keppni í tvær til þrjár vikur að sögn lækna félagsins eftir að hann meiddist á fæti í leiknum gegn Barcelona í gærkvöldi. Þetta þýðir að Borowski mun missa af leik Þjóðverja og Georgíu í byrjun næsta mánaðar - sem og næsta leik Bremen í Evrópukeppninni. Fótbolti 28.9.2006 21:52
Bayern komst í efsta sætið Bayern München komst á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í gær með því að leggja i Alemannia Aachen 2-1. Gestirnir komust yfir í leiknum en svo skoruðu Claudio Pizarro og Mark van Bommel og tryggðu Bayern stigin þrjú. Fótbolti 23.9.2006 20:47
Verður frá í minnst sex vikur Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves verður frá keppni í lágmark sex vikur efir að staðfest er að hann braut bein í fæti sínum í leik gegn Bielefeld í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Þetta þýðir að hann mun missa ef leikjum Englendinga í undankeppni EM í næsta mánuði. Fótbolti 17.9.2006 13:40
Meiddur í nára og lék ekki Landsliðsframherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék ekki með liði sínu Hannover í þýsku úrvalsdeildinni vegna meiðsla. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Hannover tognaði Gunnar Heiðar lítillega á æfingu fyrir helgi og gat ekki leikið með af þeim sökum. Fótbolti 16.9.2006 21:19
Hargreaves líklega fótbrotinn Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen þurfti að fara meiddur af velli eftir 25 mínútna leik í tapinu gegn Bielefeld í dag og nú eftir nánari skoðun er óttast að hann sé fótbrotinn. Hargreaves var mikið orðaður við lið Manchester United í sumar, en forráðamenn Bayern harðneituðu að selja hann. Hargreaves spilaði á miðjunni hjá Bayern ásamt Mark Van Bommel. Fótbolti 16.9.2006 17:42
Óvænt úrslit í dag Nokkuð var um óvænt úrslit í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en sex leikir voru á dagskrá. Meistarar Bayern Munchen fengu 2-1 skell fyrir Bielefeld á útivelli og Werder Bremen tapaði 3-2 á heimavelli fyrir Stuttgart. Úrslit dagsins og markaskorara má sjá á Boltavaktinni hérna neðar á síðunni. Fótbolti 16.9.2006 15:43
Loksins sigur hjá Hannover Þýska úrvalsdeildarliðið Hannover vann í gærkvöld sinn fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði granna sína í Wolfsburg 2-1 á útivelli. Hannover skaust upp af fallsvæðinu með sigrinum, en Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom ekki við sögu hjá Hannover í leiknum. Fótbolti 16.9.2006 15:32
Keisarinn er ekki bjartsýnn Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, er ekki bjartsýnn á að liðið nái góðum árangri í Meistaradeild Evrópu í vetur. Félagið hefur misst bæði Michael Ballack og Ze Roberto en fengið Mark van Bommel, Lukas Podolski og Daniel van Buyten til liðsins í þeirra stað. Fótbolti 6.9.2006 21:59
Sorin til Hamburger Argentínski landsliðsfyrirliðinn Juan Pablo Sorin gekk í dag í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Hamburger frá spænska liðinu Villarreal og er kaupverðið sagt vera um 2,5 milljónir evra. Sorin er þrítugur varnarmaður og hefur hann undirritað þriggja ára samning við þýska félagið. Fótbolti 31.8.2006 16:10
Fær nýjan þjálfara Peter Neururer, þjálfara Hannover í þýsku úrvalsdeildinni, hefur verið sagt upp störfum. Einungis eru búnir þrír leikir af leiktíðinni en Hannover hefur tapað þeim öllum. Íslenski sóknarmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson leikur með Hannover en hefur ekkert fengið að spreyta sig það sem af er tímabilinu. Fótbolti 30.8.2006 21:25
Van Bommel til Bayern Þýsku meistararnir Bayern Munchen gengu í gær frá kaupum á hollenska landsliðsmanninum Mark Van Bommel frá Evrópumeisturum Barcelona. Kaupverðið er sagt vera um 6 milljónir evra og hefur Van Bommel skrifað undir þriggja ára samning við Bayern. Þar verður honum ætlað að fylla skarð Michael Ballack, en hann verður eflaust óður í að fá að sanna sig eftir að hafa lítið fengið að spila með Barcelona á síðustu leiktíð. Fótbolti 29.8.2006 16:48
Fer ekki til Manchester United Nú er endanlega orðið ljóst að enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Bayern Munchen verður áfram í herbúðum félagsins og mun ekki fara til Manchester United. Umboðsmaður hans hefur staðfest að enginn möguleiki sé á að leikmaðurinn fái að yfirgefa Bayern, enda hefur stjórnarformaðurinn þar lagt húsið sitt undir þegar hann segir að Hargreaves fari ekki fet - Manchester United verði að snúa sér annað. Fótbolti 29.8.2006 14:34
Bayern ræður ferðinni Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves ítrekaði í gær þá ósk sína að hann vilji komast til Manchester United en sagði jafnframt að málið væri í höndum stjórnar Bayern Munchen. "Framkvæmdarstjórinn hefur fullan rétt á því að neita tilboðum í mig, en hann veit nákvæmlega hvað ég vil," sagði Hargreaves í gær. Fótbolti 25.8.2006 20:40
Verð að vera þolinmóður Sænska staðarblaðið Hallandsposten gerði framgöngu Gunnars Heiðars Þorvaldssonar hjá Hannover 96 að umfjöllunarefni í gær en hann var áður á mála hjá Halmstad og varð í fyrra markakóngur sænsku deildarinnar. Hann hefur hins vegar ekki verið valinn í hópinn hjá Hannover í fyrstu tveimur leikjum liðsins í þýsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 24.8.2006 21:17
Gefur út yfirlýsingu í dag Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves mun í dag gefa út yfirlýsingu á blaðamannafundi hjá Bayern Munchen, þar sem allt eins er búist við því að hann fari fram á að verða seldur frá félaginu. Orðrómur er á kreiki um að leikmaðurinn hafi verið sektaður fyrir að halda því ítrekað fram í fjölmiðlum að hann vilji ganga í raðir Manchester United á Englandi, en hann er samningsbundinn þýska félaginu til ársins 2010. Fótbolti 23.8.2006 13:37
Markus Merk snýr aftur Þýski knattspyrnudómarinn Markus Merk hefur tilkynnt að hann ætli að halda áfram dómgæslu, en hann tók sér frí af persónulegum ástæðum eftir að hann náði sér alls ekki á strik við dómgæslu í riðlakeppninni á HM. Merk hefur almennt verið álitinn besti dómari Þjóðverja, en talið var að hann hefði íhugað að hætta alveg að dæma. Hann segir stuðning kollega sinna hafa orðið þess valdandi að hann ákvað að snúa aftur. Fótbolti 23.8.2006 12:53
Gunnar Heiðar minnir á sig Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði þrennu fyrir þýska úrvalsdeildarliðið Hannover í gærkvöldi þegar það burstaði lið Luneburg 7-0 í æfingaleik. Gunnar Heiðar hefur enn ekki fengið tækifæri með liðinu í úrvalsdeildinni, en Hannover er í neðsta sæti deildarinnar eftir tvær umferðir. Fótbolti 23.8.2006 12:32
Ráðleggur Hargreaves að halda kjafti Uli Hoeness, framkvæmdastjóri Þýskalandsmeistara Bayern Munchen, er orðinn þreyttur á endalausum yfirlýsingum enska landsliðsmannsins Owen Hargreaves um draum sinn um að ganga í raðir Manchester United. Hoeness segir að Hargreaves væri hollara að fara að halda sér saman. Fótbolti 21.8.2006 18:55
Bayern eltist við Klose Bayern München hefur nú bæst í kapphlaupið um að tryggja sér þjónustu þýska landsliðsmannsins Miroslav Klose en leikmaðurinn er nú samningsbundinn Werder Bremen. Klose var nýlega valinn leikmaður ársins í Þýskalandi og sló þar að auki í gegn með Þýskalandi á HM í sumar. Fótbolti 20.8.2006 22:31