Banaslys í Skötufirði
Banaslysið í Skötufirði: Sofnaði líklegast undir stýri eftir næturflug Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur sennilegt að ökumaður bíls, sem missti stjórn á bíl þannig að hann snerist, rann út af veginum og valt niður í sjó á Djúpvegi í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi í janúar 2021, hafi sofnað undir stýri eftir að hafa verið á ferðalagi í fimmtán klukkustundir. Tveir farþegar – 29 ára kona og eins árs drengur – létust í slysinu. Innlent 8.6.2022 07:42
Þjóðþekktir á meðal hinna hugrökku á slysstað í Skötufirði Lögreglan á Vestfjörðum segir að fjórir vegfarendur sem fyrstir komu á vettvang umferðarslyssins í Skötufirði þann 16. janúar hafi sýnt mikið hugrekki og unnið vel á vettvangi. Fjórmenningarnir eru sumir hverjir þjóðþekktir og segir lögregla að þeir hafi veitt fyrstu hjálp í slysinu. Á endanum kostaði slysið unga móður og barn hennar, sem búsett voru á Flateyri, lífið. Innlent 23.1.2021 08:00
Tomasz og fjölskylda þakka þeim sem komu að slysinu Lögregla hefur komið á framfæri kæru þakklæti frá Tomasz Majewski og fjölskyldu hans til vegfarenda sem voru fyrstir á vettvang í Skötufirði á laugardag og til allra viðbragðsaðila auk starfsfólks Landspítalans. Innlent 22.1.2021 14:26
Vegrið vantar við tugi kílómetra vegarins um Ísafjarðardjúp Rannsókn lögreglu á tildrögum banaslyssins sem varð í Skötufirði á laugardag er ekki lokið. Hálka var á veginum þegar slysið varð og afar lélegt símasamband var á svæðinu. Þá voru engin vegrið við veginn þar sem að bíllinn rann út af og hafnaði í sjónum. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir að samkvæmt úttekt sem gerð var við Ísafjarðardjúp árið 2013 vanti vegrið á nokkurra tuga kílómetra kafla, meðal annars í Skötufirði, til að uppfylla núgildandi kröfur. Innlent 20.1.2021 19:23
Samfélagið á Flateyri slegið Rannsókn lögreglu á tildrögum banaslyssins í Skötufirði gengur vel en er ekki lokið samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum. Bænastund verður haldin í Flateyrarkirkju í kvöld. Sóknarpresturinn segir slysið hafa mikil áhrif á samfélagið. Innlent 20.1.2021 14:01
Líðan mannsins eftir atvikum góð Líðan mannsins sem lifði af bílslysið í Skötufirði á laugardag er eftir atvikum góð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. Innlent 20.1.2021 11:19
Litli drengurinn látinn eftir slysið í Skötufirði Drengur sem lenti í umferðarslysi ásamt foreldrum sínum í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á laugardag er látinn. Innlent 19.1.2021 18:39
Safna fyrir fjölskyldu konunnar sem lést í Skötufirði Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir fjölskyldu Kamilu Majewsku, pólskrar konu búsett á Flateyri, sem lést eftir umferðarslys í Skötufirði á laugardagsmorgun. Pólskir vinir konunnar standa að söfnuninni og segja hana til styrktar eiginmanni hennar og sonar sem sé í lífshættu. Innlent 19.1.2021 11:50
Telur ótækt að yfirvöld etji þreyttum ferðalöngum út í hættulegar heimferðir Læknir á Ísafirði telur ótækt að því sé haldið að ferðalöngum, sem búsettir eru á landsbyggðinni og koma frá útlöndum, að koma sér tafarlaust á skráðan sóttkvíarstað, jafnvel þótt þeir eigi langt ferðalag fyrir höndum. Leggja eigi áherslu á að fólk geti hvílt sig í grennd við flugvöllinn, frekar en að „etja þreyttum ferðalöngum út í að keyra um landið þvert og endilangt“ við erfið skilyrði. Innlent 19.1.2021 10:17
Ráðast í endurbætur á símasambandi á slysstað í næstu viku Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir það sjaldgæft að fólk nái ekki sambandi í neyð vegna slæms símasambands og að þeim stöðum fari mjög fækkandi. Til stendur að ráðast í endurbætur á símasambandi í Skötufirði í næstu viku þar sem banaslys átti sér stað á laugardag. Innlent 18.1.2021 20:46
„Menn verða að geta komist í síma ef slys ber að höndum“ Varðstjóri á Ísafirði segir að innan samfélagsins fyrir vestan fari nú fram hávær umræða um slæmt ástand innviða í Ísafjarðardjúpi í skugga banaslyssins á laugardag. Innlent 18.1.2021 13:37
Viðbragðsaðilar lausir úr sóttkví Viðbragðsaðilar sem tóku þátt í björgunaraðgerðum vegna umferðarslyssins sem varð í Skötufirði í gær eru lausir úr úrvinnslusóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. Innlent 17.1.2021 14:18
Lést á gjörgæsludeild eftir slysið í Skötufirði Kona sem lenti í alvarlegu umferðarslysi í Skötufirði í gær lést á gjörgæsludeild Landspítalans í gærkvöldi. Hún hét Kamila Majewska og var á þrítugsaldri. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu á Vestfjörðum. Innlent 17.1.2021 10:37
Vegfarendur náðu konu og barni úr bílnum Neyðarlínu barst tilkynning um slysið í Skötufirði 16 mínútur yfir tíu í morgun. Vegfarendur höfðu komið að bíl fjölskyldunnar úti í sjó en þurftu að fara af slysstað til þess að hringja í Neyðarlínuna. Innlent 16.1.2021 18:30
Fjölskyldan fer í aðra sýnatöku á morgun Par um þrítugt og ungt barn þeirra, sem keyrðu út af veginum í Skötufirði fyrr í dag og út í sjó, fara í seinni sýnatöku á morgun. Þau voru á leið heim til sín eftir að hafa verið erlendis og fóru í sýnatöku við komuna til landsins sem skilaði neikvæðum niðurstöðum. Innlent 16.1.2021 17:18
Fólk sem aðstoðaði við björgunina í úrvinnslusóttkví Fólkið sem kom að beinni björgun eftir að bíll fór í sjóinn í Skötufirði er nú í úrvinnslusóttkví. Þetta staðfestir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu. Innlent 16.1.2021 14:16
Fjölskylda flutt með þyrlu til Reykjavíkur eftir slysið Þau þrjú sem voru í bílnum sem fór í sjóinn í Skötufirði voru flutt á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlum Landhelgisgæslunnar nú eftir hádegi. Komið var með fólkið á Borgarspítalann á öðrum tímanum. Innlent 16.1.2021 13:05
Vegfarendur náðu fólki úr bíl sem fór í sjóinn í Skötufirði Viðbragðsaðilar voru kallaðir út vegna slyss í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á Vestfjörðum vegna tilkynningar um bíl sem fór í sjóinn á ellefta tímanum í morgun. Þrír voru í bílnum. Innlent 16.1.2021 11:06